Réttur - 01.10.1976, Side 15
LÍNURIT: KAUPMÁTTUR TÍMAKAUPSINS
Á vinstri síðu línurit Ásmundar Stefánssonar hagfræðings A.S.I. — Hér að ofan línurit úr „Rétti“ 1969.
hins sigursæla og sterka Sósíalistaflokks,
hindruð í því að geta beitt gengislækkunum:
1942—44 er utanþingsstjórn og Alþingi,
sem ræður þá genginu, þorir ekki að breyta
því vegna sigra Sósíalistaflokksins, og 1944
—47 er Sósíalistaflokkurinn í ríkisstjórn og
getur hindrað allar gengislækkanir, sem
breska og bandaríska hervaldið vissulega ósk-
aði eftir, því kaupgjald hafnarverkamanns í
Reykjavík var að lokum orðið eins og hafn-
arverkamanns í New York (ca. 1,50 dollar,
eða rúmar 9 krónur, en dollarinn var þá
6.50).
Er afturhaldsstjórnin tók við 1947 beitti
hún fyrst lagaákvæðum til að lækka kaupið.
En síðan að gengið var að Marshallsamn-
ingnum og amerískt bankavald tók að sér
æðstu stjórn efnahagsmála á Islandi, lét það
auðvald „erkibiskup" sinn á Islandi fyrirskipa
á hvern hátt skyldi þaðan í frá brugðist við
kauphækkunum óþægs verkalýðs:
I gengislækkunarfrumvarpinu, sem amer-
íska valdið lét „helmingaskiptastjórn" Fram-
sóknar og Ihalds leggja fyrir Alþingi og
samþykkt var 20. mars 1950, var í senn fyr-
irskipað að hækka dollarinn úr 6.50 upp í
16.32 og að fyrirskipa Landsbankanum, sem
þá var og Seðlabanki að breyta gengi ís-
lenskrar krónu þegar breyting verði á kaup-
gjaldi. Með öðrum orðum: Ameríska valdið
fyrírskipaði ríkisvaldi íslenskra atvinnurek-
enda að svara hverri kauphcekkun með til-
215