Réttur


Réttur - 01.01.1976, Qupperneq 26

Réttur - 01.01.1976, Qupperneq 26
rétt, að þau hafa verið tiltölulega þröng; þau hafa fyrst og fremst verið hagsmunabaráttan. Jú, það er nú það, að breyta þjóðfélaginu. Ut af fyrir sig, þá álít ég að eðli verkalýðshreyf- ingarinnar sé að breyta þjóðfélaginu. Og hún hefur verið að gera það og er alltaf að gera það, en hitt er annað mál að þarna hlýmr alltaf að vera um vissa verkaskiptingu að ræða. Eg vil heldur ekki segja að það séu bara verkalýðssamtökin sem sætti sig við þessa þjóðfélagsgerð. Það eru pólitísku flokk- arnir, vinstri flokkarnir lika, sem hafa viður- kennt þessa þjóðfélagsgerð, sem við búum við. Þar á meðal sætt sig við það, að við eigum fyrst og fremst að búa við þessa teg- und lýðræðis. Við kratar og þið alþýðubanda- lagsmenn viljum útvíkka þetta lýðræði, færa það inn á önnur svið o.s.frv. — efnahagssvið- ið, arvinnulýðræði og annað því um líkt, en við höfum þó alla vega viðurkennt það, að í þjóðfélagsbaráttunni, þá byggjum við fyrst og fremst á pólitísku flokkunum og þar at leiðandi getum við ekki alveg lagt að jöfnu faglega verkalýðshreyfingu og pólitíska flokka. Því ef faglega hreyfingin tæki að sér öll þau umsvif, sem flokkarnir hafa, hvað á þá að gera við þá, á þá ekki bara að leggja þá niður? Þarna held ég að verði alltaf að vera einhver verkaskipting, skipting milli pólitísku flokkanna og þeirra áhrif og völd sem ráða miklu um sjálfa þjóðfélagsgerðina. Réttur: En hefur verkaskiptingin ekki verið of mikil? Björn: Jú, ég álít að það hafi verið of litið samband. Ég álít að þessir aðilar, sem hafa þessa verkaskiptingu, þeir þurfi að vinna saman og taka mið hvor af öðrum. Eg tel að það hafi verið að gerast upp á síðkastið; það er verið að reyna að koma á vissu samstarfi milli verkalýðsflokkanna og faglegu verka- lýðshreyfingarinnar. Guðmundnr: Við skulum muna í þessu sambandi að útgangspunkturinn hjá okkur hefur alltaf verið að halda saman einu verka- lýðssambandi. Þegar svo er má náttúrlega búast við því að þessa sjái stað einhvers stað- ar í starfsháttum hreyfingarinnar. En við gleymum því hins vegar aldrei hvernig íhald- ið hefur hagað sér og sínum vinnubrögðum innan veikalýðshreyfingarinnar. Um það gæti ég nefnt ótal dæmi, læt þó nægja eitt: 1955 stóðum við í langvinnu og erfiðu verk- falli. Ut úr því fengum við nokkrar kaup- breytingar og atvinnuleysistryggingasjóðinn. Eg skal skjóta því hér inn í að mér fannst karlinn hann Björn Bjarnason hálfgalinn þegar hann sagði að atvinnuleysistrygginga- sjóðurinn væri stærsti ávinningur verkfalls- ins! Nú, sem sagt; við stóðum í verkfalli í margar vikur. Verslunarmannafélagið tók engan þátt í þessari vinnudeilu, ekki á nokk- urn hátt, nema hið gagnstæða. En eftir samn- ingana hafa þeir 100% tryggingu fyrir því að fái þau félög, sem í deilunni voru, ein- hverjar kjarabætur skuli þeir fá þær líka. Þetta er taktík og stjórnviska íhaldsins í verkalýðshreyfingunni. 1961 stóðum við í hörðum slag. Eftir að samningum lauk var ekki liðin nema hálf vika þegar verslunar- menn sömdu um 14% kauphækkun; við höfðum fengið 10%. Þeir tóku engan þátt í verkfallinu. Það er þetta, sem sumpart byggist á pólitískri afstöðu þeirra gagnvart atvinnurekendum, sem tryggir íhaldið í sessi í þessum félögum. Það er ekki spurt eftir á hver það var og hvernig sem knúði fram kauphækkunina. Aðeins um kosningar í verkalýðsfélögun- um: Kosningar voru hér áður stundum tvisv- ar á ári í verkalýðsfélögunum: Kosningar í stjórn, kosningar á ASI-þingið. Verulegur hluti af starfskröftum félagsins og afli fóru í kosningarnar; hitt getur verið rétt að hreyf- ingin sé alltof lítil í þessum efnum núorðið. 26
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.