Réttur - 01.04.1986, Qupperneq 47
samnings verið lengd við ríkisspítalana
með samningi 20. maí 1944. Nokkur hug-
ur virðist hafa verið í félagskonum á aðal-
fundi í lýðveldismánuðinum því rætt var
um að nú yrði að fá starfsstúlkurnar á
Landakoti í félagið, halda skyldi 10 ára
afmælisfagnað (sem ekki varð) og loks
var samþykkt mikil breyting á lögum fé-
lagsins til samræmis við vinnulöggjöfina
frá 1938 og breyttar aðstæður. Hefur ef-
laust vantað ákvæði um trúnaðarmanna-
ráð í lögin, en kosnir höfðu verið trúnað-
armenn á vinnustöðum félagsins allt frá
árinu 1941. Um haustið eru tveir fundir
haldnir m.a. til að kjósa á ASÍ-þing og
einnig var stjórn og trúnaðarráði falið að
ná samkomulagi við stjórnir ríkisspítal-
anna um hækkun og samræmingu á kaup-
gjaldi en segja ella upp samningum. Á 41.
fundi í des. 1944 er enn rætt um endur-
skoðun samningsins og nauðsyn kaup-
hækkana. En eftir þennan fund er eyða í
fundargerðabók félagsins. Varðveist hef-
ur samningur undirritaður 19. jan. 1945
við ríkisspítalana og frá 27. febrúar við
Elliheimilið og undirritar Aðalheiður þá.
Næsti bókaði fundur er númer 43 og var
haldinn 12. sept. 1946. Má telja líklegt að
42. fundurinn hafi verið aðalfundur ársins
1946 en enginn fundur hafi verið haldinn
árið 1945. Árið 1946 er Vilborg Ólafs-
dóttir orðin formaður félagsins en í fund-
argerð þar sem hennar er minnst 1952 er
sagt að hún hafi orðið formaður 1945.
Liggur næst að álykta sem svo að hinn
ötuli forystumaður félagsins fyrstu 10 árin
Aðalheiður Hólm sem kjörin var for-
maður í 11. sinn á aðalfundi 1944 hafi far-
ið til Hollands á fyrri hluta árs 1945 (strax
að stríðinu loknu sbr. viðtal) og þá hafi
frumkvæðið skort hjá þeim sem eftir voru
til að kalla saman aðalfund, þar til árið
1946.
Ljóst er, að á stríðsárunum hafi meira
af verkefnum félagsins færst yfir á stjórn
og trúnaðarráð og því hafi fundir og
virkni félgsmanna minnkað. Pessi þróun
hafi átt sinn þátt í deyfðinni. En á þessu
varð breyting haustið 1946.
Samningur sá sem varðveist hefur í
skjalamöppu félgsins og undirritaður var
í ársbyrjun 1945 ber með sér, að þá hafi
Sókn verið búin að ná 48 stunda vinnu-
viku og lágmarkskaup var 130 kr. á mán-
uði fyrstu 6 mánuðina en eftir 1 árs starf
krónur 150 eða helmingi hærra en sumar-
kaupið 1935. Sama kaup gilti allt árið en
nú voru í samningi (og líklega frá því 10.
nóv. 1942) ákvæði um 50% álag á eftir-
vinnu og 100% á vinnu umfram 60 stundir
á viku. Þá var í 5. gr. ákvæði um dýrtíð-
aruppbót á allt kaup, svo og fæðis-, hús-
næðis- og fatapeninga. Þessi samningur
gilti út árið 1945 en líklega hefur nýr
samningur ekki verið gerður fyrr en 16.
jan. 1947, enda dýrtíðarvísitala kaup-
gjaldsnefndar haldið kaupmættinum
nokkuð í horfinu. Þegar bornir eru saman
samningarnir frá 1935 og 1945 sést að bar-
átta félagsins þann áratug sem Aðalheið-
ur Hólm hafði forystu á hendi hefur verið
árangurssrík og það var sannarlega mikill
missir fyrir Starfsstúlknafélagið Sókn og
raunar verkalýðshreyfinguna í heild að
slíkur afburða brautryðjandi lét af
störfum. En með Aðalheiði hafði starfað
sterkur og ötull hópur sem nú varð að
taka við forystunni og velja sér nýjan
formann.
111