Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 84
52 14. mars 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
Þýsku plötusnúðarnir Kamui
spila á Nasa í kvöld. Kamui
samanstendur af félögunum
Dominik Felsmann og Patrich
Scheidt sem kynntust á netinu
vegna áhuga beggja á danstónlist.
Þeir hittust fyrst árið 2003 og
ákváðu í framhaldinu að búa til
tónlist saman.
Kamui hafa skapað sinn eigin
hljóm og eru með sérstakan
stíl. Þeim hefur tekist að tvinna
saman ólíka þætti danstónlistar
með flottri útkomu. Tvær plötur
eru væntanlegar fyrir sumarið
með Kamui sem nefnast Thrill
Kill og Excee og hafa þær þegar
fengið góðar viðtökur gagnrýn-
enda.
Þýskt stuð
hjá Kamui
Söngvararnir Chris Brown og
kærasta hans, Rihanna, hafa
hljóðritað dúett saman. Lagið
þykir vera sykursætt og til-
finningaríkt og fjallar textinn
um þær áskoranir sem fylgja
ástarsambandi. Brown hefur
verið ákærður fyrir að hafa ráð-
ist á Rihönnu í síðasta mánuði
þannig að stórsá á henni. Miðað
við dúettinn virðist hún hafa
fyrirgefið honum verknaðinn.
„Ég finn bæði til með Chris og
Rihönnu vegna þess sem gerð-
ist,“ sagði upptökustjóri lagsins,
Polow Da Don. Hinn nítján ára
Brown hefur beðist afsökunar á
árásinni. „Orð geta ekki lýst því
hversu sorgmæddur ég er yfir
því sem gerðist,“ sagði hann í
yfirlýsingu sinni.
Tóku upp
ástardúett
KAMUI Þjóðverjarnir Dominik og Patrich
skipa hljómsveitina Kamui.
RIHANNA Söngkonan Rihanna, sem er
þekktust fyrir lagið Umbrella, virðist hafa
fyrirgefið Chris Brown.
> SKILDI LÍFVÖRÐINN EFTIR
Leikkonan Lindsay Lohan skildi
einn lífvarða sinna eftir í óvissu
í Las Vegas þegar hún lét sig
hverfa frá Las Vegas eftir rifrildi
við kærustu sína, Samönthu
Ronson. Lindsay og Samantha
rifust eins og hundur og kött-
ur og Ronson stakk af. Þá
rauk Lindsay á eftir henni og
gleymdi því að lífvörðurinn var
með í för. Það síðasta sem
sást til hans var þegar hann
reyndi að koma sér aftur til
Los Angeles.
Hvað er að frétta? Við erum að breyta Nakta apanum aðeins
þannig að búðin er lokuð núna. Svo er ég byrjuð á hugmyndavinnu
fyrir Airwaves 2009, er að fara til Vestmannaeyja að kenna smá,
undirbúa sýningu í Norræna húsinu – Nordic Fashion Biennale og
er í spennandi verkefni í Bretlandi.
Augnlitur: Stjörnuþoka.
Starf: CEO.
Fjölskylduhagir: Ég elska alla.
Hvaðan ertu? Ég á velska ömmu, franskan langafa, kínverska
langalangömmu og rússneska forfeður. Ég er alheimsbarn.
Ertu hjátrúarfull? Ég trúi á alls konar bull.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Allt með dýrum, en ég elskaði
Transformers og get ekki beðið eftir að nr. 2 komi.
Uppáhaldsmaturinn: Ommilettur og kótilettur.
Fallegasti staðurinn: Vinnustofan mín.
iPod eða geislaspilari: Magnari.
Hvað er skemmtilegast? Dýragarðar og rússíbanar.
Hvað er leiðinlegast? Rottan!
Helsti veikleiki: Ég er He-Man.
Helsti kostur: Ég trúi að ég geti snert stjörnurnar, ég hvet
fleiri til að tileinka sér þá tilfinningu.
Helsta afrek: Börnin mín eru snilld, merkilegar mann-
eskjur sem ég á að vinum. Svo að ná að halda búðinni
minni opinni.
Mestu vonbrigðin? Þegar mysudrykkurinn Garpur var
tekinn af markaðnum.
Hver er draumurinn? Að eignast Liger, sem er
afkvæmi ljóns og tígrisdýrs og eru risavaxnir!
Hver er fyndnastur/fyndnust? Ásgrímur Már
Friðriksson, fatahönnuður og lífskúnstner, Árni
Hlöðversson, söngvari FM BELFAST, og síðast
en ekki síst Ólöf Skaftadóttir, „she´s my favorite
dog“.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar ég er á
1.000 földum yfirsnúning og næ samt ekki að
gera allt sem ég ætla mér.
Hvað er mikilvægast? Að gæta að sál og
líkama, ef allt þrýtur er það það eina sem þú átt
HIN HLIÐIN SARA MARÍA JÚLÍUSDÓTTIR Í NAKTA APANUM
Elskar alla og trúir á alls konar bull
27.05.1980
A3 Outlet-Center býður uppá
vandaðar vörur á einstaklega
hagstæðum verðum
LAGERHREINSUN
Cintamani flíspeysur fyrir börn frá 3.990.-
Fyrir fullorðna frá 4.990.-
Tony Hawk og O´Neill
Bolir frá 990.-
Gallabuxur frá 2.990.-
G
R
A
N
D