Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 36
Boðið er upp á fjölda annarra
rétta, átta til níu tegundir af salati,
ferska fiskrétti, alls kyns eggja-
rétti auk hefðbundins morgun-
verðarhorns með ristuðu brauði
og áleggi.
„Svo er smoothie vinsæll hjá
öllum,“ segir Stefán en hann er
búinn til úr skyri, ferskum berjum
og klaka, og borinn fram í smekk-
legu staupi.
Stefán segir algengt að fjöl-
skyldur og hópar mæti í dögurð-
inn og er þar aldurinn afstæður.
„Til okkar kemur fólk frá tveggja
ára og upp í áttrætt,“ segir Stef-
án glaðlega en á virkum dögum er
Nítjánda hádegisverðarstaður.
Klassískt með nýjum áherslum
Á veitingastaðnum Vox á Hilton
Hotel er boðið upp á sígildan sæl-
keramorgunverð en þó með
nýstárlegum áherslum eins
og matreiðslumönnum
staðarins eru einum lagið.
„Við bjóðum til að mynda
upp á girnilega gulrótar-
og hnetuböku, en setjum
út í hana fræ og hnetur
og svo kókosmjólk og
rjóma í staðinn fyrir
rjóma og egg og beikon
eða skinku sem er yfir-
leitt notað til að bragðbæta hana,“
bendir Sigurrós Pálsdóttir, en hún
starfar á Vox.
Sigurrós tekur fram að með bök-
Stefán I. Svansson kokkur á Nítjándu
segir gesti staðarins á öllum aldri.
DÖGURÐUR Á NÍTJÁNDU
SKYR SMOOTHIE
300 g skyr
100 ml mjólk
50 g jarðarber
20 g hindber
20 g bláber
20 g flórsykur
Allt sett saman í blandara og
blandað vel saman. Skreytt með
myntulaufi og fersku hindberi.
SÚKKULAÐIKAKA
TURNSINS
500 g súkkulaði
200 g smjör
200 g sykur
8 stk. egg
Smjör og súkkulaði brætt saman
yfir vatnsbaði, eggjum og sykri
þeytt vel saman. Súkkulaðiblönd-
unni blandað varlega saman við
eggin og sykurinn, sett í form og
bakað við 175 gráður í 15-20 mín.
Borið fram með þeyttum rjóma
eða ís.
EGG BENEDIKT
Fyrir fjóra
4 stk. egg
½ bolli borðedik
4 bollar vatn
Salt og pipar
Vatn og edik hitað að suðu, eggin
brotin varlega útí pottinn og látin
vera í ediksvatninu í 7 mínútur. Þá
eru eggin veidd upp úr og haldið
heitum.
HOLLANDAISE-SÓSA
300 g smjör
3 stk. eggjarauður
1 msk. hvítvínsedik
Salt og pipar
Þeytið eggjarauður yfir volgu
vatnsbaði. Bræðið smjörið, hellið
varlega út í. Þeytið vel saman
allan tímann. Athugið að smjörið
má ekki vera of heitt. Kryddið til
með hvítvínsediki, salti og pipar.
Berið fram á smjörsteiktu brauði
og steiktri skinku.
MORGUNVERÐARVEISLA AÐ
HÆTTI VOX
AMERÍSKAR PÖNNUKÖKUR
220 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 tsk. flórsykur
250 ml mjólk
60 g smjör
2 stk. egg
Hrærið saman eggjarauðum,
smjöri og mjólk. Sigtið þurrefni
saman í skál og hellið mjólkur-
blöndunni smátt og smátt saman
við. Stífþeytið eggjahvíturnar og
blandið þeim varlega í deigið.
Berið fram með hlynsýrópi, berj-
um, hnetusmjöri, beikoni eða bara
íssósunum.
MÚFFUR MEÐ HVÍTU SÚKKU -
LAÐI OG HINDBERJUM
Smjör 75 g
Sykur 2,5 dl.
Egg 2 stk.
Sýrður rjómi 18% 3 dl
Lyftiduft 1,5 tsk.
Hveiti 4,5 dl
Kakó 2 msk.
Hindber 125 g
Hvítt súkkulaði 125 g
Hrærið saman sykri og smjöri.
Setjið eggin eitt í einu og síðan
sýrða rjómann. Sigtið þurrefnin
út í, hrærið saman. Brytjið hvíta
súkkulaðið gróft. Blandið hind-
berjum og súkkulaði varlega
saman. Bakist í múffuformum 30
mín. við 180 gráður ca. 20 stk.
MELÓNU- OG
TRÖNUBERJASKOT
Trönuberjasafi 1 l
Lime 2 stk.
Hunangsmelóna ca. 1/4
Vatnsmelóna ca 1/4 klaki
Skerið utan af melónunum og
GIRNILEGAR UPPSKRIFTIR FRÁ NÍTJÁNDU OG VOX
Súkkulaðikakan á
Nítjándu er fast-
ur punktur í hlað-
borðinu um helgar
enda sívinsæl.
Mímósan á Nítjándu er spennandi og
fersk. Hún er blanda af appelsínusafa
og kampavíni. FRÉTTABLAÐIIÐ/VALLI
Egg Benedikt er einkennisréttur
Nítjándu.
DSE
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
4 matur