Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 4

Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 4
4 14. mars 2009 LAUGARDAGUR VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 21° 13° 14° 11° 6° 15° 14° 12° 6° 7° 25° 13° 12° 28° 3° 13° 18° 3° 2 1 Á MORGUN 5-13 m/s MÁNUDAGUR 5-10 m/s 4 1 2 2 6 6 7 4 4 1 21 13 8 13 9 8 6 9 9 14 15 1 1 33 1 -3 2 02 DAGURINN Í DAG Eins og fram kemur á forsíðu er víða storm- ur á landinu núna í morgunsárið, síst þó á Austurlandi. Vindur gengur víðast niður eftir hádegi en vex þó að nýju sunnan til seint í dag. Þá er mjög mynd- arlegt úrkomusvæði yfi r landinu núna í fyrstu, snjókoma eða slydda en rigning syðst. Þetta úrkomuloft gengur útaf landinu eftir hádegi og þá styttir víða upp en þó vex úrkoma aftur sunnan til síðar í dag. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur Missagt var í dálkinum Frá degi til dags í gær að frambjóðandi Vinstri grænna hefði sagt í þættinum Kross- götum á Rás 1 að frambjóðendur í prófkjörum þyrftu að vaða blóð upp að mitti til að ná árangri. Rétt er að það var Auður Styrkársdóttir stjórn- málafræðingur sem lét þessi orð falla í þættinum. LEIÐRÉTTING Í myndatexta með frétt um geymslu- mál safna og Íslenskrar tónverkamið- stöðvar í gær var sagt að starfsmenn ÍT væru að pakka niður handritum. Það er rangt. Á myndinni eru Brynja Guðmundsdóttir eigandi og Gunn- hildur Manfreðsdóttir, starfsmaður Gagnavörslunar ehf., sem önnuðust frágang handritanna. EFNAHAGSMÁL „Niðurstaðan væri að þið mynduð enda með eitthvað sem yrði mjög dýrt fyrir ríkisstjórnina, en ná litlum árangri,“ sagði Mark Flanagan, yfirmað- ur sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á Íslandi, um efnahagstillögu Framsóknarflokks um flatan tuttugu prósenta niðurskurð á skuldum. Spurður hvort slík niðurfelling skulda væri mögu- leg sagði Flanagan: „Í stuttu máli, nei. Það væri mjög vond stefnuákvörðun og ég held hún yrði ekki tekin.“ Hann sagði að þeir sem ekki þyrftu á því að halda myndu hagnast verulega á þessari leið, en þeir sem þyrftu á aðstoð að halda fengju hana ekki. „Byggt á þeirri greiningu [á skuldum og skuldurum] sem Seðlabankinn hefur gert, tel ég að enginn færi þessa leið.“ Aðspurður sagðist Flanagan ekki hafa áhyggjur af því að kosningar og pólitískur órói myndi hafa áhrif á samstarf AGS og Íslands, þó að einhver seinkun yrði. Áfram myndi AGS styðja ný stjórnvöld til góðra verka. Þá fylgi kosningum ávallt kosningaloforð og það væri rúm til nýrra útgjalda, ef sparnaður í ríkis- fjármálum kæmi á móti. „Ég tel að það sé nokkuð góð samstaða um góðar stefnur,“ sagði Flanagan. - ss Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn um framsóknarniðurfellingu skulda: Slæmur valkostur sem enginn velur FORYSTUMENN FRAMSÓKNAR Tillaga flokksins um tuttugu prósenta niðurfelling skulda er ekki möguleg að mati AGS. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL „Þróun efnahagslífs- ins hefur, í grófum dráttum séð, fylgt því sem við spáðum í upp- hafi samstarfsins,“ sagði Mark Flanagan, yfirmaður sendinefnd- ar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á Íslandi, á fundi með blaðamönnum í gær. „Við vonum enn að efnahagslífið muni snú- ast til betri vegar síðar á þessu ári. Fyrir því eru nokkur jákvæð merki. Verðbólgan hefur náð hámarki og krónan hefur verið stöðug í nokkurn tíma.“ AGS spáir nú aðeins meiri sam- drætti í þjóðarframleiðslu en við upphaf samstarfsins, eða 10 til 10,5 prósenta samdrætti í stað 9,6. Þá er aðeins meira atvinnu- leysi nú spáð, eða átta til tíu pró- sent, í stað 5,7 prósenta. „Það gæti náð hámarki seint á þessu ári eða snemma á því næsta,“ sagði Flanagan. Fundurinn var haldinn í tilefni af því að sendinefndin, sem hing- að kom fyrir fyrstu endurskoð- un lánasamnings Íslands og AGS, var að halda af landi brott eftir um tveggja vikna dvöl. Endurskoðuninni hefur ekki verið lokið, þar sem ekki er komin niðurstaða um tæknileg útfærslu- atriði, en Flanagan sagði að henni ætti að ljúka fljótlega, vonandi á næstu vikum. Eftir að endurskoð- uninni lýkur mun skýrsla sendi- nefndarinnar vera lögð fyrir framkvæmdastjórn AGS og verði hún samþykkt mun sjóðurinn greiða út annan hluta lánsins. „Í endurskoðun fjármálakerf- isins verðum við að sjá framfar- ir,“ sagði Flanagan. Hann sagði virkt bankakerfi