Réttur


Réttur - 01.01.1976, Page 11

Réttur - 01.01.1976, Page 11
ið í húsnæðismálum, koma í veg fyrir at- vinnuleysi, auka orlofsdaga, auka slysabætur o. s. frv. Þetta er allt gott og blessað út af fyrir sig. En ég er ekki viss um að þeir settu á oddinn kröfuna um að breyta þessu þjóð- félagi og gera það að ríki verkamannsins. Það er kannski erfitt að setja þetta stefnu- mið fram sem kröfu í þjóðfélagi „allsnægta” í dag, en við lifum þó í stærri heimi, þar sem fólk deyr miljónum saman úr hungri og skorti, okkar stéttarbræður, verkamenn um allan heim. Mér finnst skorta á að okkar forysta í dag setji þetta á oddinn og brýni þetta fyrir okkur í félögunum. Mér finnst að í þessu birtist meginmunurinn á þessum tíma- bilum. Stéttarvimndin og hið endanlega markmið okkar hafi sljóvgast í neysluþjóð- félaginu. Björn: Eg skil fullkomlega sjónarmið þín Sigurður. Eg skil vel óþolinmæði ungra manna. Maður trúði því sjálfur, á þínum aldri, að byltingin myndi koma eftir svona fimm ár og þá væri slagurinn unninn. En það eru kannski ellimörk á manni, að mað- ur er ekki trúaður á að hún komi á morgun. Það hefur einhvern veginn orðið hlutskipti verkalýðshreyfingarinnar að standa í þrot- lausri baráttu, jafnvel um smámunalega hluti eins og þú taldir upp. En sannleikurinn er samt sá, þegar litið er til baka, að þessir smá- munir sem talað er um; þeir hafa, þegar þeir leggjast allir saman, gerbreytt öllum lífshátt- um verkalýðsins, — breytt sjálfu þjóðfélag- inu. Þannig er það kannski ekki síst í hugum okkar kreppuáraunglinganna. Eg held að öll viðleitni, jafnvel í því smáa, til þess að bæta lífskjörin; hún stefni að því að breyta þjóð- félaginu. Eðli verkalýðshreyfingarinnar er auðvitað allt á þá lund, að það sem við höf- um fyrir stefnumið, það er að skapa betra þjóðfélag. Sigurður: Eg var út af fyrir sig ekki að „Maður trúði, að byltingin kæmi eftir svona 5 ár.“ gera lítið úr hinni daglegu baráttu, þessum umbótum. Eg hef raunar oft sagt við önnur tækifæri, að það sem manni finnst mest um vert í þessu þjóðfélagi, það eru einmitt rétt- indi sem verkalýðshreyíingin hefur borið fram í baráttunni. Oll okkar helstu mann- réttindi og lýðréttindi eru ávöxtur af baráttu verkalýðshreyfingarinnar. En mér finnst að það sé mjög áberandi í baráttu okkar í dag, hvað við lítum skammt fram á veginn; við eigum að tala pólitískt við verkafólk og tengja dægurbaráttuna við okkar framtíðar- sýn. Þetta er ekki spurningin um, Björn, hvort byltingin gerist í dag eða á morgun, heldur hvort hún gerist á næstu áratugum eða árhundraði. Það er kannski munurinn á ungum manni í dag eða á kreppuárunum, sem sagt mér og þér, að ég trúi ekki að bylt- ingin gerist á morgun! Björn: Nú, það er greinileg framför! 11

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.