Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 14. mars 2009 3
„Suðurnesin eru að mörgu leyti hin
óþekkta veröld fyrir höfuðborgar-
búann og mikil áskorun að kynna
sér allt það skemmtilega sem þau
hafa að bjóða og er svo miklu fleira
en menn átta sig á í fljótu bragði. Í
hugum margra er ferðin suður með
sjó leiðin til útlanda, en ég býst við
að menn séu enn dálítið fastir í því
að sunnudagsbíltúrinn þurfi að
vera austur fyrir fjall,“ segir Gísli
Sverrir Árnason, verkefnisstjóri
safnahelgarinnar Söfn og sjávar-
fang, sem fram fer á Suðurnesjum
um helgina.
Þá munu söfn, setur og fjölbreytt-
ar sýningar opna gáttir sínar fyrir
gestum og gangandi, ásamt því sem
veitingahús á svæðinu munu bjóða
upp á matseðla með sjávarfangi í
bland. Auk þess verða ýmis gallerí
opin þar sem handverk og listmun-
ir heimamanna verða til sýnis.
„Það kemur mörgum á óvart
hversu stórbrotin og formfögur
náttúra Reykjaness er, byggðar-
lögin svipmikil, menningarlífið lif-
andi og metnaðarfullt og veðurfar
svo prýðilegt, þótt hér loði enn við
óverðskuldaður rokstimpill,“ segir
Gísli Sverrir um ókannaðar slóðir
og einstaka töfra Suðurnesja.
„Suðurnesjamenn eru óskaplega
hjartahlýir og miklir höfðingjar
heim að sækja. Að sjálfsögðu er
hér mikið um töffara, enda eimir
enn af amerískum áhrifum ofan af
Velli á þessum mestu rokkslóðum
landsins, og sérstök ástæða til að
koma við á Poppminjasafninu til að
ná síðustu sýningarhelgi um rokk-
árin á Íslandi,“ segir Gísli Sverr-
ir um einn af mörgum viðburðum
helgarinnar.
Af nógu er að taka hvort sem
stoppað er í Grindavík, Sandgerði,
Garði, Vogum, Njarðvíkum eða
Keflavík.
„Í boði verður fjölbreytt dagskrá
með tónleikahaldi, sýningum, fyr-
irlestrum og margs konar uppák-
omum, í bland við endalaust úrval
af humarsúpum, saltfiskbollum og
öðru góðgæti.
Þá verður slegið upp bryggju-
balli og hægt að dansa við harmón-
íkutónlist, ásamt fullt af freistandi
afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.
Það er því spennandi helgi í vænd-
um að fara á milli bæjarfélaga til
að gera sér glaðan dag, sýna sig og
sjá aðra.“
Aðgangur í söfn á Suðurnesjum
er ókeypis alla helgina. Dagskrána
í heild má finna á www.vf.is.
thordis@frettabladid.is
Fiskur og fjör um helgina
Sagt hefur það verið um Suðurnesjamenn að þeir séu gestrisnir, duglegir og lífsglaðir. Umgjörð þeirra
heimkynna er ekki síður yndisleg og nú er tækifæri um helgina til að sækja þá heim, kynnast og njóta.
Í Saltfisksetrinu í Grindavík.
Sjávarfangið er heillandi ungum og áhugasömum líffræðingum, eins og sjá má á
þessari mynd úr Fræðasetrinu í Sandgerði.
Í Föndru er allt í ferming-
arboðskorti n, ásamt
fallegum fermingar-
kortum. Þar er mikið af
hugmyndum að fallegum
kortum, sem auðvelt er
að gera sjálfur.
Einnig er mikið úrval af
kertum, servíett um og alls
kyns skrauti á fermingar-
borðið.Vinsælt er að gera
albúm fyrir fermingar-
barnið, þar sem fermingar-
dagurinn er allur tekinn
saman í eitt albúm.
Þar eru varðveitt boðskorti ð, servíett an, myndir af
öllum gestunum, ásamt kortunum frá þeim, skeyti ,
gestalisti og svo myndir af athöfninni og fj ölskyldunni.
Það voru að koma albúm fyrir sportkrakkana, þ.e.
fótbolta, sund, íshokki, tónlistar, körfubolta og fl .
Gaman er að leyfa áhugamálum barnanna að njóta
sín. Föndra bíður upp á að handmála á kerti og er mjög
vinsælt að mála félagabúningana.
Einnig er mikið úrval af kertavaxskreyti ngum sem
auðvelt er að gera sjálfur, límmiðum og steinum.
Áletranir á servíett ur og sálmabækur, ásamt vinsælu
skrautrenningum á fermingaborðið.
KYNNING
HVERFISGÖTU 6 • 101 REYKJAVÍK • SÍMI 562 2862
LOKADAGUR LAGERSÖLU 70% AFSLÁTTUR AF ÖLLU
Ebba fræðir okkur um það hvernig hægt er að útbúa einfaldan og
næringarríkan mat fyrir börn frá 6 mánaða aldri.
Námskeiðið nýtist líka þeim sem eru með eldri börn.
Upplýsingar og skráning eru í síma 694-6386 eða á netfanginu:
ebbagudny@internet.is. Verð 3.500 kr
Þriðjudagana 17. og 24. mars kl. 20:00-22:00
Tvö námskeið í verslun Yggdrasils, Skólavörðustíg 16
Farið verður yfir hvernig á að meðhöndla og búa
til rétti sem innihalda :
Ávexti og grænmeti
Heilt korn eins og quinoa, hirsi, hafra, spelt o.fl.
Baunir, kaldpressaðar olíur, möndlumauk, tahini,
möndlur og fræ.
Veglegt uppskriftar- og fróðleiks-
hefti fylgir með námskeiðinu.
Hvað á ég að gefa
barninu mínu að borða?
Námskeið með Ebbu Guðnýu í Yggdrasil
Laugavegi 63 • S: 551 4422