Réttur - 01.10.1976, Blaðsíða 35
úruvernd og verkefnin framundan" (1971). Vanda-
mál þriðja heimsins hafa skipað mikið rúm, ekki
síst Ólafi Rafni að þakka, en „innlenda víðsjá"
annaðist Svavar Gestsson. Skal saga Réttarþennan
síðasta áratug ekki rakin, því sú saga er svo nærri
nútíma lesendum hans, þótt við höfum álitið rétt
að rifja upp ýmislegt frá fyrri tímum hans, er vakið
gæti áhuga hjá ungum nýjum lesendum og orðið
þeim að gagni.
En það er útgefendum Réttar Ijóst að nú er aftur
sá tími kominn að taka þarf á að nýju, breyta til,
auka fjölbreytni enn og fá fleiri til starfa en fyrr.
Vonast Réttur til þess að I þeim efnum verði
lesendur hans, sem borið hafa hann uppi með
áhuga sínum, fórnfýsi og tryggð öll þessi ár, enn
sú hjálparhella, sem geri hann jafnvel i enn ríkara
mæli en fyrr að því vopni verkalýðs og þjóðar í
baráttu fyrir sósialisma og þjóðfrelsi, sem hann
vill vera.
SKÝRINGAR:
V Sjá grein H. V. í Alþýðublaðinu 19. nóv. 1924,
tilvitnun i Rétti 1973, bls. 104.
2> Sjá nánar um þetta í greininni „Straumhvörf
sem K.F.I. olll," i Rétti 1970, bls. 170—176.
a) Bókin „Ættasamfélag og rikisvald í þjóðveldi
Islendinga" er ávöxturinn af þeim umþenkingum.
Kom út í Reykjavik 1954.
4) Kristinn Ólafsson: örn Arnarson, Minningar-
þættir. Rvík 1964. Bls. 73.
Kristín reit síðar söguna „Uppboðsdagur" i
Rauða penna 1936.
235