Réttur - 01.10.1976, Side 49
Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst hver
verður niðurstaða viðræðna íslenskra aðila
og EBE. Það gerir bretum þó erfitt fyrir í
þeim efnum að EBE-ríkin hafa öll — einnig
bretar — fært landhelgismörk sín út í 200
mílur. Það væri því í hróplegri andstöðu
við þá staðreynd ef bretar reyndu eftir sem
áður að fylgja kröfum sínum fram með of-
beldi. Komi hins vegar til þess að bretar fái
með samningi við íslensk stjórnvöld aðgang
að fiskimiðunum hér við land stafar það af
því einu að gerðir hafi verið í Osló sl. vor
leynisamningar sem þjóðin hefur ekkert feng-
ið um að vita.
Vaxandi fjöldi manna sem hugleiða þessi
mál vill nú ekki einasta hindra samninga
við breta um aðgang að fiskimiðum okkar;
andstaðan við gildandi samninga við belga
og vestur-þjóðverja um veiðiréttindi fer vax-
andi. Þess vegna krefjast þess æ fleiri að
samningum við þá verði sagt upp tafarlaust
— enda hafa þeir tekið þátt í útfærslu Efna-
hagsbandalagsins sjálfir.
Janúar 1977. — s.
Gengislækkun gegn kauphækkun
3. júlí 1948 undirntatii Bjarni Benediktsson utanrikisráðherra íslands Marshallsamninginn,
auðvitað án þess að utanrikismálanefnd eða Alþingi væri tilkvödd þá.
I 2. grein þess samnings var Island m. a. skuldbundið til þess að „koma á eða viðhalda
réttu gengi". Það var brátt auðséð að það voru amerisku auðdrottnarnir og útsendarar þeirra,
sem vissu hvað ,,rétt“ gengi var.
I gengislækkunarfrumvarpi þvi, er fulltrúi Bandarikjastjórnar lét rikisstjórnina leggja fyrir
Alþingi 1950 hljóðaði 2. grein þess svo:
„Landsbanka íslands er skylt að taka sérstaklega til athugunar gengis-
skráningu íslenskrar krónu þegar almenn breyting verður á kaupgjaldi önnur
en sú, sem kveðið er á um í þessum lögum.“
I frumvarpinu var gengi dollarsins, sem verið hafði 6.50 hækkað í 16.32 kr. Og samtímis var
sagt svo til berum orðum að síðan skyldi jafnan lækka krónuna ef kaupgjald hækkaði! —
Þetta fannst sumum of berort. „SVONA NOKKUÐ SEGIR MAÐUR EKKI, SVONA NOKKUÐ
GERIR MAÐUR“ — svo hljómar slóttugt ráð. Og rikisstjórnin lét 2. málsgrein falla við frekari
umræðu málsins, — en aðferðin, runnin undan rifjum amerísks auðvalds varð regla islenskrar
braskarastéttar og valdhafa siðan.
249