Réttur - 01.10.1976, Blaðsíða 40
flokksstarfmu. Er nm þá ályktun fjallað í
annarri grein þessa heftis.
EFLING OG FESTA
FLOKKSSKIPULAGS
Flokksráðinu var ljóst að koma yrði miklu
meiri festa og skipulag á Alþýðubandalagið
en verið hefur, ef það ætti að verða fært
um að gegna því hlutverki, sem þess bíður,
og til þess hefur það vaxandi hljómgrunn hjá
þjóðinni. Var því samþykkt einróma mjög
ýtarlegt álit flokksstarfsnefndar um starf-
semi flokksins á hinum ýmsu sviðum, jafnt
í flokksfélögunum, kjördæmisráðunum og
miðstjórninni sem í hinum ýmsu félagssam-
tökum og á opinberum vettvangi.
Inngangur nefndarálitsins hljóðar svo:
„Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins legg-
ur áherslu á, að gert verði skipulagt átak til að
efla starf á vegum flokksins á öllum sviðum á
næstunni, svo að hagnýttur verði sá góði hljóm-
grunnur, sem málstaður flokksins nú á langt
út fyrir raðir fyrri stuðningsmanna. Mesta á-
herslu leggur flokksráðsfundurinn á, að aðstaða
flokksmiðstöðvarinnar í Reykjavík verði bætt til
muna til vinnu m.a. að verkalýðsmálum, æsku-
lýðsmálum og fræðslumálum og tengslin efld
við flokkseiningar um land allt.
Jafnframt verði komið meiri festu á starf í
stofnunum flokksins og tryggð gagnkvæm og
eðlileg tengsl á milli þeirra til eflingar lýðræð-
islegu flokksstarfi."
☆ ★ -Ar
Þessi flokksráðsfundur sannar að takist
Alþýðubandalaginu að eflast áfram sem ört
vaxandi hreyfing, ekki síst í verkalýðs- og
starfsmanna-félögunum, en þroskast samtímis
og styrkjast sem vel skipulagður, sósíalistísk-
ur flokkur, þá er þess ekki langt að bíða að
það verði sá forustuflokkur í stéttabaráttu
alþýðu og þjóðfrelsisbaráttu Islendinga, sem
þjóð vorri ríður lífið á að eignast.
240