Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 65
BLS. 3 I+ Bókaðu á www.icelandair.is
Flug til Stavanger gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
MÍN
DUSSELDORFMÍN
Flug og gisting í 2 nætur
frá 49.900 kr.
á mann í tvíbýli á á Thon Hotel Stavanger ***
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Reykjavík – Stavanger
frá 14.900 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er 2 sinnum í viku.
Flug og gisting í 2 nætur
frá 59.900 kr.
á mann í tvíbýli á
Hotel Nikko Dusseldorf ****
Innifalið: Flug báðar leiðir,
flugvallarskattar, gisting og
morgunverður.
Reykjavík – Dusseldorf
frá 17.300 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er 2 sinnum í viku.
Veksthuset mat og vin Skagen 10
Veitingastaður við höfnina, kjörinn fyrir þá sem
langar að prófa „alvöru“ norskan mat.
Charlottenlund Við Breiavatnet
Mjög góður matur og gott útsýni yfir „Tjörnina“
í kvöldsólinni.
Akropolis Solvberg Gata 14
Grískur veitingastaður við eina af mörgum,
örmjóum hliðargötum í Stavanger. Á
sunnudögum er hlaðborð til kl 18:00; kostar
150 norskar kr. á mann. Þetta er minn
uppáhaldsveitingarstaður. Góður matur og
frábær þjónusta.
Næturlífið
Fyrir ykkur sem viljið fjörga upp á tilveruna mæli
ég með The Cardinal bar í Skagen 21. Þar er
hægt að velja á milli 388 tegunda af bjór.
Skemmtistaðurinn New York, við höfnina, er
feiknavinsæll í Stavanger.
Düsseldorf, sem stendur á bökkum Rínar
nokkru norðar en Köln, er borg þar sem
viðskipti, tískuhönnun og listir hafa blómstrað
á undanförnum árum og framsækin húsa-
gerðarlist setur mikinn svip á borgina.
Næturlífið er fjörugt og kraftmikið. Þar eru
gamli bærinn, Altstadt, og nýtt hafnar-
svæði, Medienhafen, í aðalhlutverki.
Skáldjöfurinn Heinrich Heine fæddist í Düssel-
dorf og er meðal annars hægt að heimsækja
húsið þar sem hann fæddist. Hallir og söfn eru
mörg í Düsseldorf og má t.d. nefna Goethe-
safnið, Heinrich Heine stofnunina, K20 og K21
söfnin, Museum Kunst Palast og síðast en ekki
síst má nefna áhrifamikið safn um Þriðja ríkið og
ofsóknir þess.
Düsseldorf stendur við neðanverða Rín og er
tilvalinn áfangastaður fyrir þá sem hafa áhuga á
að aka um þessar slóðir, bregða sér til Kölnar
og Aachen eða aka um Holland og Belgíu.
Kraftmikil og skemmtileg
menningar- og viðskiptaborg
á Rínarbökkum
Flug til Dusseldorf gefur 3.000–9.600 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
Timburhús og olía
Stavanger er stærsti timburhúsabær í Evrópu
og hér er því margt fallegt að skoða. Ég mæli
með bílaleigubíl í nokkra daga. Statoil er með
höfuðstöðvar í Stavanger og öll umferð til og frá
olíuborpöllum Norðmanna fer um flugvöllinn á
Sola.
Gamle Stavanger
Gamla Stavanger, við höfnina, er elsti bæjarhlut-
inn í Stavanger. Húsin eru timburhús frá 18. og
19. öld og hverfið er friðað. Hérna eru þröngar
götur og öll bílaumferð er bönnuð.
Norsk Hermetikk Museum
Norsk Hermetikk Museum er í gamla bænum.
Þetta er gömul síldarverksmiðja sem breytt var í
safn. Hérna er hægt að kynnast
„síldarævintýrinu“ í Stavanger sem breytti öllu í
bænum þegar sjórinn fylltist af síld árið 1810. Ef
heppnin er með gefst tækifæri til að bragða á
nýreyktri síld.
Dómkirkjan í Stavanger
Dómkirkjan í Stavanger er stór og falleg
bygging frá miðöldum, merkasta dómkirkja í
Noregi að Niðarósdómkirkju einni undan-
skilinni. Kirkjan var fyrst byggð árið
1125, brann árið 1272 en var
endurbyggð í kringum 1300.
Kirkjan er í hjarta borgarinnar
við Breiavatnet („Tjörnina“).
Bjergstedparken
Fallegur garður í Stavanger, í göngufæri frá
miðbænum. Hérna eru oft ókeypis tónleikar og
aðrar uppákomur á sumrin.
Skemmtilegar uppákomur
Geta má þess að „Glad mat festivalen“ er
haldin á hverju ári. Margir veitingastaðir eru þá
með bása niðri við höfnina og selja sýnishorn.
Þetta er tilvalið tækifæri til að prófa eitthvað nýtt
og spennandi.
Sigling inn Lysefjorden
Í grennd við Stavanger eru fjölmörg sýnishorn af
hinum heimsfrægu norsku fjörðum. Einn hinn
þekktasti á þessum slóðum er Lysefjorden,
42 km langur og girtur allt að 1.000 mháum
klettaveggjum sem rísa nær lóðrétt upp frá
sjávarfletinum. Það er einstök upplifun að sigla
um fjörðinn.
Fallegar strendur og hellir
Sola stranden er 2.300 m löng, hvít sandströnd.
Þetta er falleg strönd sem hefur verið útnefnd
fallegasta ströndin í Noregi. Viste stranden er
einnig falleg sandströnd. Við ströndina er stór
og fallegur sólblómaakur. Ekki langt
frá Viste ströndinni er Svarthola,
lítill hellir þar sem talið er að fólk
hafi búið fyrir 8.000 árum.
Hafursfjörður
„Sverd i fjell“ er stór bronsmynd eftir Fritz Røed,
við Møllebukta í Hafursfirði, 6 km frá miðbæ
Stavanger. Sverðin þrjú, sem voru afhjúpuð árið
1983, eru minnismerki um Hafursfjarðarorrustu
sem var háð á þessum stað árið 872 þegar
Haraldur hárfagri barði niður síðustu skipulögðu
mótspyrnuna innanlands og gerði Noreg að einu
konungsríki. Við Møllebukta er einnig lítil falleg
strönd og afar fallegt að horfa þaðan á sólarlagið.
Prekestolen
Predikunarstóllinn, þessi víðfrægi klettastapi við
Lysefjorden, er 600 m hár og einhver fjölsóttasti
ferðamannastaður á Rogalandi. Tilkomumest er
að koma að Predikunarstólnum að ofan, úr
fjalllendinu. Til að komast á Prekestolen verður
að taka ferjuna frá Stavanger til Tau. Þaðan má
taka rútu upp í fjöllin og síðan er gengið í um
tvær klst. eftir merktum göngustígum. Þetta er
falleg gönguleið og stórkostlegt útsýni yfir
Lysefjorden. Það er þó ekki heiglum hent að
standa úti á stapanum sjálfum og njóta
útsýnisins.
NÝR ÁFANGASTAÐUR
STAVANGER
Kolbrún Ásta Jónsdóttir þroskaþjálfanemi
Veitingastaðir
NÝR ÁFANGASTAÐUR