Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 45
Rýrnandi kaupmáttur láglauna
KA UPMA r ri!R HA FNAft VERKA MAfVASA
J REVK-JF)l//K ER/9 / &£$. '7á T/l /S.SEPI '75.
Línuritið sýnir sveiflur í kaupmætti launa hjá hafnarverkamönnum í Reykjavík frá þvi í desember 1973
þangað til um miðjan september 1975. Til grundvallar teikningunni liggja umsamdir kauptaxtar annars veg-
ar og neysluvöruverð í viðkomandi mánuðum hins vegar. Stuðst var við ágiskun greinarhöfundar um
stöðu verðlagsvísitölu um miðjan júni og miðjan september 1975.
með því að ganga í eina sæng með íhaldinu.
Hægri stjórnin gekk þegar mjög rösklega til
verks við að rýra lífskjör alþýðu þeim þjóð-
félagsöflum til hagsbóta sem að stjórninni
stóðu.
13. júní 1975 náðust samningar um kaup
og kjör milli verkalýðs og atvinnurekenda,
og voru það fyrstu samningarnir í tíð hægri
stjórnarinnar. Eftir þá samninga voru kjörin
„aðeins" 5% lakari en þau höfðu verið í
desember 1973.
Rétmm þremur mánuðum síðar, eða um
miðjan september 1975 þegar þessi grein
er skrifuð, er kaupmátturinn orðinn 14,9%
lakari en í desember 1973, og kjaraskerð-
ingin frá því um miðjan júní nemur 10,2%.
Kaupmátturinn 1. mars 1974 — rétt eftir
samningana — var réttum 30% hærri en
hann er nú um miðjan september.
Hér er reiknað út frá láglaunum verka-
mánna og breytingum á neysluvöruverði.
Annars vegar er kaup til hafnarverkamanna
í Reykjavík samkvæmt tölum frá hagstof-
unni, hins vegar vísitala vöru og þjónusm frá
kauplagsnefnd. Kaupmáttur hálauna hefur
rýrnað 2—3svar sinnum meir en þessara.
Hj. K.
189