Réttur


Réttur - 01.04.1986, Síða 21

Réttur - 01.04.1986, Síða 21
* skynsamir menn sáu að myndi leiða til styrjaldar fyrr eða síðar. Dimitroff-mála- ferlin margfölduðu mótspyrnuna, er nas- istastjórnin stóð afhjúpuð sem hrein glæpamannastjórn. Einnig hér út á ís- landi óx baráttan gegn nasismanum og tók á sig margar myndir.1 í ellefu ár var Thálmann í hinum ýmsu fangelsum nasistanna. Engar pyntingar, einangranir né aðrar kúgunaraðferðir fengu bugað né brotið þennan trausta, framsýna og trúa foringja þýsku komm- únistanna. Aðeins kona hans, Rósa, og dóttir hans, Irma, fengu einstöku sinnum að heimsækja hann. Nasistarnir höfðu ætlað að hafa opinber réttarhöld yfir hon- um og Thálmann búið sig vel undir þau. En eftir ófarirnar í viðureigninni við Dimitroff, mun nasistum ekki hafa litist á blikuna. — Og síðar, þegar halla tók undan fæti fyrir þeim í viðureigninni við rauða herinn, brugðu þeir á það ráð að losa sig við þennan hættulega, óbrot- i gjarna andstæðing. Peir fluttu Thálmann til fangabúðanna í Buchenwald og myrtu hann þar 18. ágúst 1944. En minningin um þennan ósigrandi kommúnista og trúa leiðtoga lifir með sósíalistum heims og sérstaklega hjá al- þýðu Þýska alþýðulýðveldisins. E.O. SKÝRINGAR: 1 Sjá nánar um þá baráttu í „ísland í skugga heims- valdastefnunnar", bls. 69-88, og í „Rétti“ 1975, bls. 119-128, og „Rétti” 1982, bls. 113-115. V 11KTJ l' ft VI.HK ALÝÐSINS I. TllALMANN I FAMCKL8I NAZI6TA ERIVST THALMAIW Bæklingur um Thalmann gefínn út hér 1934. 85 L

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.