Réttur - 01.08.1975, Page 59
hefur nú hafið starfsemi á ný með allharðri
gagnrýni á ráðstafanir egypsku stjórnarinnar,
að því er „L’Unita", blað ítalska kommún-
istaflokksins segir frá.
PERÚ
Hinn nýi forseti Peru, Francisco Morales
Bermudez, hefur sett út úr ríkisstjórninni alla
þá ráðherra, er voru andkommúnistar. Báru
þeir m.a. ábyrgð á því að um 50 blaðamenn,
menntamenn og verklýðsleiðtogar, er gagn-
rýnt höfðu fyrri stjórn, höfðu verið reknir
úr landi. Hafa þeir nú fengið að snúa heim.
Kveðst hinn nýi forseti munu halda í
heiðri fyrirheit þeirrar byltingar, er hafin var
1968. En sú bylting var fyrsta róttæka her-
fortngjabyltmgin.
MADAGASKAR
Forseti sá er til valda komst á vegum
hersins s.l. sumar, Didier Ratsiraka, hefur
lýst yfir eftirfarandi stefnu stjórnar sinnar:
Þjóðnýting bankanna, tryggingarfélaganna,
námanna og allra auðæfa í jörðu, eignarnámi
á landareignum stórjarðeigenda og uppskipt-
ing þeirra á milli bænda, yfirstjórn ríkisins
á utanríkisverslun og skipulagning innan-
landsverslunar.
Franska blaðið „Le Monde" spyr 5. sept-
ember hvort ríkisstjórn Madagaskar ætli að
koma sósíalisma á í landinu og minnir á að
forsetinn, — er áður var utanríkisráðherra,
— hafi reynst mjög fasmr fyrir gagnvart
áhrifum jafnt Bandaríkjanna sem Sovétríkj-
anna.
„REPUBLICA“
Þegar deilt hefur verið um útkomu blaðs-
ins „Republica" í Lissabon, þá er sjaldan
getið eins atriðis í sambandi við þá deilu,
sem að ýmsu leyti var klaufalega háð af
hendi allra aðila. Byltingarráð verkamann-
anna við blaðið (prentarar o.fi.) hafði ákveð-
ið að afhenda fyrri eigendum blaðið með því
skilyrði að engum starfsmannanna yrði sagt
upp. En framkvæmdastjóri blaðsins krafðist
þess að fá að segja upp þeim, er hann taldi
hafa haft forustu um barátm verkamanna.
A þessari kröfu strönduðu samningar.
Hinsvegar reyndist auðvelt fyrir Rego, er
forðum var framkvæmdastjóri Republica, að
fá sér nýtt blað ,,]ornal di Commercio”. —
Aróðurinn, sem rekinn er hér heima um að
kommúnistar ráði flestöllum blöðum Portú-
gals, hefur ekki við rök að styðjast.
iNDLAND
Nóttina milli 25. og 26. júní tók Indíra
Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sér eins-
konar alræðisvald með aðstoð sérstakrar lög-
reglu sinnar og hers. Talið er að í lok ágúst
hafi verið búið að taka fasta og setja í fang-
elsi um 116 þúsund andstæðinga hennar.
Indíra Gandhi og Þjóðþingsflokkur henn-
ar ræður ekki við andstæðurnar í indversku
þjóðfélagi og vill raunverulega ekki — né
getur eins og sá flokkur er samsettur — ráðið
við vandamálin. Því fyrst og fremst er flokk-
ur sá erindreki yfirstéttarinnar og hvorki vill
né getur gert þær ráðstafanir gegn henni,
sem duga til að leysa hinar ægilegu þjóðfé-
lagsandstæður landsins.
Hyldýpið milli auðs og eymdar er hvergi
slíkt sem í Indlanli:
318 skattgreiðendur viðurkenna eign að
upphæð 36 miljarðar ísl. kr. (ca. 130 miljón-
ir á hvern). Þar með viðurkenna 0.002%
íbúanna að eiga 8% viðurkenndra einka-
eigna. En sérfræðingar telja að 10% þjóð-
arinnar eigi tvo þriðju hluta allra einkaeigna
203