Réttur


Réttur - 01.08.1975, Qupperneq 54

Réttur - 01.08.1975, Qupperneq 54
sem stæði á mörkunum þar sem viðbótarkostnað- ur vegna enn einnar vörutegundar mundi jafn- gilda markaðsverði sömu einingar. Þegar þannig ástand ríkir í helstu iðnaðargreinum ,hefur auð- valdið komist á einokunarstig. Við leggjum áherslu á að spurningin um vöxt og viðgang fyrirtækisins fær gjörbreytta þýðingu á einokunarstiginu. Þá stefnir fyrirtækið ekki lengur einvörðungu að lækkun kostnaðar og aukningu vöruframleiðslunnar. Að sjálfsögðu leitast það enn sem fyrr við að lækka kostnað- inn, en nú krefst hámarksgróði þess að farið sé varlega í sakirnar við aukningu vörufram- leiðslunnar. Af þessum ástæðum getur einokunar- fyrirtækið ekki lengur haldið áfram að vaxa í sinni upprunalegu iðnaðargrein. Innan þessarar iðnaðargreinar verður vöxtur þó ekki með öllu útilokaður, hann takmarkast mjög af skilyrðum kostnaðar og eftirspurnar. Þessi skilyrði stangast á við vaxtargetu og -vilja fyrirtækisins, þeas. arðsemismarkmið þess. Innri nauðung rekur því einokunarfyrirtækið út fyrir upprunalegt svið þess og umfang. Þessi nauðung eykst í takt við ein- okunareinkenni fyrirtækisins og umframvirðið sem það hefur til ráðstöfunar og vill ávaxta. Hér höfum við þá fengið útskýringu á grund- vallaratriðum hinna þýðingarmestu fyrirbæra seinni auðvaldstíma: viðleitni stærri fyrirtækja til að færa kvíarnar út í aðrar iðnaðargreinar og til annarra landsvæða. Með öðrum orðum: við- leitnin til að mynda fyrirtækjasamsteypu annars- vegar og fjölþjóðafyrirtæki hinsvegar. Flest hinna 200 stærstu iðnaðarfyrirtækja Bandarikjanna — saman ráða þau nær helmingi allrar iðnaðarfrWm- leiðslu landsins — eru einmitt slíkar fjölþjóð- legar samsteypur. lón Ásgeir Sigurðsson þýddi. * (*) SKÝRINGAR: (*) Þrjú merk rit varðandi þetta: 1. Judd Polk o.fl. US Produclion Abroad and the Balance of Payments, National Industrial Conference Board, New York 1966. Polk, sem er hag- fræðingur og forseti Bandaríkjadeildar Inter- national Chamber of Commerce, hefur margt ritað um fjárfestingu erlendis. 2. Raymond Vernon, „Multinational Enterprise and Nati- onal Sovereignty“, Harvard Business Review, mars-apríl 1967. Vernon er prófessor í milli- ríkjaverslun og fjárfestingu við Harvard Busi- ness School. Hann stjórnar einnig umfangsmik- illi rannsókn á sama viðfangsefni og ritgerð okkar fjallar um, hún er kostuð af Ford Foundation. 3. Charles P. Kindleberger, „Ame- rican Business Abroad: Six lectures on Direct Investment", Yale University Press, New Hav- en 1969. Kindleberger er prófessor í hagfræði við Massachusetts Institute of Technology, og bók hans um alþjóðlega hagfræði er eitt helsta rit í þeim efnum við bandaríska háskóla. í nefndri bók hans er að finna gagnlega ritaskrá um fjölþjóðafyrirtæki. (2) John Thackray, „Not so Multinational. After All“, Interplay, nóvember 1968, bls. 23. (Grein þessi er hluti af rilgerðaröð undir nafninu „The Multinational Corporation: The Splen- dours and Miseries of Bigness“.) (3) Þeir aðilar innlendrar borgarastéttar, sem deila hagsmunum með erlendum fyrirtækjum fremur en með eigin stétt í eigin landi, eru ekki einungis fastir starfsmenn þessara fyrir- tækja. Aðrir sem hafa meirihluta tekna sinna frá (og hagsmuni samtvinnaða) erlendum fyr- irtækjum eru t.d. þjónustuaðilar, ýmiskonar verktakar, lögfræðingar, ofl. (,‘) Þetta þema gengur auðvitað einsog rauður þráður gegnum allt sem marxistar hafa ritað um auðvaldsskipan. Hvergi finnst kröftugri og skýrari lýsing á því en í síðasta hluta fyrsta bindis Auðmagnsins, sem heitir „Hin svo- nefnda upprunalega upphleðsla“ (Das Kapital, MEW I. bindi, 24. kafli). Við ráðleggjum þeim sem ætla að lesa „Auðmagnið" að lesa þennan kafla áður en þeir byrja á fyrsta kafl- anum. (5) Sjá einkum Das Kapital, I. bindi MEW 23. kafla 4. (bls. 161—191) og kafla 24 (bls. 761—770). (G) Úr ársskýrslu Rockwell-Standard Corporation árið 1965. Þetta fyrirtæki hefur síðan samein- ast North American Aviation og nefnist sú samsteypa North American Rockwell Corpo- ration. 198
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.