Réttur


Réttur - 01.04.1986, Page 33

Réttur - 01.04.1986, Page 33
Uppreisnin magnast gegn heimsokraranum. Forseti Perú heitir á þjóðir Suður-Ameríku að neita að borga skuldir Alan Garcia, forseti Perú, var í mars í heimsókn hjá foreta Argentínu og hélt þá 14. mars ræðu á þigi Argentínu og hét á þjóðir Suður-Ameríku að sameinast um að greiða ekki hinar erlendu skuldir. Er heimsókn hans lauk 18. mars lýsti hann yfir því að ekki væri hægt að greiða þessar skuldir, enda allar illar og ólög- lega til orðnar. Fosetinn lagði áherslu á að þjóðirnar yrðu að sameinast um að siðganga hið hættulega tæki lánardrottnanna, Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn (IMF). — Hann rifjaði upp sögu rómönsku Ameríku og frelsis- baráttu þjóðanna þar, nú við alþjóðlega auðvaldið. „En það megnar ekki að höggva okkur í spað eða gera okkur að þrælum.“ Áður en forseti Perú fór rituðu þeir, Raúl Alfonsín, forseti Argentínu, og hann undir yfirlýsingu þar sem því er lýst yfir að vegna hinna gífurlegu skulda Suður-Ameríku sé skuldaþrældómurinn orðinn mesta stjórnmála- og efnahags- vandamál þjóðarinnar í rómönsku Amer- íku. Ákváðu forsetarnir að halda áfram bar- áttunni fyrir að sameina þjóðirnar í þess- ari frelsisbaráttu. Bolivía borgar ekki Utanríkisráðherra Bolivíu, Guillermo Bedregal, lýsti því yfir í La Paz að Bolivía myndi ekki borga eitt „sent“ í vexti til hinna alþjóðlegu einkabanka á árinu 1986. Samtímis réðst hann á Alþjóðagjald- eyrissjóðinn (IMF), sem er að rannsaka fjármál Bolivíu og hefur dregið að veita landinu lán, sem átti að vera greitt því í febrúar. 97

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.