Réttur - 01.10.1976, Blaðsíða 2
Leyniskýrslur Bandaríkjanna, birtar af Þór Whitehead, benda til þess að
þeir hefðu 1945 látið ameríska hervaldinu þrjár herstöðvar á íslandi í té til
99 ára undir algerum bandarískum yfirráðum, m.a. til starfrækslu kjarnorku-
vopna, — en þeir þorðu þetta ekki er á reyndi af ótta við áhrif sósíalista
á almenningsálitið á Islandi. — (Þær skýrslur verða ræddar í næsta hefti
Réttar).
☆ ★ ☆
Það eru síðustu forvöð að íslensk alþýða hnekki valdi þessarar skammsýnu
yfirstéttar og hreki pólitíska braskara hennar frá völdum, áður en þeir sökkva
landinu í óbotnandi skuldafen, hneppa þjóðina í þrældóm erlendra auð-
drottna og ofurselja landið amerísku hervaldi til ævarandi afnota.
Það er ekki nóg fyrir íslenska alþýðu að hækka kaupið. Yfirstéttin stelur
þeim kauphækkunum jafnóðum. Alþýðan verður að taka stjórn á sjálfu at-
vinnu- og viðskipta-lífinu í sambandi við þá, sem sýna vit og ábyrgðartil-
finningu í þeim efnum.
Íslenskir sósíalistar forðuðu Islandi 1945 frá þvi að verða eilífðar atómstöð
Ameríkana til árása á Evrópu, — með því að skera upp herör hjá vinnandi
og hugsandi mönnum.
Sósíalistaflokkurinn máttkvaði 1942—47 íslenska alþýðu til slíkra stórvirkja
að hún megnaði með skæruhernaði, kosningasigrunum miklu og nýsköpun
atvinnulífsins að slíta af sér fjötra fátæktarinnar og leggja grundvöll að
betri lífskjörum en áður höfðu þekksí á fslandi.
í 30 ár hefur braskarastéttin alltaf verið að ráðast á þau lífskjör og reynt
að hneppa alþýðu í fjötrana á ný. I þrjátíu ár hafa staðið hjaðningavíg
sóknar og varnar. I 30 ár hefur verkalýðurinn getað unnið á í kaupbaráttunni,
en auðvaldið lengst af ráðið ríkisvaldinu í nógu ríkum mæli til að stela ávöxt-
unum með gengislækkunum og verðbólgu.
Á árinu 1977 verður verkalýðurinn ekki aðeins að sigra í kaupdeilum,
heldur og að búa sig undir að ná svo sterkum og varanlegum tökum á rík-
isvaldinu að hin fáráða, gráðuga burgeisastétt geti aldrei framar einbeitt því
valdi gegn honum.
* * ☆
Þetta hefti Réttar er, ekki síst með hliðsjón af síðasta þingi A.S-Í., í höfuð-
atriðum helgað því hlutverki að búa alþýðu undir að valda sögulegu verk-
efni, er hennar bíður. En forsendur þess að henni auðnist að vinna það verk
er annarsvegar hið víðfeðmasta samstarf vinnandi stétta og allra þeirra,
er aðhyllast málstað þeirra og hugsjón, — og ekki síst hvað langtímatak-
markið snertir: markviss sósíalistisk forusta.
202