Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 72
40 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
Ef þú værir ekki leikkona hvað
myndirðu þá vera? Kokkur, það
jafnast fátt á við góðan mat sem
gleður.
Hvað er það dýrasta sem þú
hefur nokkurn tímann keypt þér?
Háskólamenntun.
Ef þú byggir ekki í Reykjavík
hvar myndirðu vilja búa? Það
færi eftir því hvað ég væri að
gera, en Pat-reksfjörður á stóran
hlut í hjarta mínu.
Uppáhaldsleikskáld og af
hverju?
Shakespeare af því að ég er að
vinna að honum núna.
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Fjallganga með góðu fólki
sem endar á lúxusgististað með
öllu tilheyrandi, sumsé nuddi,
frábærum mat og góðu stuði.
Uppáhalds Shakespeare-kar-
akterinn og af hverju? Hirðmey
Adriönu í Allt í misgripum, hún
er hress.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
unni? Sjaldan upplifað aðra eins
fegurð og í Drangey í Skagafirði,
mæli með ferð þangað og dýfa sér
í Grettislaug á eftir.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvaða lag ertu að
hlusta mest á í dag?
Það fer eftir því hvernig mér
líður, annars er ég búin að hlusta
mikið á Hercules and Love Affair
undanfarið og nýja diskinn henn-
ar Beyoncé, hún kemur mér allt-
af í stuð.
Ef að þú ættir tímavél, hvert
myndirðu fara og af hverju?
Þegar Siggi köttur slengdi plast-
snák á öxlina á mér í mynd-
mennt í 12 ára bekk og ég ældi
af hræðslu. Ég myndi fara í
hugræna atferlismeðferð til að
losna við snákafælnina, það er
miklu betra að vinna með hug-
ann á unga aldri. Svo væri ekki
úr vegi að fljúga til Hollywood
á gullaldarárunum og skála við
Ritu Hayworth.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni? Æ sjaldnar.
Ef þú gætir breytt einhverju
í fortíð þinni, hvað myndi það
vera?
Engu held ég, fortíðin hefur gert
mig að þeirri manneskju sem ég
er í dag.
Hvenær fékkstu síðast hláturskast?
Í gær, ég bý með konungi fimm aura
brandaranna.
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Ó já!
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Konur eftir Steinar Braga, ég fæ
enn hroll þegar ég geng eftir Skúla-
götunni.
Hvaða núlifandi manneskju lítur þú
mest upp til? Það er engin ein, það er
svo mikið af frábæru fólki í kring-
um mig bæði í leik og starfi sem ég
virði og lít upp til. Foreldrar mínir
eiga þó efstu sætin á þeim lista.
Uppáhaldsorðið þitt? Matur og já,
helst í sömu setningu.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna
lífsgæði þín? Að fá borgað fyrir að
leika.
Hvaða eitt hlutverk verður þú
að leika áður en þú deyrð? Soffíu
frænku.
Hvað verða þín frægu hinstu orð?
Nú er lokið leik.
Hvað er næst á dagskrá? Sýningar
á Þrettándakvöldi í Þjóðleikhúsinu
og BA-ritgerð.
ÞRIÐJA GRÁÐAN
FULLT NAFN: Vigdís Másdóttir.
STARFSFERILL Í HNOTSKURN:
Götu-, áhuga-, brúðu- og senn
útskrifaður leikari frá Lista-
háskóla Íslands.
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ
GERÐIST MARKVERÐAST Á ÞVÍ
ÁRI: 1978, Jóhannes Páll I og II
settust á páfastól. Fyrsta glasa-
barnið fæðist. Skál fyrir því.
HVENÆR VARSTU HAMINGJU-
SÖMUST? Ég bý við þá gæfu að
vera yfirleitt hamingjusöm. Síð-
asta eftirminnilega hamingju-
rús var uppi á fjalli vestur á
fjörðum í fyrrasumar.
Uppáhaldsorðið er matur
Hin ofurkvenlega Vigdís Másdóttir fer með hlutverk tveggja karlmanna í Þrettándakvöldi Shakespeares sem frumsýnt var í
Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Anna Margrét Björnsson tók hana í þriðju gráðu yfirheyrslu.
■ Á uppleið
Litagleði.
Tískuhönnuðir
vilja sjá okkur í
öllum regnbog-
ans litum næsta
haust. Dásam-
legt.
Matarboð. Þemaboð koma aftur
sterkt inn þegar enginn tímir að fara
út að borða. Allir elda saman og
mæta með rauðvín. Skál!
Leggings fyrir
karlmenn. Ha?
Jú, þetta er það
sem koma skal fyrir
herrana. Þægilegt
og svalt, en bara
fyrir þá mjóu og
leggjalöngu.
■ Á niðurleið
Karlrembulegar
vefsíður. Vettvangur
þar sem menm með
vömb blása út um
pólitík en kvenfólk
fær sitt fiðrilda-
bleika „horn“
undir tísku
og ilmvötn.
Einmitt það.
Mojito
og aðrir
góðæris-
kokkteilar.
Ekkert nema
hallærislegt að
sötra rándýra
drykki á öldur-
húsum. Vodka í
vatni væri nær
lagi.
Lestur tímarita. Þangað til kosn-
ingar eru afstaðnar verður ekki friður
fyrir pólitíkusum að sýna inn í ísskáp-
inn hjá sér eða opnandi fataskápinn
sinn í tímaritum landsins og gera þau
algerlega ólestrarhæf.
VIGDÍS MÁSDÓTTIR LEIKKONA Ældi af hræðslu þegar plastsnáki var slengt framan í hana á unga aldri. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN
MÆLISTIKAN