Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 6
6 14. mars 2009 LAUGARDAGUR treystum grunninn – tryggjum velferð Kæru sjálfstæðismenn Það er til fyrirmyndar hvernig við höfum tekið höndum saman í borgarstjórn Reykjavíkur undanfarna mánuði við lausn þeirra erfiðu verkefna sem við erum að takast á við. Ég vil flytja þá reynslu með mér yfir í landsmálin. Kosningaskrifstofa Glæsibæ, sími 618 4469 Prófkjör Sjálfstæðisflokksins verður 13.-14. mars www.jorunn.is Jórunn Frímannsdóttir 2. sæti STERKA KONU Í FORYSTU! www.olofnordal.is Kjósum Ólöfu Nordal í 2.-3. sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna 13.-14. mars 2009 Verið velkomin á kosningaskrifstofu mína að Laugavegi 178, 4. hæð. Sími 840 6464 - Opið frá 14-21. Námskeið á vegum Endurmenntunar LbhÍ Notkun varnarefna í landbúnaði og garðyrkju Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem vilja öðlast réttindi til að kaupa og nota efni í X og A hættufl okkum. Kennarar: Sigurgeir Ólafsson Matvælastofnun, Sigríður Kristjánsdóttir Umhverfi sstofnun, Guðmundur Halldórsson Landgræðslu ríkisins, Halldór Sverrisson LbhÍ /Skógrækt ríkisins, Grímur Ólafsson Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar og Kópavogs, Jón Guðmundsson LbhÍ, Magnús Ágústsson Bændasamtökum Íslands, Svava Þórðardóttir Háskóla Íslands, Sigríður Jansen Umhverfi sstofnun, Jóhannes Helgason Vinnueftirliti ríkisins, Helgi Jóhannesson garðyrkjukandídat, Hjalti Lúðvíksson Frjó Tími: 23.- 24. mars kl. 9:00-16:00 hjá LbhÍ í Reykjavík Allar nánari upplýsingar má fi nna á www.lbhi.is/namskeid SKRÁNINGARFRESTUR ER 17. MARS, HÆGT ER AÐ SKRÁ SIG Á ENDURMENNTUN@LBHI.IS EÐA Í SÍMA 433 5000 SKOÐANAKÖNNUN 44,2 prósent segj- ast vilja að Bjarni Benediktsson verði næsti formaður Sjálfstæðis- flokksins. Næstflestir eða 29,5 prósent vilja að Þorgerður Katr- ín Gunnarsdóttir verði næsti for- maður flokksins. Nokkur kynjamunur er á stuðn- ingi við Bjarna og Þorgerði. 51,7 prósent karla vill að Bjarni verði næsti formaður, en 35,8 prósent kvenna. 20,0 prósent karla vilja hins vegar að Þorgerður Katr- ín verði næsti formaður, en 40,2 prósent kvenna. Hönnu Birnu Kristjánsdótt- ur nefna 7,6 prósent. 5,5 prósent nefna Kristján Þór Júlíusson og sama hlutfall vill að Illugi Gunn- arsson verði næsti formaður. 3,9 prósent vilja að Guðlaugur Þór Þórðarson verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Ef einungis er litið til kjósenda Sjálfstæðisflokksins segjast 55,7 prósent þeirra vilja að Bjarni verði næsti formaður, 23,7 pró- sent vilja Þorgerði Katrínu í for- mannssætið og 6,2 prósent Illuga Gunnarsson. Rúm fjögur prósent nefna Hönnu Birnu og rúm þrjú prósent styðja Guðlaug og Kristj- án Þór hvorn. Hringt var í 800 manns mið- vikudaginn 11. mars. Spurt var: Hver vilt þú að verði næsti for- maður Sjálfstæðisflokksins. 54,3 prósent tóku afstöðu. - ss Skoðanakönnun um fylgi við formann í Sjálfstæðisflokknum: Flestir vilja Bjarna Benediktsson ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra las upp forsetabréf á Alþingi í gær um þingrof 25. apríl og þingkosningar sama dag. Hún sagði jafnframt að þingið myndi starfa áfram þar til öll brýn mál hefðu verið afgreidd. Geir H. Haarde, formaður Sjálf- stæðisflokksins, sagðist ekki gera athugasemd við ákvörðun um þing- rof, en gagnrýndi hins vegar að þingið ætti að starfa jafnvel vikum saman eftir þá tilkynningu. Geir sagði að stjórnmálaflokkar þyrftu tíma til að undirbúa kosn- ingar og benti á að heimild væri í lögum til að láta þing koma saman á milli þingrofstilkynningar og kosn- inga til þess að unnt sé að bregð- ast við óvæntum aðstæðum. „Það er ekkert slíkt yfirvofandi núna sem vitað er um,“ sagði Geir. