Réttur - 01.10.1976, Qupperneq 54
73% allra atvinnurekenda í Frakklandi
viðurkenna að þeir búist við sigri alþýðu-
fylkingarinnar 1978 og fari sér því hægt í
fjárfestingu. A árinu 1976 var fjárfesting
þeirra 5% minni en 1975, sem var mjög
slæmt ár hvað fjárfestingarhlutfall snerti.
Auðvaldskreppan, sem fer hægt og síg-
andi yfir þessi lönd, er farin að segja mjög
til sín í Frakklandi, svo fjármálamenn óttast
að það fari sömu leiðina og England og
Italía.
VÍETNAM
í skýrslu Kommúnistaflokks Vietnam fyrir
flokksþingið standa eftirfarandi setningar um
ástandið, hinn hræðilega arf, sem hetjuþjóðin
enn berst við, eftir hryðjaverkastríð ameríska
auðvaldsins:
„Enn eru 150.000 smálestir af sprengjum
og fallbyssukúlum hér og hvar, sem ekki
hafa sprungið. Daglega deyja menn af þeirra
völdum. Miljónir hektara af hrísgrjónaekr-
um, görðum og skógum eru eyðilagðar af
sprengjum og eiturefnum; sífellt vofa yfir
sjúkdómar af völdum eitursins, sem varpað
var niður, og heimta fórnir."
Fimmáraáætlunin, er hófst 1976, felur í
sér að auka skuli þjóðarframleiðsluna um
14,5—15,5% á ári fram til 1980, — það
skuli vinnast þrjár miljónir hektara af akur-
lendi og rækta upp eina miljón hektara af
skógi. Rauntekjur eiga að hækka um 30%.
Það er auðséð að þessi hetjuþjóð ætlar að
berjast af sama dugnaði og stórhug í friði
sem stríði.
BRASILÍA
Brasilía er það land, sem Bandaríkjastjórn
hefur sérstaka velþóknun á. Þar ríkir það
frelsi fyrir fjármagnið, sem boðbera hinnar
„frjálsu verslunar" dreymir um. Þar fær auð-
magnrð að njóta sín án allra „fjötra" verka-
lýðssamtakanna, — því þar hafa nú hers-
höfðingjar, er völdum rændu verið einráðir
í meir en áratug, og samið sig í öllu að vilja
auðvaldsherranna og hljóta að launum auð
og embætti og ofsatekjur í hinum „frjálsu"
fyrirtækjum herra sinna. Og frægð „frelsis-
ins" í Brasilíu er básúnuð út um víða veröld,
til að draga auðmenn að hinu hráefnaríka
landi.
„Við fundum land þar sem engin verkföll
eru, þar sem engir samningar eru gerðir við
verklýðsfélög, þar sem engar frjálsar kosn-
ingar eru, — við fundum himnaríki" —
hrópaði fagnandi ítalskur atvinnurekandi,
er hann uppgötvaði ástandið í Brasilíu.
Og hvernig er ástandið hjá íbúum lands-
ins?
Brasilía er „skipulagt helvíti", — svo
hljómar dómur þarlends lögfræðings, fyrr-
varandi kaþólsks þingmanns, Marcio Mor-
eira Alves.
Hinir drottnandi hershöfðingjar eru
grimmdarseggir, haldnir stórmennskubrjál-
æði.
Mörg hundruð manna eru myrt hvert ár
af „dauðasveitum" þeirra. Indíánunum eru
jæir að útrýma á hræðilegan hátt, — eins
og oft hefur verið sagt frá hér í „Rétti".
Barnadauðinn vex hröðum skrefum. 1960
fæddust 102 börn af þúsund andvana, 1970
voru það 130. I einu þorpi hjá Recife, þar
sem íbúarnir hafa framfærslu sína af launa-
vinnu við sykurmyllu, lifðu aðeins sex af 37
börnum, er fæddust 1970.
Helmingur þjóðarinnar sveltur heilu
hungri. Ellefu miljónir (af 107 miljónum)
íbúanna eru geðveikir. Ein miljón manna
þjáist af holdsveiki. Og heilbrigðisstofnun
Sameinuðu þjóðanna reiknar með því að 300
þtisund íbúanna sýkist árlega af berklum.
254