eina af forsend- um þess að hægt væri að losa um gjaldeyrishöftin. Til að banka- kerfið verði aftur virkt þyrfti að endurfjármagna bankana, en það væri ekki nóg því ýmis atriði í efnahagsreikningi þeirra þyrfti að laga. Þá myndi vinnu sjóðs- ins um ráðleggingar hvað varðar reglugerðir og eftirlit með banka- kerfinu ljúka nú í lok mánaðar. „Ég geri ráð fyrir að þar verði að finna ráðleggingar sem verða ræddar á næstu mánuðum,“ sagði Flanagan. Hann sagðist virkilega vona að bankakerfið yrði aftur komið í lag um mitt þetta ár. Þrátt fyrir að ekki væru heppi- legar aðstæður nú til að losa um gjaldeyrishöftin, meðal annars vegna ástandsins á alþjóðavísu, sagði hann að rúm væri fyrir stýrivaxtalækkanir, en það væri Seðlabankans og peningastefnu- nefndar að ákveða slíkt. svanborg@frettabladid.is Horfur í efnahagslífi gætu batnað í árslok Fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir hægt að lækka stýrivexti, en ekki leggja af gjaldeyrishöft. Framfarir í endurreisn bankanna séu nauðsynlegar. Efnahags- lífið gæti snúist til betri vegar síðar á þessu ári. Meira atvinnuleysi en spáð var. MARK FLANAGAN Segir rúm til að lækka nú stýrivexti, ákveði Seðlabankinn það. Losun fjármálahafta sé þó ekki raunhæf sem stendur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL „Við teljum að for- sendur séu fyrir því að lækka stýrivexti niður í 10 prósent svo okkur þykir það heldur lítil lækkun sem þarna um ræðir,“ segir Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, um málflutning Marks Flanag- an, fulltrúa Alþjóðagjald- eyrissjóðsins. Og þó hann hafi sagt að afnám gjaldeyrishafta væru í sjónmáli vill Vilhjálmur aðhafast strax í þeim efnum. „Okkur hefur alltaf þótt þessi höft vera of víðtæk og hefðum heldur kosið að þau tækju einungis til þeirra útlendinga sem eiga skuldabréf í íslenskum krónum.“ - jse Samtök atvinnulífsins: Vilja stýrivexti í 10 prósent VILHJÁLMUR EGILSSON EFNAHAGSMÁL „Þetta voru jákvæðir punktar sem þarna komu fram en þetta er þó nóg til að fleyta okkur í gegnum þetta,“ segir Gylfi Arnbjörns- son, forseti ASÍ. „Gjald- eyrissjóður- inn er í raun að lýsa því yfir að hann telji allar forsend- ur vera fyrir því að lækka vexti. Við höfum verið þeirrar skoðunar nokkuð lengi. En við teljum einn- ig að leiðin til að skapa traust sé að gefa út að stjórnvöld hyggist sækja um aðild að Evrópusam- bandinu og taka upp evruna.“ - jse Alþýðusamband Íslands: Góð tíðindi en meira þarf til GYLFI ARNBJÖRNSSON PRÓFKJÖR OG FORVAL UM HELGINA Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík, Suðvestur, Suður, Norðaustur Samfylkingin Reykjavík, Suðvestur Vinstrihreyfingin grænt famboð Suðvestur, Norðvestur (kjördæmis- ráðsfundur Framsóknarflokkurinn Norðaustur, Norðvestur* *fór fram í gær og úrslit kynnt í dag STJÓRNMÁL Fjöldi prófkjara og forvala fer fram um helgina og munu efstu sæti á framboðs- listum Samfylkingar, Vinstri grænna og Framsóknar liggja fyrir í öllum kjördæmum eftir helgi. Sjálfstæðismenn munu þá aðeins eiga eftir að ganga frá efstu sætum á sínum lista í Norð- vesturkjördæmi. Um helgina fer einnig fram landsþing Frjáls- lynda flokksins þar sem kosið verður um formann flokksins. - jse Alþingiskosningar: Listarnir skýr- ast um helgina Í endurskoðun fjármála- kerfisins verðum við að sjá framfarir. MARK FLANAGAN ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐNUM BELFAST, AP Lögreglumenn og stjórnmálamenn víðs vegar að af Írlandi söfnuðust saman í bænum Banbridge, suðvestur af Belfast á Norður-Írlandi, í gær til að vera viðstaddir jarðarför lögreglu- manns sem var myrtur á mánu- dagskvöld. Klofningshópur úr írska lýðveld- ishernum hefur lýst morðinu á lög- reglumanninum Stephen Carroll á hendur sér. Pólitískir leiðtogar á Írlandi hafa sameinast í fordæm- ingu á ódæðinu. Í fyrsta sinn í sög- unni sendi stjórnmálaflokkurinn Sinn Fein, sem hefur verið tengd- ur írska lýðveldishernum, fulltrúa sinn í jarðarför lögreglumanns. - kg Ófriður á Norður-Írlandi: Leiðtogar á Ír- landi sameinast GENGIÐ 13.03.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 177,8586 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 112,33 112,87 157,53 158,29 144,76 145,58 19,418 19,532 16,415 16,511 13,09 13,166 1,1441 1,1507 165,56 166,54 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.