Réttur - 01.10.1976, Síða 8
mjög mikið og þó alveg sérstaklega öll láglaun,
sem nú eru langt frá því að geta talist mann-
sæmandi.
Þingið lítur svo á, að fullar efnahagslegar for-
sendur séu nú fyrir hendi, ef rétt er á málum
haldið, til þess að stórbæta almenn launakjör án
þess að stefnt sé í nokkurt óefni efnahag þjóð-
arinnar.
í þvi sambandi bendir þingið á, að viðskiptakjör
hafa farið hraðbatnandi að undanförnu og að allar
horfur eru á, að sú verði þróunin, a.m.k. í næstu
framtíð og ennfremur, að afkoma helstu atvinnu-
greinanna er orðin mjög hagstæð. Auk þessa kem-
ur svo til, að stórauka má efnahaglegt svigrúm til
kjarabóta með aðhaldi i þeim greinum ríkisbúskap-
arins, sem ekki eru nauðsynlegar m.t.t. félagslegrar
þjónustu né til að halda uppi fullri atvinnu, með
gagngerðum breytingum á skattakerfinu, með því
að draga úr launamismun og síðast en ekki síst
með því að byggja fjárfestingar á áætlunum og
skipulagningu.
Með tilliti til þess að gerbreytt efnahags- og
atvinnumálastefna er þannig grundvallarnauðsyn
samfara verulegum launahækkunum telur þingið,
að kjarabaráttan á næsta ári hljóti aðallega að
beinast að eftirfarandi:
1. Þingið telur að lágmarkslaun fyrir dagvinnu
megi ekki vera lægri en kr. 100.000,— á mán-
uði og önnur laun hækki til samræmis við það,
þannig að launabil haldist í krónutölu.
2. Launin breytist í samræmi við breytingar þær,
sem verða á vísitölu framfærslukostnaðar á
samningstímanum, án frádráttar nokkurra liða
þeirrar vísitölu.
3. Fullar vísitölubætur komi á lágmarkslaunin, en
sama krónutöluupphæð á þau laun, sem hærri
eru.
4. Aðgerðum til að skapa raunverulegt launajafn-
rétti kvenna og karla, m.a. með þvi að bæta
aðstöðu til atvinnuþátttöku.
5. Sem mestri samræmingu á kjörum allra laun-
þega varðandi orlof, vinnutíma og hvers konar
réttindi, sem ekki teljast til beins kaupgjalds.
6. Setningu nýrrar löggjafar um vinnuvernd í sam-
ræmi við sérstakar tillögur þingsins um það
efni.
7. Gagngerðri endurskoðun skattakerfisins í rétt-
lætisátt.
8. Eflingu félagslegra ibúðabygginga með láns-
kjörum, sem samrýmast fjárhagsgetu almenns
verkafólks.
9. Fullri framkvæmd á þeirri stefnu verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem mótuð var við gerð síð-
ustu kjarasamninga í málefnum lífeyrisþega.
208