Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 38
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 14. MARS 2009
HLÝLEGT
KRÆSINGAR Á FATI
Nokkurra hæða kökudisk-
ar njóta vinsælda enda
ákveðin reisn yfir þeim.
Þá bjóða speglabakkar
upp á skemmtilegt sjónar-
horn á krásirnar.
BLS. 4
SÍTRÓNUKREISTUR
Í Gautaborg stendur
yfir sýning á óteljandi
sítrónukreistum af
öllum stærðum
og gerðum.
BLS. 4
Fermingartilboð 2009
Sjá nánar á www.betrabak.is
Kolbrún Birna
Halldórsdóttir er
mikið fyrir hluti
með sögu og sál
og hefur blandað
þeim á skemmti-
legan máta við
nýrri húsmuni. BLS. 6
&
RÓMANTÍSKT
HEIMILISHALD
RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR
Mikið úrval af gjafavöru frá Bröste og House-Doctor:
Kerti, kertastjakar, púðar, dúkar, skálar, skraut…
GJAFAVÖRUHORNIÐ
LAGERSALA
Á HÚSGÖGNUM OG SMÁVÖRU
Opið: Virka daga 12–18 – Laugardaga 10–16 – Sunnudaga 12–16
ALLAR VÖRUR MEÐ
50-90% AFSLÆTTI
REYKJAN
ESBRAU
T
ÁSVELLIR
BÓNUS
KEF
ÁSBRAUT
MIÐBÆR
HAFNFJ.
S
T
R
A
N
D
G
A
T
A
ÁSTORG
HAUKA-
TORG
TJARNAR-
TORG
KIRKJU-
TORG
VALLATORG
HRAUNATORG
HAMRATORG
HELLNATORG
NORÐURHELLA
10
Á
S
B
R
A
U
T
NORÐURHELLA 10
HAFNAFJÖRÐUR
RVK
VELLIR
HAFNFJ.
ÁSLAND
● heimili&hönnun
É
g er gjörn á að fresta heimilisverkunum til morguns. Það vil ég
þó ekki kenna mínum afkomendum og reyni að vera góð fyrir-
mynd. Að virkja börnin sér til aðstoðar við heimilisverkin held
ég líka að sé sniðugt til að kenna þeim sæmilega umgengni.
Einn daginn þegar við mæðgur vorum einar heima ákvað ég því að
fá þriggja ára skottuna í tiltekt með mér til að kenna henni góða siði.
Henni leist vel á það og vatt sér í verkin af krafti. Við byrjuðum í her-
berginu hennar á að sortera dótið af gólfinu ofan í dótaskúffur en eftir
meira en hálftíma vinnu sá ekki högg á vatni. Gólfið flaut bara í öðrum
leikföngum en áður. Ég klóraði mér í hausnum yfir þessu en ákvað að
taka á þessu seinna og við færðum okkur inn í eldhús. Þar gekk mér
vel að koma leirtaui í uppþvottavélina og strjúka af borðum meðan
skottan sópaði hvað mest hún mátti. Þegar ég
sneri mér við hafði hún sópað öllum kubbun-
um sínum vandlega undir eldhúsborðið og vel út
í hornin. Ég hrósaði henni fyrir dugnaðinn og
hugsaði með mér að ég gengi bara frá kubbun-
um á eftir.
Við færðum okkur inn í stofu þar sem við
þurrkuðum af og brutum saman þvottinn. Það
verkefni fór úr böndunum þar sem skottan
leysti fötin jafnharðan úr brotunum svo ég gafst
upp og ákvað að klára þetta bara á eftir. Baðherbergið var næst og ég
náði að þvo baðkarið og klósettið meðan skottan þvoði baðdýrin sín í
vaskinum. Smituð af ákafanum í móður sinni þvoði hún dýrin af svo
miklum móð að gusurnar gengu um allt gólf. Sjálf var hún orðin renn-
andi blaut svo ég ákvað að klára baðherbergið á eftir og sendi skottuna
eftir þurrum fötum í skápinn meðan ég tæki til hressingu handa okkur
eftir hamaganginn.
Ég gleymdi mér við að skræla epli og smyrja brauð svo skottan
náði að tína hverja einustu flík út úr skápnum sínum. Ég klæddi hana
og gaf henni að borða og hugsaði með mér að ég gengi frá fötunum
aftur um leið og ég tæki leikföngin upp af gólfinu, á eftir. Eftir að eitt
mjólkurglas hafði oltið um koll og kæfubrauðsneið lent á hvolf niður á
gólf vorum við mæðgur mettar. Ég ákvað að leggja mig í nokkrar mín-
útur í sófanum fyrir næstu törn. Á meðan dundaði skottan sér við að
raða leikföngum í kringum mig og nota mig sem fjall í bílaleik. Eftir
blundinn leit ég svo yfir verk okkar mæðgna. Þvottur og leikföng voru
á víð og dreif í stofunni, mjólkupollur og kæfa á eldhúsgólfinu innan
um kubbana, baðdýrin flutu í polli á baðgólfinu og inn í herbergi skott-
unnar var ekki fært fyrir fötum og dóti. Mér féllust hendur og ég
frestaði því snarlega til morguns að ganga frá.