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagðist ekki hafa áhyggjur af forminu eins og sakir stæðu. „Áhyggjur mínar snúa að íslensku samfélagi, að íslenskum almenningi og hvernig honum reið- ir af,“ sagði hann og lagði áherslu á að brýn mál yrðu kláruð áður en þingi yrði frestað. Hófstillt kosn- ingabarátta væri við hæfi við þess- ar aðstæður. Birkir Jón Jónsson, varafor- maður Framsóknarflokksins, og Guðjón Arnar Kristjánsson, for- maður Frjálslyndra, sögðu báðir mikilvægt að afgreiða frumvörp um stjórnarskrárbreytingar og persónukjör fyrir kosningar. - sh Formlega tilkynnt um kosningar til Alþingis 25. apríl en þing starfar þó áfram: Deilt um hvenær fresta skal þingi FORSETABRÉF LESIÐ Jóhanna las upp bréf frá forseta Íslands um þingrof 25. apríl. FRÉTTABLAÐIÐ / GVA NÆSTI FORMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS Bjarni Benediktsson 44,2% Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 29,5% Hanna Birna Kristjánsdóttir 7,6% Illugi Gunnarsson 5,5% Kristján Þór Júlíusson 5,5% Guðlaugur Þór Þórðarson 3,9% Aðrir 3,7% SKV. KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 11.03.´09 ATVINNUMÁL Mörg hundruð Íslend- ingar voru á kynningarfundi Vinnumálastofnunar og kanadíska sendiráðsins á atvinnutækifærum í Kanada í Kennaraháskólanum í gær. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði á fund- inum að atvinnuleysi mældist nú níu prósent og það væri meira en nokkurn tímann hér á landi. „Atvinnuleysi eykst hraðar en nokkurs staðar. Aukningin nálgast heimsmet,“ sagði Gissur og benti á að níu prósenta atvinnuleysi væri ástand sem þjóðin gæti ekki sætt sig við. Á fundinum kom fram að starfs- menn vantar í 38 starfsgreinar víðs vegar um Kanada en þó fyrst og fremst í Manitoba-fylki. Það geti tekið hálft til eitt ár að finna starf, fá tilskilin leyfi frá kanadískum yfirvöldum og flytja. Óðinn Hugi Ágústsson múrari var á fundinum. Hann hefur verið atvinnulaus í rúmlega fjóra mánuði og sér ekki að það fari að breytast. Hann hefur verið að kanna mögu- leikana á að flytja til Kanada þar sem erfiðlega hefur gengið að fá verkefni hér á landi. Óðinn hefur komist að raun um að hann getur fengið vinnu á svæði sem er á mörkum Ontario og Manitoba. „Ég gæti farið þangað í dag ef ég hefði atvinnuleyfi og fjármagn til að koma mér út. Ég hef vinnu úti og þá er bara spurningin hvort ég sé mér fært að fara og þá hvernig,“ segir hann og kveðst hafa komið á fundinn til að „kanna hvort maður getur fengið hjálp við að flytja út og koma sér fyrir eða hvort maður þarf að gera allt upp á eigin spýt- ur“. Óðinn Hugi á dóttur úti á landi og segir að hún sé það eina sem bindi hann við Ísland. Það sé hins vegar fórn sem hann verði að færa flytji hann utan. „Það er annaðhvort að vera í sömu sporunum hérna eða breyta eitthvað til. Ég sé ekki að það breytist neitt hér,“ segir hann. Garðar Smári Vestfjörð bygg- ingameistari telur að það sé vel skoðandi að flytja til Kanada en hann hefur rekið eigið fyrirtæki og verið atvinnulaus frá því um jólin. „Ég ætla að skoða upplýsing- arnar betur,“ segir hann og telur tungumálið kost við Kanada. „Ég hef komið til Kanada og mér finnst landið mjög fallegt.“ Garðar Smári býr með syni sínum sem byrjar í háskóla í haust. Hann telur hugsanlegt að sonur- inn flytji með sér utan ef af verð- ur. „Við erum opnir fyrir öllu.“ ghs@frettabladid.is Atvinnuleysi eykst hraðast á Íslandi Atvinnuleysi eykst svo hratt á Íslandi og á svo skömmum tíma að það nálgast heimsmet, að sögn forstjóra Vinnumálastofnunar. Hundruð Íslendinga sóttu kynningu um atvinnutækifæri í Kanada. „Ég hef vinnu úti,“ segir fundargestur. NÁLGAST HEIMSMET Mörg hundruð Íslendinga sóttu kynningarfund um atvinnutækifæri í Kanada. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði á fundinum að atvinnuleysi ykist svo hratt hér á landi að það nálgaðist heimsmet. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hefur þú stundað sjósund? Já 10,4% Nei 89,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga þingmenn að starfa fram að kosningum frekar en að fara í kosningabaráttu? Segðu skoðun þína á Vísi.is STJÓRNMÁL Alþingismaðurinn Karl V. Matthíasson hefur sagt sig úr Samfylkingunni og gengið til liðs við Frjálslynda flokkinn. Í til- kynningu um málið segir hann ástæðuna vera þá að skoðanir hans á sjávarútvegsmálum eigi betri hljómgrunn í Frjálslynda flokknum en í Samfylkingunni. Karl sóttist eftir öðru sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Hann hafn- aði í fimmta sæti en færðist upp í það fjórða vegna kynjakvóta. Karl segir laka útkomu í prófkjörinu skýrast af því að áherslur hans í sjávarútvegsmálum eigi ekki upp á pallborðið í flokknum. - sh Karl V. Matthíasson: Úr Samfylkingu til Frjálslyndra KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.