Fréttablaðið - 14.03.2009, Page 13
LAUGARDAGUR 14. mars 2009
Bandaríski svikahrappurinn Bern-
ard Madoff játaði brot sín þegar
réttað var í máli hans í New York í
Bandaríkjunum á fimmtudag.
Madoff viðurkenndi að hafa svik-
ið viðskiptavini verðbréfafyrir-
tækis sem hann rak í tæpa hálfa
öld með þeim afleiðingum að þeir
töpuðu 65 milljörðum Bandaríkja-
dala, jafnvirði tæpra 7.400 millj-
arða íslenskra króna.
Þetta er umsvifamesta fjár-
svikamál sögunnar sem einstakl-
ingur stendur á bak við.
Saksóknarar rannsaka nú hvort
eiginkona Madoffs, synir hans og
samstarfsfólk hafi tekið þátt í svik-
unum, að sögn Associted Press-
fréttastofunnar.
Dómur fellur um miðjan júní og
þykir líklegt að hann hljóti lífstíð-
ardóm.
Fjöldi fokillra viðskiptavina
Madoffs beið hans við dómshús
borgarinnar en vopnaðir verðir
gættu hans.
Bloomberg-fréttaveitan segir
svo geta farið að væntanlegir
samfangar Madoffs setji hann
á bás með þeim sem sök eiga á
fjármálakreppunni og því geti
vist hans orðið fremur óbærileg.
- jab
Á LEIÐ Í STEININN Á teikningunni má sjá
löggæslumenn leiða Bernard Madoff í
járnum úr réttarsalnum á fimmtudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Réttað í máli
fjársvikahrapps
GÆSLA VIÐ DÓMSHÚSIÐ Verðir með alvæpni gættu þess að reiðin syði ekki upp úr
hjá fyrrverandi viðskiptavinum Bernard Madoffs þegar réttað var í máli hans í fyrra-
dag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tryggjum Jóni Gunnarssyni 3. sætið í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi í dag.
www.jongunnarsson.is
Jón Gunnarsson
Alþingismaður
Í dag fer fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í SV-kjördæmi og hvet ég alla
flokksmenn til þess að nýta rétt sinn og taka þátt. Þannig tryggjum við
best lýðræðið og við frambjóðendur fáum nauðsynlegt umboð til þeirra
mikilvægu verka sem framundan eru.
Kjörstaðir verða opnir frá kl. 09-18 í dag en hægt er að kjósa í húsnæði
Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi.
Í Hafnarfirði er kosið í Víðistaðaskóla og á Álftanesi í nýja Vallarhúsinu.
Opið hús verður á kosningaskrifstofu minni í húsi Kraftvéla að Dalvegi 6
í Kópavogi á meðan kjörstaðir eru opnir. Heitt á könnunni.
Manchester United - Liverpool í beinni á risaskjá.
Jói Fel verður á grillinu á milli kl. 12-14. Allir velkomnir.
Þitt atkvæði - þitt val
– nýtum atkvæðisréttinn