Réttur - 01.08.1975, Blaðsíða 37
League". Upp frá því starfar hann ósleitilega
með fundarhöldum og fyrirlestrum, blaða-
útgáfu og bæklinga, enn þó framar öllu með
besm skáldverkum sínum að boðun sósíal-
ismans. Hin sósíalistísku kvæði hans eru
sungin á fundum sósíalista. Og hann dróg sig
hvergi í hlé í baráttunni, sem nú tók að
harðna. Þegar yfirvöldin höfðu reynt að
hindra fundahöld atvinnulausra verkamanna
í Hyde Park og sósíalistar ásamt fleirum
gengust fyrir mótmælafundi á Trafalgar
Sqnare og vitað var að til stórtíðinda dragi,
þá var William Morris þar, jafnt sem í
kröfugöngum verkamanna. Hann, ríki verk-
smiðjueigandinn, skáldið fræga, listamaður-
inn mikli gekk við hlið tötrum klæddra
verkamanna undir rauða fánanum, flutti ræð-
ur á götuhornum, útbýtti bæklingum. Fund-
urinn á Trafalgartorgi 13. nóvember 1887
var bannaður og lögreglan réðst af dýrslegu
æði á fylkingarnar, sem voru á leið þangað.
„Blóðsunnudagurinn" heitir þessi dagur í
sögu breska verkalýðsins. Morris lenti ásamt
öðrum í átökunum, þar sem hann gekk við
hlið annars sósíalista, Bernards Sha-w. Til er
lýsing sjónarvotts af Morris í svona kröfu-
göngu: „I broddi fylkingar verkamanna, inn-
an um rauðu fánana, gekk Morris, syngjandi
Marseillais-inn af miklum þrótti. Hann var
líkastur krossfara og hann söng eins og kross-
fararnir hljóta að hafa sungið." ]ohn Burns
og róttæki þingmaðurinn Cunningham
Graham voru meðal þeirra 75, er fangels-
aðir voru og særðir í átökunum og síðan
dæmdir í fangelsi, 200 manns voru fluttir
á sjúkrahús, en fjórir dóu síðar af afleiðing-
um barsmíða lögreglunnar. Við gífurlega
fjölmenna jarðarför eins þeirra, Alfreds
Linnets, talaði Morris og „Death Song" hans
var sunginn af mannfjöldanum. — Sósíal-
ismi bresku verkalýðshreyfingarinnar var að
hljóta eldskírn sína.
Keir Hardie (1856—1915) brautryðjandi sósíalist-
iskrar verklýðshreyfingar í Bretlandi. Byrjaði að
vinna í kolanámum Skotlands tíu ára. Skipuleggjari
skotska námumannasambandsins. Kosinn á þing
1892 fyrstur fulltrúi verkalýðsins. Á þar saeti frá
1900 til dauðadags, formaður þingflokks Verka-
mannaflokksins, sem fékk 29 þingmenn 1906. —
Var andvigur striðinu 1914 og tók svik sósíaldemó-
krata þá svo nærri sér að hann dó árið eftir. —
Stephan G. minnist á hann i „Vopnahlé".
Á þessum árum rekur h.vert listaverkið
annað hjá Morris, öll í anda boðskapar sósí-
alismans: „Pilgrims of Hope” (1886), „A
Dream of John Ball” (Draumur um J.B.,
prestinn í bændauppreisninni 1381) (1890)
og vinsælasta bók hans „Neivs from
Nowhere” (1890) draumsýn hans um sósíal-
isma framtíðarinnar, (sjá forsíðumyndina á
bls. 177) — svo aðeins nokkur séu nefnd.
William Morris er einn af fulltrúum ensku
sósíalistanna við stofnun II. Alþjóðasam-
181