Réttur - 01.04.1986, Qupperneq 19
Ernst Thálmann— 100 ár
Kommúnistaflokkur Þýskalands, er stofnaður var í árslok 1918, hafði misst
marga sinna bestu foringja, er auðvald og Junkarar Þýskalands sneru sér að því,
sumpart í samráði við Ebert ríkiskanslara, formann sósíaldemokrata, að drepa
aðalforustumenn kommúnista, jafnt í Berlín sem Bayern. Rosa Luxemburg,
Karl Liebknecht, Leo Jogiches o.fl. o.fl. voru myrt í janúar 1919. — Það var því
stórt spor stigið áfram 1920, til að bæta upp hinn mikla missi, er Kommúnista-
flokkurinn og vinstri hluti (meirihluti) Óháða sósíalistaflokksins (USPD) sam-
einuðust 1920.
Ernst Thálmann hafði verið félagi í USPD og varð nú brátt einn af foringjum
hins sameinaða kommúnistaflokks. Hann var fæddur 16. aprfl 1886 í Hamborg
og kynntist frá barnæsku kjörum fátækrar verkamannafjölskyldu, vann snemma
sjálfur sem hafnarverkamaður — og baráttumaður í verkalýðshreyfingunni.
Árið 1925 varð Ernst Thálmann for-
maður Kommúnistaflokksins og var í
framboði fyrir hann við forsetakosning-
arnar 1925 og 1932, en í maí 1924 hafði
hann verið kjörinn þingmaður í ríkisþing-
inu.
Thálmann beitti sér snemma fyrir sam-
starfi verkalýðsflokkanna og því meir
sem nasistahættan óx. í þingkosningun-
um í nóvember 1932 fékk Kommúnista-
flokkurinn tæpar 6 milljónir atkvæða,
hafði bætt við sig 600 þúsundum frá kosn-
ingunum í júlí s.á. Var flokkurinn þá með
17% allra kjósenda og 100 þingmenn. —
En Nasistaflokkurinn hafði tapað tveim
milljónum kjósenda.
Þýska auðvaldið og nasistaflokkur þess
óttuðust þróunina, nema gripið væri til
fasistískra aðgerða. 30. janúar 1933 var
Hitler gerður að ríkiskanslara og 28.
janúar 1933 kveiktu nasistar í ríkisþing-
húsinu, kenndu kommúnistum um og
hófu hamslausar ofsóknir.
Kommúnistaflokkurinn hafði strax og
hættan óx um áramótin reynt að fá sósíal-
demókratana til samstarfs gegn hættunni,
er yfir vofði, — en það varð engu viti
komið fyrir hægri foringjana.
Hitler bannaði Kommúnistaflokkinn
strax 28. febrúar, rauf ríkisþingið og
ákvað kosningar 5. mars. í þeim fékk
hinn bannaði flokkur 5 milljónir kjós-
enda.
En 3. mars hafði nasistunum tekist að
ná Thálmann — og var hann síðan í dyfl-
issum þeirra til dauðadags.
Ut um alla Evrópu óx nú andstaðan
gegn ógnarstjórn nasismans, sem allir
83