Réttur - 01.10.1976, Page 41
Fræðslu-
miðstöð
Alþýðu-
bandalagsins
stofnuð
Á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins
í nóvember s.l. voru samþykktar reglur
fyrir Fræðslumiðstöð flokksins og á ný-
afstöðnum miðstjórnarfundi var kjörin
stjórn miðstöðvarinnar.
Það var fyrir rúmu ári að flokksráðsfund-
ur samþykkti að skipa milliþinganefnd til
að undirbúa stofnun Fræðslumiðstöðvar.
Astæðan var sú að allt fræðslustarf innan
Alþýðubandalagsins hafði allt frá stofnun
flokksins 1968 verið fremur bágborið. Voru
flokksmenn sammála um að gera þyrfti átak
til að efla marxiska fræðslu og fræðslu um
þjóðfélagsmál almennt innan flokksins.
Nefndin sem kjörin var skilaði áliti á
flokksráðsfundinum 15. nóv. sl. Var reglu-
gerðin samþykkt með litlum breytingum frá
nefndinni. Reglugerðin fer hér á eftir, en
síðar verður greint frá skipulagningu fræðslu-
starfsins í flokknum, eftir að miðstöðin hefur
tekið til starfa.
REGLUGERÐ
um fræðslumiðstöð Alþýðubandalagsins
1. gr. Tilgangur:
Tilgangur fræðslumiðstöðvarinnar er að
stuðla að fræðslu um sósíalisma og íslenskt
þjóðfélag.
2. gr. Verkefni:
Fræðslumiðstöðin vinnur að markmiði
sínu m.a. á eftirfarandi hátt:
— Hún stuðlar að því að tiltæk séu á
íslensku fræðirit um marxisma og málefni
verkalýðshreyfingarinnar.
— Hún gefur út ritskrár um fyrrgreind
efni, leiðbeiningar um lestur slíkra rita og
annað þessu skylt lesefni eftir því sem ástæð-
ur þykja til hverju sinni.
— Miðstöðin útbýr námsefni til notkunar
í námshópum og leshringum um sósíalisma
og verkalýðsmál.
— Hún veitir flokksdeildum Alþýðubanda-
lagsins þjónustu og fyrirgreiðslu er teng-
ist fyrgreindum verkefnum. Þar á meðal hef-
ur fræðslumiðstöðin milligöngu um útvegun
námsefnis, námshópastjóra og fyrirlesara
vegna námskeiða eða annarrar fræðslustarf-
semi sem flokksfélögin gangast fyrir. Einnig
getur hún haft forgöngu um slíka starfsemi.
3. gr. Starfsaðstaða:
Fræðslumiðstöðin hefur bækistöð á aðal-
skrifstofu Alþýðubandalagsins og leggur
241