Réttur - 01.01.1983, Side 48
Ásmundur Hilmarsson:
Launamannasjóðir á íslandi?
Fram til þessa hafa sjóðir atvinnulífsins verið myndaðir af framlagi
opinberra aðila og af umsýslufé fyrirtækja án neinnar viðurkenningar á
því, að það er vinna verkafólksins, sem skapar allan auð.
Launamannasjóðir, eins og ég kýs að
nefna þá fremur en launþegasjóði, voru
nokkuð í fréttum fyrir ekki margt löngu.
Kosningarnar í Svíþjóð í september á
síðast liðnu ári snerust að nokkru um
þetta mál.
Hér á landi mun hafa farið fram um-
ræða um launamannasjóði í einhverri
mynd fyrir um 30 árum. Síðan þá er mér
ekki kunnugt um nokkra marktæka um-
ræðu hér.
Launamannasjóðir eru um margt at-
hyglisverðir til lausnar á bæði vandamál-
um tengdum atvinnulýðræði og vissum
efnahagsvandamálum. Peir eru leið til
þeirrar greinar atvinnulýðræðis, sem hef-
ur verið kallað efnahagslegt lýðræði. Þá í
þeirri merkingu, að með eignarhaldi
verkafólks á fjármagni fyrirtækja að hluta
eða að fullu, fái það áhrif og völd í
stjórnun fyrirtækja og stofnana. Jafn-
framt því að vera leið til efnahagslegs
lýðræðis eru þeir athyglisverð leið til þess
að auka hlutfall sparnaðar í þjóðarbú-
skapnum.
í þjóðfélagi þar sem er fámennisvald á
framleiðslutækjunum verða þeir ríku rík-
ari ef ekki eru gerðar grundvallarbreyting-
ar á eignaskiptingunni. Með fjárfestingu
launamannasjóðanna í atvinnulífinu er
einmitt tekið á því máli vegna þess að því
fylgir eignarhald fjöldans í samræmi við
framlag þeirra.
Fram til þessa hafa sjóðir atvinnulífsins
verið myndaðir af framlagi opinberra
aðila og af umsýslufé fyrirtækja án neinn-
ar viðurkenningar á því að það er vinna
verkafólksins, sem skapar allan auð. Með
launamannasjóðum á að snúa þessari
þróun af braut og láta ekki lengur sem
kapítalið eitt sér skapi auðinn. Launa-
menn láta af hendi til fyrirtækjanna firnar-
legar fúlgur fjár í hvert sinn sem verðbæt-
ur eru skertar eða gengið fellt án þess að
48