Réttur - 01.10.1976, Page 13
Svikamylla yfirstéttarinnar!
Bandarískt launráð: Þjófalykill að
launum og sparifé
Á Alþýðusambandsþingi 1976 gerðu allir verklýðssinnaðir fulltrúar sér það Ijóst að
verðbólga og gengislækkanir voru vélráð yfirstéttar, sem svaraði hverri kauphækkun
með slíkum ráðstöfunum og græddi þrefalt á: 1) lækkaði kaupgjaldið, 2) skrifaði nið-
ur raungildi bankalána sinna og 3) hækkaði hinar miklu fasteignir sínar i verði. —
Þessari arðráns- og auðsöfnunaraðferð yfirstéttarinnar er einvörðungu hægt að mæta
með pólitískum aðgerðum, byggðum á stjórnmálavaldi sameinaðrar alþýðu. Þetta þarf
hverri verkalýðsfjölskyldu á íslandi að verða fullkomlega Ijóst áður en til skarar skríð-
ur í vetur eða vor. öll blöð verkalýðshreyfingarinnar þurfa að margendurtaka og skýra
þessar einföldu staðreyndir, svo hvert mannsbarn af alþýðustétt skilji.
Við birtum að þessu sinni nokkur línurit
til fyllri skýringar á þessu fyrirbrigði gengis-
lækkana og verðbólgu, sem yfirstéttin reynir
að telja fólki trú um að sé einskonar nátt-
úrulögmál, en ekki vísvitandi hefndaraðgerð-
ir hrokafullra drottna gegn þrælum, sem ger-
ast svo ósvífnir að heimta sinn rétt.
Línuritin sýna þróun kaupgetu tímakaups-
ins, — hvað fá mátti fyrir einnar klukku-
stundar vinnu á hverjum tíma undanfarin
rúm 60 ár.
Svo sem sjá má á fyrsta línuritinu fór
kaupgetan að lækka í fyrra stríði uns verka-
lýðurinn hóf baráttu sína með stofnun há-
setafélagsins og harðari sókn Dagsbrúnar og
svo stofnun A.S.I. Allt frá 1919 tekur kaup-
geta tímakaupsins að hækka jafnt og þétt
þar til í síðari hluta krepputímabilsins að
þjóðstjórnin grípur til kúgunarráðstafana
með lögum 1939 og 1940. (Kjararýrnun
vegna atvinnuleysis kemur ekki fram í þess-
um vísitölum, dagkaup hafnarverkamanns-
ins, sem hefur 10 smnda vinnu allt árið er
á þessu skeiði ca. 4500 kr. á ári, en meðal-
tekjnr hafnarverkamanns verða um 1500 kr.,
m. ö. orðum: Hann hefur að meðaltali vinnu
þriðja hvern dag).
Síðan kemur lífskjarabyltingin 1942—47.
Með skæruhernaðinum 1942 er kaupgeta
dagkaupsins meira en þrefölduð frá því
sem var 1916. En um leið er yfirstéttin með
pólitísku valdi verkalýðsins, fyrst og fremst
213