Réttur


Réttur - 01.04.1986, Side 23

Réttur - 01.04.1986, Side 23
Ályktun um kjaramál I. Nýgerðir kjarasamningar verða að telj- ast tímamótasamningar hér á landi. í fyrsta skipti er stefnt að auknum kaup- mætti launa eftir öðrum leiðum en með beinum kauphækkunum eingöngu. Geng- ið er út frá ströngu aðhaldi í verðlagsmál- um og beinum verðlækkunum, lækkandi verðbólgu og föstu gengi. Þá eru endur- skoðunarákvæðin mikilvæg, þótt þau tryggi ekki samninginn. Þar er um stefnu- breytingu að ræða af hálfu atvinnurek- enda sem hafa hafnað öllum trygginga- ákvæðum á undanförnum árum. Samn- ingurinn er tilraun og það veltur á miklu að sú tilraun takist. Náist ekki það markmið sem að er stefnt og árangurinn verður lítill sem enginn, er víst að sú leið sem hér er valin verður ekki farin aftur í bráð. Það er því nauðsynlegra fyrir verkalýðshreyfinguna nú en oft áður að hafa strangt eftirlit með því að atvinnu- rekendur og ríksivaldið standi við sinn hluta samningsins. Þ.e. að atvinnurek- endur velti ekki kauphækkunum út í verðlagið og að ríkisstjórnin standi við gefin loforð um aðhald í verðlagsmálum. Neytendur verða því að vera vel á verði og taka virkan þátt í því verðlagseftirliti sem verkalýðshreyfingin og Verðlags- stofnun stendur að, það eftirlit verður að standa út allt samningstímabilið. Sú tor- tryggni sem er hjá fólki út í aðild ríkis- stjórnarinnar er eðlileg þegar haft er í huga að ríkisstjórnin hóf feril sinn meö því að ógilda gildandi kjarasamninga og afnema samningsréttinn. II. Verkalýðshreyfingin hefur unnið marga glæsilega sigra í baráttu sinni fyrir betra þjóðfélagi. Sú barátta heiur oft vei- ið hörð og tvísýn en skilað árangri sem hefur búið verkafólki aukið öryggi, mannsæmandi húsnæði þótt þörfinni sé engan veginn fullnægt, heilbrigðisþjón- ustu og margt fleira. Verkalýðshreyfingin sýndi það enn í þessum samningum að hún er þess megn- ug að ná fram þjóðfélagslegum umbótum og réttindamálum. Samkomulagið um umbyltingu húsnæðiskerfisins er stórmál sem varðar fyrst og fremst almennt launa- fólk og alveg sérstaklega þá sem minnst bera úr býtum og nú geta frekar en áður eignast eigið húsnæði í stað þess að vera háð ótryggum og rándýrum leigumark- aði. Þessu nýja húsnæðiskerfi má óefað líkja við stærstu áfangana í baráttu hreyf- ingarinnar fyrir mannsæmandi húsnæði, það er upphaf verkamannabústaðanna og byggingu framkvæmdanefndaríbúðanna. Þá er samningsákvæðið um rétt foreldra til fráveru vegna veikinda barna fagnað- arefni, þótt aðeins sé um áfanga að ræða í því réttindamáli. En þótt áfangar náist, bíða mörg og stór vandamál óleyst. Vandi aldraðra er óleystur, í hundruðum tilfella býr gamalt fólk við neyð. Þótt verkalýðshreyfingin hafi látið málefrii þeirra æ meira til sín taka er engan veginn nóg að gert. í þessu máli verður hreyfingin að taka fastar á og knýja fram úrbætur. Þá má minna á mál öryrkja, dagvistunarmál og margt fleira. Verkalýðshreyfingin verður að sameinast um kröfur sem hafa þjóðfélagsbreytingu í för með sér til hagsældar fyrir verkafólk og beita afli sínu til að knýja þær fram. III. Hin stórfellda kjaraskerðing undanfar- inna ára og það mikla ranglæti sem í 87

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.