Fréttablaðið - 14.03.2009, Síða 74
42 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1883 Karl Marx, faðir kommún-
ismans, andast.
1911 Kristján Jónsson verð-
ur ráðherra Íslands. Hann
situr fram í júlí árið eftir.
1987 Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar bjargar níu manns
þegar Barðinn strandar
við Dritvík á Snæfellsnesi.
1989 Lífsbjörg í Norðurhöfum,
kvikmynd Magnúsar Guð-
mundssonar, er frumsýnd
í Sjónvarpinu. Grænfrið-
ungar kröfðust lögbanns
á sýningu myndarinnar.
1990 Mikhail Gorbachev er
kjörinn forseti Sovétríkj-
anna.
2004 Vladimir Pútín er endur-
kjörinn forseti Rússlands.
ALBERT EINSTEIN (1879-1955)
FÆDDIST FYRIR 130 ÁRUM
„Ég hef enga sérstaka hæfi-
leika. Ég er aðeins ákaf-
lega forvitinn.“
Albert Einstein var merk-
asti eðlisfræðingur 20. aldar.
Þekktasta verk hans er lík-
lega afstæðiskenningin en
auk þess hafði hann áhrif
á skammtafræði og aðrar
greinar innan eðlisfræði.
Hann fékk nóbelsverðlaunin í
eðlisfræði árið 1921.
Á þessum degi árið 1950 gaf al-
ríkislögreglan í Bandaríkjun-
um í fyrsta sinn út lista yfir tíu
hættulegustu glæpamennina
sem gengu lausir. Listinn heitir
á ensku „Ten most wanted“ og
er þekktur um allan heim enda
mikið verið notaður og nefndur
í kvikmyndum í gegnum tíðina.
Forsögu listans má rekja til
fréttagreinar sem skrifuð var
árið áður um „mestu hrottana“
sem FBI vildi handsama. Grein-
in vakti það mikla athygli að J.
Edgar Hoover gaf samþykki sitt
fyrir útgáfu opinbers lista ári
síðar.
Árið 2007 höfðu 420 glæpa-
menn sem komist höfðu á list-
ann verið handsamaðir, þar af um
140 vegna ábendinga almennings.
Almennt er eina leiðin til að
losna af listanum sú að deyja
eða vera handsamaður. Aðeins í
nokkrum tilvikum hefur flóttamað-
ur verið tekinn af listanum þar
sem ekki var talin stafa af honum
hætta lengur. Aðeins sjö konur
hafa birst á listanum. Ruth Eisem-
ann-Shier var sú fyrsta árið 1968.
Alríkislögreglan vinnur náið
með sjónvarpsþætti á Fox-sjón-
varpsstöðinni sem ber nafnið
„America‘s most Wanted“ og er
ætlunin að vekja athygli almenn-
ings sem vonandi getur gefið upp-
lýsingar um flóttamennina hættu-
legu.
ÞETTA GERÐIST: 14. MARS 1950
Tíu hættulegustu glæpamennirnir
Ungmennahreyfing SGI á Ís-
landi mun standa fyrir sam-
ræðufundi í dag klukkan 16
í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fundurinn er í tengslum
við sýningu sem stendur nú
yfir í Ráðhúsinu um sjálf-
bæra þróun sem byggir á
hugmyndum Jarðarsáttmál-
ans. Jarðarsáttmálinn var
saminn af nefnd skipaðri af
Sameinuðu þjóðunum með
fólki úr öllum heimshornum
og byggir sáttmálinn á þeim
grundvallaratriðum sem
einstaklingar, fyrirtæki og
þjóðir þurfa að tileinka sér
til að hægt sé að skapa heim
sem byggir á sjálfbærri
þróun, umhverfisvernd og
félagslegu réttlæti.
Í fréttatilkynningu ung-
mennahreyfingarinnar segj-
ast SGI vilja „með einlæg-
um samræðum hvetja fólk
til að skiptast á hugmynd-
um um hvernig hvert og eitt
okkar geti tekið ábyrgð á
því að skapa nýtt samfélag
sem byggir á virðingu fyrir
öllu lífi, umhverfisvernd og
mannréttindum“.
Fundurinn er öllum
opinn.
Frá einu hjarta
til annars hjarta
SGI Á ÍSLANDI Samræðufundur verður í Ráðhúsinu í dag í tengslum
við sýninguna Sjálfbær þróun. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Útfararþjónusta
Davíðs Ósvaldssonar ehf.
Davíð Ósvaldsson
Útfararstjóri
S. 896 6988 / 553 6699
Óli Pétur Friðþjófsson
Útfararstjóri
S. 892 8947 / 565 6511
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og mágkona,
Soffía Árnadóttir
Ólafsvegi 15, Ólafsfirði,
andaðist á hjúkrunardeild Hornbrekku 8. mars.
Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn
21. mars kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Slysavarnardeild kvenna í Ólafsfirði.
