Réttur


Réttur - 01.04.1986, Page 3

Réttur - 01.04.1986, Page 3
GUÐRIJN ÁGIJSTSDÓTTIR: Land tækifæranna — borg fátæktarinnar Sú umræða sem átt hefur sér stað að undanförnu um fátækt hefur verið býsna fróðleg og varpað Ijósi á raunverulegt ástand margra fjölskyldna — ástand sem mörgum finnst þægilegra að tala sem minnst um — halda í skugganum. Gamli og nýi Sjálfstæðis- flokkurinn Gamli Sjálfstæðisflokkurinn sá að nauð- synleg væri einhver lágmarks samfélags- aðstoð við þá sem verr eru settir á hverj- um tíma. Það félagslega kerfi sem við nú búum við er að vísu til komið vegna þess að vinstri menn í þessu landi í pólitískum flokkum og í verkalýðshreyfingunni börð- ust áratugum saman fyrir þeim lagfæring- um sem þó komust í gegn. Petta félags- lega kerfi fékk lengi vel að standa meira og minna óáreitt. Sjálfstæðisflokkurinn treysti sér ekki til að afnema það, þegar hann var við völd. En nú hefur orðið tölu- verð breyting. ísland hefur í tíð núver- andi ríkisstjórnar verið gert að tilrauna- svæði fyrir kenningar Friedmans, því læri- sveinar hans hér á landi hafa náð yfir- höndinni í Sjálfstæðisflokknum. Við munum öll hvað gerðist strax eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völdum vorið 1983. Frjálsir samningar verkalýðs- félaganna voru bannaðir og verðbætur á laun afnumdar með þeim afleiðingum að 25-30% kaupmáttarrýrnun er staðreynd. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa. Mun fleira fólk leitaði nú eftir aðstoð fé- lagsmálastofnana en áður. Fjöldi skjólstæðinga Um áramótin 1983-4 bað ég um samanburð á fjölda þeirra sem leituðu að- stoðar Félagsmálastofnunar Reykjavík- urborgar í september og október 1983 miðað við sömu mánuði 1982. í ljós kom að aukningin var um 65%. Stærsti hluti þessara nýju beiðna kom frá einstæðum mæðrum. Fjórða hver einstæð móðir fær nú að- stoð Félagsmálastofnunar Reykjavíkur- borgar. En einungis hluti þeirra sem sækir um fær aðstoð m.a. vegna þess að sú viðmiðun sem nú er notuð til að meta hvort fólk á rétt á aðstoð eða ekki er afar lág. Fjögurra manna fjölskylda sem hefur yfir 2.790 kr. á viku að frádregnum kostn- aði við húsnæði, skatta og dagvistun barna fær ekki aðstoð, nema við alveg sérstakar aðstæður. 67

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.