Fréttablaðið - 14.03.2009, Qupperneq 59
heimili&hönnun ●
„Ég er mikið í því að blanda saman
gömlu og nýju og reyni að nýta vel
alla hluti,“ segir Kolbrún Birna
Halldórsdóttir, förðunarfræðingur
hjá RÚV, en hún býr á Kjalarnesi
og nýtur þess að vera þar í friði
og ró með fjölskyldunni. „Hér er
yndislegt að vera í sveitasælunni.
Í raun nýt ég þess að keyra í vinn-
una í bænum því það er eiginlega
eina næðið sem fæ í sólarhringn-
um,“ segir hún og hlær en Kolbrún
er þriggja barna útivinnandi móðir
og er því í nógu að snúast.
„Fyrir nokkrum árum var ég
mikið í dökkum húsgögnum en það
hefur nú aðeins breyst og er orðið
léttara yfir. Í stað þess að kaupa
allt nýtt hef ég reynt að nýta það
sem ég á og breyti frekar. Oft er
þetta ekki flóknara en svo að ég
pússa upp gamla hluti og mála þá,“
segir hún og bætir við: „Ég hef líka
erft fallega hluti frá föðurbróður
mínum en mikið af þeim eru frá
ömmu og afa.“ Auk þess að nýta
gamla hluti hefur Kolbrún gert
kjarakaup í verslunum eins og
Rúmfatalagernum. „Þar má finna
ótrúlegustu hluti sem litið geta vel
út í réttu samhengi. Hins vegar er
ég mjög hrifin af því að hlutirn-
ir eigi sér sögu. Þá er meiri sál og
persónuleiki í þeim.“ - hs
Blanda saman
gömlu og nýju
● Heimili Kolbrúnar Birnu Halldórsdóttur, förðunarfræðings
hjá RÚV, er hlýlegt og rómantískt en þar má finna hluti með
sögu og sál í samhljómi við nýrri húsbúnað.
Kolbrún Birna er dugleg að nýta hluti og gætir þeirra sem tengjast henni tilfinninga-
böndum. Málverkið í baksýn er af Kolbrúnu lítilli og er málað af systur hennar, G.
Láru, sem er listmálari. Fékk Kolbrún verkið að gjöf þegar hún var tvítug og keypti
sína fyrstu íbúð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Eldhúsinnréttingin var í húsinu
þegar Kolbrún flutti inn en hún
segir að hún falli vel að sínum
smekk. Ljósakrónan var keypt
á flóamarkaði í Danmörku og
minnir á kirkjuljósakrónu. Borð-
stofusettið er úr Tekk Company.
OSRAM sparperurnar fást í næsta stórmarkaði eða byggingavöruverslun www.osram.is
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
Sparaðu með
OSRAM sparperum.
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
www.osram.is
ALLT AÐ
80 %
ORKU-
SPARNAÐUR
Sparperur frá OSRAM draga úr rafmagnskostnaði um allt að 80 %samanborið við jafn bjartar ljósaperur og endast þar að auki allt að 15 sinnum lengur.
OSRAM býður upp á mikið úrval sparpera sem uppfylla allar þarfir og eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum. Þetta þýðir að OSRAM sparperurnar henta hvar sem er á heimilinu. Sparnaður án málamiðlana.
Sparperur - orkusparandi og umhverfisvænar.
ÞITT
EINTAK
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
www.osram.is
ALLT AÐ
80 %
ORKU-
SPARNAÐ
UR
Sparperur frá OSRAM draga úr rafmagnskostnaði um allt að 80 %
samanborið við jafn bjartar ljósaperur og endast þar að auki allt
að 15 sinnum lengur.
OSRAM býður upp á mikið úrval sparpera sem uppfylla allar
þarfir og eru til í mörgum stærðum, gerðum og litum. Þetta þýðir
að OSRAM sparperurnar henta hvar sem er á heimilinu.
Sparnaður án málamiðlana.
Sparperur - orkuspar ndi
og umhverfisvænar.
ÞITTEINTAK
SPARPER
U-
BÆKLING
UR Á
NÆSTA
SÖLUSTA
Ð
Ë
Ë
Ë
íslenskt
Veljum
í BYKO
Íslensk gæðamálning!
LAUGARDAGUR 14. MARS 2009 7