Réttur - 01.10.1976, Síða 55
„Hvað veldur öllum glæpunum í landi
voru, sem virðast vera algerlega fullkomnir
í grimmd sinni?" — svo spyr biskuparáð-
stefna Brasilíu ríkisstjórnina í opinberu hirð-
isbréfi í nóvembermánuði.
Hershöfðingjastjórnin beitir samskonar
ráðum í efnahagspólitík og íslenska ríkis-
stjórnin, sem kemst bara ekki eins langt og
hin vegna „fjötranna", sem verkalýðshreyf-
ingin leggur á „frelsi" gæðinga hennar. —
Báðar dreymir um hið sama: að fá erlenda
auðmenn til að „taka að sér" rekstur og hag-
nýtingu auðlindanna. Brasilíustjórn er bara
sterkari og lætur drauminn rætast:
Gjaldeyrir Brasilíu „Cruzeiro" var felldur
14 sinnum 1975, en sextán sinnum 1976.
Verðbólgan var 20% árið 1975, en fór yfir
50% 1976.
Fátæklingar eru í Brasilíu 80% þjóðar-
innar og meginþorri þeirra verður að lifa
af launum, sem eru 126—160 þýsk mörk,
þ.e. milli tíu og þrettán þús. ísl. kr. á mánuði.
1970 höfðu 40% íbúanna aðeins 8%
þjóðarteknanna. Vinnulaunin í Sao Paulo,
ríkasta héraði Brasilíu, hafa nú aðeins þriðj-
ung þeirrar kaupgetu, sem þau höfðu fyrir
valdaránið 1958. Og nú fá þau 15% íbú-
anna, sem reiknast til millistéttar, líka að
finna fyrir verðbólgunni, sem ríkisstjórnin
skipuleggur.
En útlenda auðvaldið kann að meta svona
pólitík:
Meir en tveir þriðju aðaliðnaðar Brasilíu
eru í höndum útlendra auðmanna.
Og kannast menn við það fyrirbrigði að
erlendu skuldirnar vaxi:
28 miljarðar dollara er nú skuld Brasilíu
erlendis. „Hver brasilíumaður fæðist með
230 dollara skuld" sagði einn þingmaðurinn.
Kreppa auðvaldsskipulagsins segir til sín,
þar sem auðvaldið hefur fullt „frelsi": Inn-
anlandsmarkaðurinn er lítill, af því launin
eru lág, — og erlendis er kreppuástand, sem
Brasilía fær að kenna á. Og það eru tekin
erlend lán til að jafna viðskiptahallann, land-
ið og auðæfi þess ofurseld erlendum auðfé-
lögum — og höft og bönn gagnvart íbúum
landsins aukin. Afleiðingin er að sögu „við-
skiptaundurins" er lokið, hagvöxmrinn var
1975 aðeins 4%, 1976 líklega enginn.
Skuldirnar vaxa, atvinnuleysið og neyðin
eykst. Hið óhefta auðvaldsskipulag sýnir sitt
sanna andlit. En aðilinn, sem einn gemr ger-
breytt þessu ástandi til batnaðar, alþýðan
sjálf, er í fjötrum.
(Staðreyndir eftir „Spiegel" 3. jan. 1977).
255