Réttur


Réttur - 01.08.1975, Page 26

Réttur - 01.08.1975, Page 26
þarf á þeim að halda. Leiði föður míns er á einhverjum óþekktum stað í Malm og þar er einnig best að jarða mig. Eftir nokkur ár er leiðið hvort eð er gleymt, því að óhófleg dýrkun leiða finnst mér vera óguðleg dýrkun. Ég veit ekki hvernig ástatt er fyrir þér, hvort þú hefur krafta til að koma hingað og taka til. Saimi verður sennilega að flytja þessa hluti á brott, svo það er best að þú skrifir henni og hafir samráð við hana um hlutina. Einu sinni skrifaðir þú að ég ætti að gera erfðaskrá til ágóða fyrir fatlaða, en ég á enga þá hluti sem borgaði sig að arfleiða neinn að. Svo eru líka til ekkjur og munaðarlausir, sem ekki fá neina hjálp neinsstaðar að. Þú ert hvort eð er eini erfingi minn og getur ráðstafað því sem eftir er að eigin vilja, þeim sem þú álítur að með þurfi. Ég hef verið það að- þrengd að ég hef orðið að selja ruggu- stólinn og fleira af húsgögnum. Jæja, ég held að ég sé búin að skrifa niður allt það sem ég ætlaði mér, svo að ekkert óklárt lendi á öðrum eftir brott- för mína. Á morgun, um þetta leyti, veit ég sem sagt hvort til er eilíft líf, því að ég trúi enn ekki á það. Sannur finni trúir ekki fyrr en reynt hefur! Bestu kveðjur til nágrannanna allra, vina og umfram allt til allra vandamanna. Berðu pabba bestu kveðjur og þakkir, því hann hefur verið góður stjúpi í sann- leika sagt. Hann hefur borið marga sorg, og þetta á hann ekki, frekar en þið hin, að taka nærri sér. Líði ykkur vel! Martta. 170

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.