Réttur - 01.08.1975, Page 36
John Burns. Fæddur 1858, járnbrautarverkamaður,
einn besti og tryggasti foringi bresks verkalýðs,
ágætur ræðumaður, þingmaður síðar og ráð-
herra 1905—14, en fór frá í stríðsbyrjun. — Ræða
hans fyrir réttinum 1886 var gefin út sem bækling-
ur undir nafninu: ,,Maðurinn með rauða fánann"
(The man with the Red Flag), af því hann bar rauð-
an fána I kröfugöngunni. Dáinn 1943.
í 90. bl. Stefnis „stigið hiklaust og vonglaður
inn" undir þetta merki og svo munu margir
fleiri gjöra, einkum þeir, sem eitthvað hafa
kynnt sér kenningar sósíalista." — Matthías
þekkti áður sósíalisma m.a. af umræðunum
um hann í „Kvöldfélaginu" 1871—73, sem
hann var í.0) — Lýkur greininni, eftir mikla
lofgjörð um hvað Morris hafi unnið Islandi,
með þessum orðum: „Nafnið Vilhjálmur
Morris cetti að standa gulli ritað á Islands
söguskildi.”
Morris var í viðtalinu við Matthías 1883
mjög bjartsýnn á lífsþrótt íslensku þjóðar-
innar, trúaður á manngildi Islendinga, þann
forna arf, er hann elskaði og dáði. Og hann
var þar og fullur bjartsýni eins og öll sú
kynslóð kommúnista á hve auðvelt væri að
framkvæma sósíalismann þar og annarsstað-
ar. — En það átti eftir að sýna sig það sem
skáldbróðir hans í næstu kynslóð, Bertold
Brecht, kvað að fenginni reynslu um komm-
únismann: „Hann er hið einfalda sem torvelt
er að framkvæma."
í FYLKINGARBRJÓSTI
SÓSÍALISMANS
William Morris hafði á áttunda áratugn-
um orðið virkur mjög í baráttunni gegn
bresku heimsvaldastefnunni, sem um þessar
mundir náði hátindi sínum — 1878 varð
Victoría keisaradrottning yfir Indlandi. 1877
reit hann róttækt ávarp til verkamanna Bret-
lands og hvatti þá til baráttu gegn yfirstétt-
inni. — Gerbreyting var að verða á öllu lífi
hans og starfi. Hin ólíkustu áhrif voru þar
að verki, frá lestri rita Krapotkins og Henry
George, John Ruskins og Carlyles og af
kynnum við þá og fleiri. Hann, fagur-
fræðingurinn mikli, pældi í gegnum allt
„Auðmagn" Karls Marx á frönsku og 1883
steig hann skrefið til fulls, varð leiðtogi
sósíalistískra samtaka í Bretlandi, fyrst
„Democratic Federation," síðar „Socialist
180