Fyrirmynd við verkin
„Ísland er alltaf með mér, í sinni,
sál og hönnun, þótt ekki sé ég
haldin heimþrá,“ segir Dögg Guð-
mundsdóttir hönnuður sem starfað
hefur í Kaupmannahöfn undanfar-
in ellefu ár. „Ég kem svo reglulega
heim að ég hef einskis að sakna,
nema auðvitað náttúrunnar, sem
lítið sést af villtri og ósnortinni hér
í Danmörku. Þannig kem ég alltaf
heim á vorin til að taka góða törn í
fiskvinnslu, til að verka og þurrka
þorsk í fisklampana okkar
Fanneyjar,“ segir Dögg um
fræga hönnun þeirra Fan-
neyjar Antonsdóttur síðan
2001 og enn er vinsæl á
sýningum og til einkaeign-
ar, en þær stöllur framleiða
árlega um þrjátíu eintök til
sölu í völdum galleríum.
Dögg lauk námi í iðn-
hönnun frá Istituto Europeo
di Design í Mílanó á Ítalíu
1996 og síðan tveggja ára
námi í vöruhönnun frá
Denmark‘s Designskole
í Kaupmannahöfn. „Mér
þótti spennandi og fram-
andi í senn að stunda nám á Ítalíu
þótt ítölsk áhrif fylgi mér ekki
áfram. Ég hleð hönnunar-batteríin
einna helst í náttúrunni heima og
hanna mest undir skandinavískum
áhrifum. Þó sæki ég nafngiftina á
nýju lömpunum mínum til Ítalíu,
en þeir bera nafnið Trinitas, sem
merkir heilög þrenning, og sýnd-
ir voru í París og Köln í janúar, en
eru nú komnir á markað hjá Ligne
Roset. Hugmyndin spratt út frá að-
ventuljósi sem fer áfram á mark-
að í haust, en þríhyrnings-
formið mun ég einnig nota
í glös, bakka, vasa og fleira
sem tilheyra sömu seríu og
ég vinn nú úr gleri,“ segir
Dögg sem er nýfarin að
vinna aftur eftir eins árs
fæðingarorlof.
„Nú er ég á lokasprett-
inum með nýjan stól og
vinn einnig í samstarfi
við þrjá danska hönnuði
að heildstæðri heimilis-
línu fyrir taívanskt fyr-
irtæki, þar sem allir
hlutir, allt frá stærri
húsmunum upp í skraut-
muni, eru í stíl og sömu
seríu. Þannig ganga
kaupin fyrir sig í Ta-
ívan, því íbúarnir hafa knappan
tíma til að fara á milli verslana, en
kaupa þess í stað alla uppstilling-
una sem sýnd er í búðinni,“ segir
Dögg sem einnig horfir hýru auga
til sorphauga Danmerkur. „Mig
langar mikið að vinna meira með
rusl og endurnýta það til augnaynd-
is og frekari notkunar, eins og roð
þorsksins. Skandinavar eru ódug-
legir að flokka rusl og ég hef áður
gert ruslainnsetningar til vakning-
ar um þessi mál, eins og sel sem
fór með gasgrímu í kringum rusla-
haug á sýningu. Ég fer því kannski
næst að koma mér í samband við
ruslakallana hérna,“ bætir hún við
og skellihlær.
Sjá www.doggdesign.com.
- þlg
Langar að leita í ruslinu
● Dögg Guðmundsdóttir, iðn- og vöruhönnuður, skapar fallega og forvitnilega nytjalist
með Ísland í hjartanu en undir sterkum skandinavískum áhrifum í bland.
Fiskiljósið Uggi eftir Dögg og Fanneyju
Antonsdóttur frá 2001 hefur verið sýnt
vítt og breitt um heiminn og verður sýnt
í sumar í Hönnunarsafninu.
Sjá www.uggi-lights.com.
Trinitas-lampinn er nýjasta
útspil Daggar og framleiddur
fyrir Ligne Roset.
Fjaðrastóll frá 1999 er nú sýndur á
sýningunni European Design since
1985: Shapin the New Century, í Indiana
Museum of Art. Sýningin stendur til 21.
júní í sumar.
● Forsíðumynd: Gunnar V. Andrésson tók myndina á
heimili Kolbrúnar Birnu Halldórsdóttur Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512
5000 Ritstjórar: Sólveig Gísladóttir solveig@fretta-
bladid.is og Emilía Örlygsdóttir emilia@frettabladid.
is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512
5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
„Þegar ég sneri
mér við hafði hún
sópað öllum
kubbunum sínum
vandlega undir
eldhúsborðið og
vel út í hornin.“
Dögg Guðmundsdóttir,
iðn- og vöruhönnuður,
í íslenskri lopapeysu á
dönsku heimili sínu, en
hún hefur búið í Dana-
veldi síðan hún hóf þar
nám fyrir áratug.
14. MARS 2009 LAUGARDAGUR2