Réttur - 01.04.1986, Blaðsíða 1
ffittnr
69. árgangur
1986 — 2. hefti
Það væri tími til kominn að kjósendur segðu stjórnarflokkunum alvarlega til
syndanna við kosningarnar sem í hönd fara. Hin nýríka milljónamæringastétt,
sem brotist hefur til valda í krafti fjölmiðla sinna, hefur leitt fátæktina aftur yfir
mikinn fjölda íslendinga, líklega fjórðung þjóðarinnar. Og hættan á atvinnu-
leysi vofir yfir fjölda manns.
Þetta gerist þegar ísland er ríkara en nokkru sinni fyrr. En auður íslands
hefur safnast á færri hendur en nokkurn tíma fyrr í sögu vorri. Eitt einasta
hlutafélag, sem vinnur í þjónustu bandaríska hernámsins, er talið eiga yfir
1000 milljónir króna í bönkum innanlands, — nú eftir að verðbólgan er stöðv-
uð að heita má, vextir háir og sparifé skattfrjálst. Og þar að auki mun þetta
félag eiga sína dollara vestan hafs, auk stórbygginga hér heima. Og svipað
mun vera með ýmsa braskara, þeir safna fé erlendis til þess að flýja þannig
undan skatti.
íhald og Framsókn eru flokkar þessara auðmanna.
Vinnandi stéttir íslands eru yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar. Samtök
þeirra — ASÍ, B.S.R.B., FFSÍ og önnur telja yfir 80.000 meðlima.
Samtök vinnu- og launastéttanna hafa þegar reynsluna af því hvernig yfir-
stéttin eyðileggur alla þá sigra, sem unnist hafa með verkföllum til að hækka