Rúnar Kristinsson Auður Ósk Rögnvaldsdóttir
Lísbet Kristinsdóttir
Rögnvaldur Brynjar Rúnarsson
systkini og makar.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og vináttu við andlát elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Óskar Ingibjargar
Eiríksdóttur.
Sérstakar þakkir til heimahjúkrunar í Kópavogi,
heimahlynningar krabbameinsfélagsins og líknardeild-
ar LSH í Kópavogi.
Unnur Hjartardóttir Jón Bjarni Bjarnason
Þorvaldur P. Böðvarsson Jenný Jóna Sveinsdóttir
Böðvar Már Böðvarsson Shirly Moralde
Bergþór Grétar Böðvarsson
ömmubörn og langömmubörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
„Í upphafi var þetta aðeins tilrauna-
verkefni með einu og hálfu stöðugildi.
Svo hefur þetta vaxið jafnt og þétt og
í dag vinna átta manns við Atvinnu
með stuðningi,“ segir Bryndís Theó-
dórsdóttir, forstöðumaður Atvinnu með
stuðningi í Reykjavík, sem stofnuð var
15. mars fyrir tíu árum af Svæðisskrif-
stofu um málefni fatlaðra í Reykjavík
og Styrktarfélagi vangefinna. Hinn 1.
september er þó ætlunin að Atvinna
með stuðningi fari undir Vinnumála-
stofnun.
Atvinna með stuðningi þjónar sem
nokkurs konar atvinnumiðlun en til-
gangurinn er að fatlaðir geti fengið
vinnu á almennum vinnumarkaði.
„Þjónustunotendur okkar í dag eru
um 135 og þar af eru um hundrað í
störfum á almennum vinnumarkaði,“
útskýrir Bryndís en enn er verið að
leita að vinnu sem hentar fyrir hina.
Bryndís segir mikinn vilja vera í
fyrirtækjum fyrir því að fá fatlaða ein-
staklinga í vinnu enda eru fyrirtækin
sem eru í samstarfi við Atvinnu með
stuðningi mjög fjölbreytt. „Við erum í
mjög góðu samstarfi við verslanir, leik-
skóla, bókasöfn, hjúkrunarheimili, spít-
ala og fyrirtæki í iðnaði,“ segir Brynd-
ís. „Við reynum að finna störf eftir getu
og vilja hvers og eins,“ útskýrir hún en
þeir sem sækja um vinnu í gegnum At-
vinnu með stuðningi eru fólk sem er
með fötlun, samkvæmt lögum um mál-
efni fatlaðra, til dæmis fólk með geð-
fötlun og þroskaraskanir.
Nú er Bryndís beðin um að lýsa um-
sóknarferlinu. „Þegar umsækjend-
ur koma inn er búin til umsókn og at-
hugað hvar áhugasviðið liggur og hver
getan er. Síðan er parað saman starfi
og starfsmanni. Svo fylgir ráðgjafi
héðan fólki eftir og aðstoðar það við
að ná tökum á starfinu og er með því
fyrst til að byrja með. Smám saman er
dregið úr stuðningi eftir því sem ein-
staklingurinn er öruggari í starfi,“
segir Bryndís og tekur fram að At-
vinna með stuðningi gæti bæði hags-
muna starfsmanna og fyrirtækjanna
sem þeir vinna hjá.
En hvernig er með launin? „Starfs-
menn frá okkur fá sömu laun og ger-
ist á almennum vinnumarkaði,“ segir
Bryndís og eru laun starfsmanna ávallt
greidd af fyrirtækinu sem þeir vinna
hjá. Hins vegar fá fyrirtækin endur-
greiðslu samkvæmt vinnusamning-
um öryrkja. „Þetta eru endurgreiðslu-
samningar sem miða að því að fólk með
skerta starfsgetu fái betri tíma til að
ná tökum á starfinu,“ útskýrir Bryndís.
Samkvæmt þeim fá fyrirtækin endur-
greidd 75 prósent af launum og launa-
tengdum gjöldum tvö fyrstu árin en
endurgreiðslan lækkar um tíu prósent
á ári eftir það.
Bryndís segir að það að geta unnið
á almennum vinnumarkaði skipti fólk
mjög miklu. „Möguleikar þessa fólks á
að fá vinnu eru minni og að fá starf á
almennum vinnumarkaði er gríðarlega
stórt skref fyrir marga,“ segir Brynd-
ís sem telur ákveðin gæði og mannrétt-
indi fylgja því að vinna á almennum
vinnumarkaði. „Það skiptir höfuðmáli
varðandi bata og lífið í heild sinni,“
segir Bryndís en boðið verður til lít-
illar afmælisveislu í næstu viku. Þar
verður boðið bæði þjónustunotendum
og forsvarsmönnum fyrirtækja.
solveig@frettabladid.is
ATVINNA MEÐ STUÐNINGI: TILRAUNAVERKEFNI VERÐUR TÍU ÁRA
Mannréttindi að fá að vinna
FORSTÖÐUMAÐUR
Bryndís Theódórsdóttir
segir miklu máli skipta
fyrir fatlaða að geta
unnið á almennum
vinnumarkaði.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA