Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 63
inguna 25. apríl 1974 ákveðin 3300 Escudo
(= 20.000 kr.). Það var fyrir meirihluta
portúgalskra verkamanna hækkun um
100%, m.ö.o. tvöföldun teknanna. Nýlega
var lágmarkið hækkað í 4000 escudo (=
24.000 kr.). — vinnuvikan er nú 45 stundir,
orlof 12 dagar minnst. Þá hefur og verið
ráðist í miklar byggingar verkamannabústaða
og hafin skipulagning almannatrygginga,
sem þekktust ekki áður.
Verkamann reyna að ryðja nýjum þjóð-
félagsháttum braut, m.a. að ná til hinna fá-
tæku bænda. Þannig ákváðu t.d. skipasmiðir
skipasmíðastöðvarinnar Lisnave, en þeir eru
8000, að gera við dráttarvélar fyrir bændur
í frítíma sínum endurgjaldslaust.
Greinilegt er af stjórnmálaátökum síðustu
mánaða að afturhaldsöflin, einkum í norður-
hluta landsins, færa sig nú upp á skaftið
einkum með ofsóknum gegn kommúnistum,
m.a. hvött til þess af yfirklerkum kaþólsku
kirkjunnar, sem í hálfa öld var hin hlýðna
ambátt. fasismans. Tala þeir herrar því meir
um „lýðræði" nú sem þeir þögðu rækilegar
um það fyrrum. Reyna afturhaldsöflin mjög
að hafa áhrif á Sósíaldemókrataflokkinn og
draga hann sem lengst til hægri. Reynir nú
mjög á það hjá Kommúnistaflokki Portú-
gals að varast hættur einangrunarstefn-
unnar og er þegar bert orðið að vart er rétt
að treysta á herinn sem heild sem burðarás
byltingar.
Eftir stjórnmálaþróun síðustu mánaða
virðast verklýðsflokkar Portúgals hafa glat-
að ýmsum tækifærum, sökum þess að sósíal-
demókratar voru of langt til hægri en komm-
únistar of langt til vinstri. En von er til þess
að þeir taki að nálgast hvor annan á ný,
þrátt fyrir allt. „Unita", blað ítalska komm-
únistaflokksins, skýrði frá því 25. ágúst að
Soares, aðalleiðtogi Sósíalistaflokks Portú-
gals, hefði lagt til að sósíalista- og kommún-
istaflokkar Portúgals, Spánar, Frakklands og
Italíu kæmu saman á ráðstefnu um þróun
til sósíalismans í þessum fjórum löndum.
Hafa fulltrúar franska, spánska og ítalska
kommúnistaflokksins tekið vel í þá hug-
mynd. — Það er undir góðu samstarfi verka-
lýðsflokkanna í Portúgal komið að það tak-
ist að hindra þar öfugþróun í afmrhaldsátt
en sækja fram til sósíálisma með hinum
rómönsku löndunum.
,
íslensku afturhaldsöflin hafa eðlilega lít-
inn áhuga fyrir allri þessari lífsbaráttu fá-
tækrar portúgalskrar alþýðu . Þau sýndu
henni heldur enga samúð í þau 50 ár, sem
hún stundi undir blóðugri harðstjórn fasista.
Þá var þess jafnvel krafist í Morgunblaðinu
að Þjóðviljinn þegði um harðstjórnina í
Portúgal — saltfisksins vegna. Nú má aftur-
haldið hinsvegar vart vatni halda fyrir á-
hyggjum út af því að alþýðan kunni að ná
sér niðri á auðmönnum og fasistum eftir
hálfrar aldar áþján.
MISSKIPTING AUÐÆFA HEIMS
30% af íbúum heims njóta 70% af heild-
artekjum mannkyns. Tveir þriðju hlutar
mannkyns draga fram lífið af tekjum sem
eru undir 50 krónum á dag. Sem dæmi um
arðrán á hráefnaframleiðendum má nefna
eftirfarandi: Þegar greiddir eru í neyslulandi
6 dollarar (= 984 krónur) fyrir einn kassa
banana, þá fær útflutningslandið, „þróunar-
landið", í sinn hlut 70 cent (= 115 kr.).
Og hvað „aðstoðina" við þróunarlöndin
snertir, þá er hún t.d. í Bandaríkjunum
0,25% þjóðarteknanna.
207