Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 7
en gott getur verið að íslensk alþýða glöggvi
sig á því hvers hún óskar í þessum efnum.
Og Alþýðubandalagið sem flokkur íslenskra
sósíalista gæti sýnt hver vilji þess væri með
því að koma á góðu samstarfi við sterka
verklýðsflokka í báðum fylkingum Evrópu.
SKÝRINGAR:
Við að bæla niður þjóðfrelsisbaráttu í Mada-
gaskar, Kenya, Kongo og víðar í Afríku drápu
nýlenduveldin yfir 100.000 manns. I Kóreu voru
drepnir 1—2 miljónir manna. I frelsisstríði Algier
féll meira en miljón. Frakkar drápu um miljón
I Víetnam með efnahagslegri aðstoð Bandarikj-
anna, sem siðar drápu tvær miljónir þar, er þeir
tóku að fullu við. Þá eru ótaldir þeir, er féllu
í innrásum og afskiptum ,,hvíta auðvaldsins" I
Kina, Kúbu, Guatemala.Santo Domingo, Egypta-
landi, Aden, Oman, „bresku" Guyana, Indó-
nesíu, Malaya og víðar. Nato-rikin hafa verið
iðin við manndrápin eftir heimsstríð.
2) I grein í ,,Rétti“ 1946 ..Nokkrar hugleiðingar
um lýðræði og baráttuna fyrir því“ lét ég slíkar
vonir I Ijós. Þar sagði m.a.: „Breyttar aðstæður
heimta breytta bardagaaðferð. Aðstæður tíma-
bilsins 1917—39 eru að hverfa og með þeim
ástæðurnar til klofningsins í sósíalistísku verk-
lýðshreyfingunni, kjarnanum í lýðræðishreyfingu
20. aldarinnar. Hið eðlilega pólitiska skipulags-
form sósíalismans á tímabilinu eftir 1945 er einn
höfuðflokkur allra þeirra, er berjast fyrir sósíal-
ismanum, fyrir völdum alþýðu í stjórnarfari sem
atvinnulífi og gegn yfirráðum þeim, sem pen-
ingavaldinu tekst enn að halda I ýmsum löndum
heims". (Neðanmáls var gerð grein fyrir að
framkvæmd sósíalismans væri og hugsanleg
með samvinnu fleiri flokka). En aðstæðurnar
breyttust.
2) Stewart Steven, sem nú er aðstoðarritstjóri
Daily Mail, hefur í bók sinni „Operation Spinter
Factor" (1974) fært afar sterkar líkur að því
að Allan Dulles, forstjóri CIA, hafi með sérstök-
um hætti valdið þvi að ofsóknirnar, sem nafn
Noel Fields sérstaklega er tengt við, hófust og
tekist með fölsuðum „sönnunargögnum" að
auka þar sífellt á. Þannig tókst með óbeinu
samspili CIA og ofstækisfyllstu valdamanna í
kommúnistaflokkum og ríkisstjórnum sósialist-
ísku ríkjanna, 1949—53, að drepa nokkra af
bestu og sjálfstæðustu foringjum þessara
kommúnistaflokka, en dæma aðra úr leik um
langt árabil og suma alveg. Það má því segja,
ef satt reynist, að þó lítið færi fyrir visku í
stjórn USA, þá voru klókindi og skepnuskapur
CIA því meiri.
4) Mörg viðhorf i sósíalismanum sem kenningu
breytast óhjákvæmilega við breyttar aðstæður
svo sem hættuna á eyðingu mannkyns með
atomvopnum, — hugsanlegri þurrð á vissum
hráefnum, ef hömlulaust er eytt, — breytingu
vegna nýrra orkugjafa og vandamála i sam-
bandi við ofnotkun eldri orkugjafa o.s.frv. Eigi
eru vísindamenn allir þó á eitt sáttir um stað-
reyndir þessara mála, svo sem þeirra, er skilyrði
skapa fyrir hagvexti, en Ijóst er þó að nýtt gild-
ismat ryður sér nú til rúms og þarf að koma.
Borgarastéttin einskorðaði sitt gildismat við
efnalega hagsmuni og þeir móta mjög — og
það eðlilega — hugsunarhátt verkalýðs í bar-
áttunni fyrir afnámi hinnar sáru fátæktar. En sá
verkalýður heila og handa, er völdin tekur, og
mótar þjóðfélagið i anda sósíalismans og yfir-
vinnur efnahagslega skortinn, mun einmitt i
krafti þessa sigurs gera þau siðferðilegu og
menningarlegu viðhorf drottnandi, er gefa lífinu
æðra gildi. Á þeim viðhorfum ber nú þegar
mjög, einkum í afstöðu til náttúru, umhverfis
alls, klæðnaðar o.fl.
151