Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 46

Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 46
 14. mars 2009 LAUGARDAGUR62 Grundartanga • 301 Akranesi • Sími 430 1000 • Fax 430 1001 • nordural@nordural.is • www.nordural.is Við óskum að ráða vélvirkja í dagvinnu og vaktavinnu hjá Norðuráli á Grundartanga. Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru ríflega fimm hundruð talsins, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfa m.a. verkfræðingar, tæknifræðingar, viðskiptafræðingar, sálfræðingar, efnafræðingar, eðlisfræðingar, líffræðingar, tölvunarfræðingar, rafvirkjar, vélvirkjar, vélstjórar & rafsuðumenn, auk ófaglærða starfsmanna sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu. Hvaða kröfur gerum við? Sveinspróf í vélvirkjun og a.m.k. tveggja ára starfsreynslu Áhugi, góð samskiptahæfni og geta til að vinna sjálfstætt Reynsla af vinnu í iðnaðarumhverfi eða við sambærileg störf er æskileg Kunnátta í ensku og almennri tölvunotkun kemur í góðar þarfir Æskilegt er að umsækjendur séu búsettir á Vesturlandi Hvað veitum við? Við bjóðum þér traust og gefandi starf hjá nútímalegu fyrirtæki. Þú vinnur mikilvæg verk með góðu samstarfsfólki og við tökum vel á móti þér. Verkefnin eru fjölbreytt og felast m.a. í viðhaldi, bilanaleit, endurnýjun og endurbótum á tæknibúnaði Norðuráls, með aukinni áherslu á fyrirbyggjandi viðhald. Starfsþjálfun og símenntun Nýtt mötuneyti á staðnum Atvinnuöryggi, traustar tekjur og laun að hluta árangurstengd Fyrirtækið greiðir þér aukið framlag í lífeyrissjóð Hjá Norðuráli starfar öflugt starfsmannafélag sem stendur reglulega fyrir ýmsum áhuga- verðum uppákomum. Nánari upplýsingar veita: Einar F. Björnsson, viðhaldsstjóri, og Fjalar Ríkarðsson, framkvæmdastjóri viðhaldssviðs, í síma 430 1000. Hvernig sækir þú um? Vinsamlega sendu okkur umsókn þína fyrir 23. mars n.k. Þú getur sótt um á vef fyrirtækisins, www.nordural.is, sent umsókn þína á netfangið umsókn@nordural.is eða póstlagt umsóknina merkta: Vélvirki. Við förum með umsókn þína sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað. Jafnrétti Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og kvenna til starfa hjá Norðuráli. Vélvirkjar • Opnað verður fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Kópavogsbæ sunnudaginn 15. mars. Umsóknir og upplýsingar um störfin eru á heimasíðu Kópavogsbæjar www.kopavogur.is. Umsóknarfrestur er til 5. apríl 2009. www.kopavogur.is Sumarstörf KÓPAVOGSBÆR Starf hjá Fæðingarorlofssjóði Hvammstanga Vinnumálastofnun leitar eftir starfsmanni til að sinna símsvörun og almennum skrifstofustörfum. Starfssvið • Símsvörun • Skráning skattkorta • Tölvuskráning • Upplýsingagjöf til umsækjenda • Önnur tilfallandi skrifstofustörf Menntunar- og hæfniskröfur • Góð reynsla af skrifstofustörfum • Góð tölvukunnátta • Framhaldskólanám er æskilegt • Góð íslensku- og enskukunnátta • Samskiptahæfni og rík þjónustulund ásamt skipulags- hæfi leikum, sjálfstæði og metnaði til að skila góðu starfi Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi starfsmanns bíður að sinna krefjandi verkefnum með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi. Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafi ð störf sem fyrst. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfs- feril sendist til Leó Arnar Þorleifssonar á netfangið leo.thorleifsson@vmst.is eða til Vinnumálastofnunar/ Fæðingarorlofssjóðs, Strandgötu 1, 530 Hvammstanga, fyrir 29. mars 2009. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði. Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnunarinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is Frekari upplýsingar fást hjá Leó Erni Þorleifssyni, forstöðumanni Fæðingarorlofssjóðs á ofangreindu netfangi og hjá Hugrúnu B. Hafl iðadóttur, starfs- mannastjóra í síma 515-4800.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.