Réttur


Réttur - 01.04.1986, Blaðsíða 26

Réttur - 01.04.1986, Blaðsíða 26
að það samræmist sem best félagslegum og fjárhagslegum aðstæðum þeirra sem þegar eru starfandi í iðnaði. Lögð verði áhersla á að námið verði byggt upp þannig, að það standi saman af tiltölulega stuttum og afmörkuðum áföngum, sem hver um sig ljúki með hæfnismati. Hæfnismati sem notað verði til grundvall- ar til ákvörðun launa. Pá verður að gera þá kröfu, að sú verkmenntun sem skipu- lögð verður verði beint tengd og eðlilegur hluti af iðnfræðslukerfinu í landinu. Pannig verði tryggt að verkmenntun iðn- verkafólks nýtist sem hluti af frekari iðn og tækninámi. Til að svo megi verða er nauðsynlegt að gera mjög róttæka breyt- ingu á núverandi iðnfræðslukerfi. Jafnframt því sem unnið verður að uppbyggingu iðnfræðslu og verkmennt- unar fyrir iðnverkafólk innan verkmennta- kerfisins er brýnt að teknar verði upp við- ræður við iðnrekendur þar sem mótaðar verði meginreglur um það, með hvaða hætti þátttaka í námskeiðum og aukin verkmenntun starfsmanna verði viður- kennd til launa. Jafnframt þarf að tryggja rétt iðnverkafólks til að njóta þeirrar verkmenntunar sem í boði verður, án þess að það feli í sér umtalsverða röskun á högum þess. Gera verður kröfu til þess, að aukin verkmenntun leiði til umtals- verðra launahækkana, og jafnframt að samið verði um rétt starfsmanna til töku námsleyfa á launum. ✓ Alyktun um takmörkun á innflutn- ingi iðnaðarvarnings Sjöunda þing Landssambands iðnverka- fólks haldið í Reykjavík 11. - 12. apríl 1986 mótmælir harðlega þeim geigvæn- lega innflutningi á fatnaði og öðrum iðn- varningi framleiddum í Asíulöndum, þar sem lág laun og barnaþrælkun eru for- sendur fyrir lágu verði. Þingið fordæmir m.a. aðgerðir Sambands íslenskra sam- vinnufélaga sem flytur inn fatnað frá Austurlöndum fjær til sölu hérlendis í stað þeirrar framleiðslu sem Fataverk- smiðjan Hekla framleiddi áður. Slíkt er niðurlægjandi. Þingið bendir á að hin Norðurlöndin hafa sett takmarkanir á innflutning iðnað- arframleiðslu frá Asíulöndum og telur þingið eðlilegt að íslendingar geri slíkt hið sama til verndar íslenskum iðnaði og því fólki sem þar starfar. ^ Þ , Kosningar í Iðju Guðmundur Þ. Jónsson nýr formaður Allsherjaratkvæðagreiðsla fór fram um kjör stjórnar í Iðju, félagi verksmiðju- fólks,í febrúar s.l. Guðmundur Þ. Jóns- son var kjörinn formaður en fyrrverandi formaður Bjarni Jakobsson laut í lægra haldi. Tveir listar voru í kjöri í þessari kosn- ingu sem fram fór 14. - 15. febrúar. A- listi stjórnar og trúnaðarmannaráðs sem bauð Guðmund fram sem formannsefni, og B-listi Bjarna Jakobssonar. A-listinn hlaut 604 atkvæði eða 64,5% en B-listinn 322 atkvæði eða 34,4%, á kjörskrá voru 2432. 937 kusu. Auðir og ógildir seðlar voru 11. Stjórn Iðju skipa nú þau Guðmundur Þ. Jónsson formaður, Hildur Kjartans- dóttir varaformaður, Una Halldórsdóttir ritari, Sigurjón Gunnarsson gjaldkeri, og meðstjórnendur eru þau Hannes Ólafs- son, Ólína Halldórsdóttir og Valborg Guðmundsdóttir. 90

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.