Réttur - 01.10.1976, Side 12
Þetta var lif vrkafólksins, þegar A.S.f. hóf göngu sina: Verkakonur bera kol á bakinu allan liðlangan
daginn fyrir smánarkaup. — Málverk „Muggs“ — Guðmundar Thorsteinssonar —: „KOLABURÐUR I
í REYKJAVlK", — málað 1919.
er yfirleitt komin föst atvinna og uppsagnar-
fresmr, veikindadagar og slysatryggingar.
Daglaunamaðurinn fyrir daga samtakanna
var réttindalaus og gat ávalt átt á hættu að
komast algerlega á vonarvöl. Baráttan hefur
hins vegar tryggt verkamann nútímans fyrir
fyrstu skakkaföllum og lágmarks mannrétt-
indi eru tryggð.
Stofnendur Alþýðusambandsins settu
markið hátt þegar í byrjun, þó þeir væru
ekki virtir né hátt skrifaðir í samfélaginu.
Þeir urðu fyrir háði og spotti og taldir vera
„að reyna að æsa verkamenn til stéttarígs".
I dag eru þetta virtir brautryðjendur stórra
hugsjóna, menn er brutu ísinn og stigu fyrstu
skrefin til að gjörbreyta lífskjörum á íslandi.
Fyrir unga félagsmenn alþýðusamtakanna í
dag er örðugt að gera sér í hugarlund, hve
stóran þátt samtök launafólks eiga í fram-
farasögu 20. aldarinnar.
Félagsmenn Alþýðusambandsins á því
herrans árið 1976 fagna 60 ára afmæli í
samtökum sem eru voldugasta þjóðfélags-
aflið. Það er ASÍ, þar eð það hefur sannað
hvers „félagsskapur og samtök" eru megnug
í lífsbaráttu alþýðu.
TILVITNANIR:
’> Morgunblaðið, 2. febrúar 1916.
>= Dagsbrún, 12. janúar 1916.
212