Réttur - 01.10.1976, Page 47
INNLEND znr
VÍÐSJÁ □X “
VIÐSKIPTAHALLINN NÆR HORFINN,
ÞJÓÐARTEKJUR HÆKKA
Rért fyrir áramót sendi Þjóðhagsstofnunin
út skýrslu um afkomu þjóðarbúsins árið
1976 og horfur fyrir árið 1977. Samkvæmt
þessari skýrslu er gert ráð fyrir að viðskipta-
hallinn 1976 hafi verið 3,6% af þjóðarfram-
leiðslu, en hann var 11—12% 1975. Áfyrstu
10 mánuðum ársins 1976 var vöruskipta-
jöfnuður 19 miljörðum króna hagstæðari en
á jafnlöngum tíma 1975. Þannig koma hin
bættu viðskiptakjör fram í afkomu þjóð-
arbúsins. Á fyrstu 10 mánuðum ársins 1976
jókst vöruútflutningur okkar um 16—18%
að magni til en um 38% ef reiknað er verð-
mæti hans í erlendri mynt. Á sama tíma
jókst vöruinnflutningur um 3% reiknað í
mynt, en 6—7% í magni. Verðmæti sjáv-
arafurða hækkaði um 22% á fyrstu 10 mán-
uðum sl. árs á föstu verðlagi.
Þrátt fyrir þennan utanaðkomandi bata
hefur skerðing kaupmáttar launa haldið á-
fram. Þannig telur Þjóðhagsstofnun að kaup-
máttur allra taxta hafi verið um 4% minni
á sl. ári, 1976, en var á árinu 1975. Og skal
þess þá getið að þá, í árslok 1975, taldi
verkalýðshreyfingin þurfa 30% kauphækk-
un til þess að ná kaupmættinum 1974.
HERNÁMSÁÆTLUN
ALUSUISSE
16. janúar birti Þjóðviljinn frásögn af
„áætlun integral” sem ALUSUISSE hafði af-
hent ríkisstjórn íslands til alvarlegrar um-
ræðu haustið 1974 eða strax og núverandi
ríkisstjórn tók við. I þessari áætlun, „her-
námsáætlun ALUSUISSE", er gert ráð fyrir
fjórum aðaláföngum:
1. áfangi hefur þegar verið samþykktur
og er að meginhluta kominn í framkvæmd.
Þar er um að ræða álverksmiðjuna í Straums-
vík eins og hún er nú, 75 þúsund tonna árs-
framleiðslu, og að auki 10 þúsund tonna
stækkun, sem samþykkt var á alþingi s.l vor.
2. áfangi gerir ráð fyrir stækkun álverk-
smiðjunnar í Straumsvík, fyrst um 40 þúsund
tonn, þriðji kerskálinn, síðan aftur 40.000
tonn. I næsta mánuði mun Gunnar Thor-
oddsen og erindrekar hans fara til Sviss til
þess að ræða sérstaklega um þennan áfanga
og þriðja kerskálann, en auk þess mun
þar í heild verða rætt um „áætlun integral."
3. áfanginn gerir ráð fyrir því að íslend-
ingar annars vegar og Alusuisse hins vegar
stofni með sér hlutafélag þar sem eignar-
hluti skiptist 50 : 50. Islendingar leggi fram
vatnsréttindi en ALUSUISSE réttindi til
báxítvinnslu í Afríku. Þetta hlutafélag, ALIS,
stofni síðan til annars hlutafélags, ALCONIS,
í félagi við aðra erlenda aðila, sem reisi ál-
verksmiðjur á Austurlandi og starfræki Aust-
urlandsvirkjun. Verksmiðjurnar framleiði
500.000 tonn af áli á ári og noti 8000 gíga-
vattstundir. Núverandi ríkisstjórn Islands
hefur þegar leyft ALUSUISSE að senda sér-
fræðinga til þess að rannsaka virkjunarval-
kosti á Austurlandi. Hefur sú ferð þegar
247