Fréttablaðið - 14.03.2009, Side 81
LAUGARDAGUR 14. mars 2009
Keiko Kurita er ungur japanskur
listamaður og ljósmyndari. Hún er
orðin hagvön hér á landi og hefur
sótt hingað viðfangsefni í myndir
sínar. Nú er komið að því að hún
sýni hér á landi en á fimmtudag
hófst sýning hennar, Kyrrt vatn, í
Skotinu í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur og stendur hún til 5. maí.
Sýningin er styrkt af Nomura-
menningarstofnuninni í Japan.
Keiko hefur sótt Ísland heim sjö
sinnum á tímabilinu 2004-2006.
Sýningin Kyrrt vatn samanstend-
ur af myndröð þar sem kastljósinu
er beint að íslenskri vetrarstemn-
ingu: „Hin undarlega kyrrð lands-
lagsins, brot úr vetrarlífi eins og
sundlaugar með heitu vatni sem
á upptök sín í heitum hverum og
göngutúrar á frosnum stöðuvötn-
um draga fram hlýju og fegurð í
óhemju kaldri veröld.“ Á sýning-
unni eru 10 c-týpu print ásamt bók
sem er fáanleg í aðeins tíu eintök-
um. Bókin er myndafrásögn 43
ljósmynda og eru tíu þeirra sýnd-
ar í myndvarpasýningunni.
Keiko valdi 10 print (ca 40x40cm)
sem ná fram helstu aðalatriðum
myndraðarinnar.
Þess má geta að einnig verð-
ur sýning á verkum Keiko opnuð
í Listasafni ASÍ 4. apríl og mun
standa til 26. apríl. Sýningin ber
heitið tree/sleep sem samanstend-
ur einnig af 10 c-týpu printum.
Grænn andi svífur yfir vötnum á
þeirri sýningu og eru sýningarn-
ar ólíkar að því leyti en það sem
einkennir þær báðar er hins vegar
sérstakt næmi og hreint gegnsætt
yfirbragð.
- pbb
Kyrrt vatn og snjór
LJÓSMYNDIR Eitt verka Keiko á sýningunni í Skotinu.
75.860 kr.FRÁ
Tenerife
Parque del Sol
VIKULEGT FLUG ALLA MIÐVIKUDAGA FRÁ 20. MAÍ
Áfangastaðir Úrvals-Útsýnar í sólina í sumar eru valdir af kostgæfni og
gististaðirnir uppfylla allar gæðakröfur. Njóttu sumarfrísins á bestu kjörum
á góðum stað. Tenerife, Marmaris, Madeira, Meloneras, þitt er valið.
Sumar 2009
Úrval-Útsýn – Lágmúla 4 – 108 Reykjavík – Sími 585 4000 – info@uu.is – www.uu.is
á mann miðað við 2 með 2 börn í eina viku.
Verðdæmi miðað við 2 fullorðna: 89.990 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting.
Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega.
Ferðaskrifstofa
Leyfishafi
Ferðamálastofu
17. OG 24. MARS – UPPSELT
31. MARS – UPPSELT – AUKAFLUG 10 SÆTI LAUS Í VIKUFERÐ
7. APRÍL – UPPSELT – AUKAFLUG 10 SÆTI LAUS
14., 21. OG 29. APRÍL – LAUS SÆTI
Brottför
17. júní
F
ít
o
n
/S
ÍA
Við leitum eftir samstarfi við félagasamtök, sveitarfélög
og stofnanir sem ætla að vinna að verkefnum á sviði
umhverfis- eða ferðamála í sumar.
Við bjóðum fram krafta vinnuhópa ungmenna á aldrinum 16 til 20 ára sem starfa hjá okkur
á sumrin. Hóparnir sinna viðhaldi og snyrtingu í nágrenni mannvirkja okkar en um árabil
hafa þeir sinnt umhverfismálum og bætt aðstöðu til útivistar og ferðamennsku víða um land.
Við viljum eiga samstarf um verkefni sem lúta að ræktun, hreinsun og öðrum umhverfis-
bótum ásamt t.d. stígagerð og stikun gönguleiða.
Við bjóðum fram vinnuframlag unglinganna og flokkstjórn yfir þeim.
Við óskum eftir að samstarfsaðilar leggi fram vel skilgreind verkefni,
samkvæmt nánari lýsingu á umsóknareyðublaði sem er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Nánari upplýsingar veita: Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi og Ragnheiður Ólafsdóttir
umhverfisstjóri í síma 515 9000 – thorsteinn@lv.is og ragnheidur@lv.is.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
04
43
Margar
hendur
vinna
létt verk
Samstarfsaðilar óskast!
Umsóknum skal skila í síðasta lagi 8. apríl
með vefumsókn á www.lv.is