Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 14.03.2009, Blaðsíða 88
56 14. mars 2009 LAUGARDAGUR sport@frettabladid.is Ásdís Hjálmsdóttir, spjótkastari úr Ármanni, var valin á dög- unum til að keppa á Vetrarkastmóti Evrópu en mótið fer fram á Los Realejos á Tenerife á sunnudaginn. „Þetta mót kemur mjög snemma á keppnistíma- bilinu og í raun áður en það byrjar. Ég tek því sem hálfgerðu æfingamóti til að geta metið stöðuna á mér. Það má segja að þetta mót sé fyrsti liður í undirbúningnum fyrir HM í ágúst. Markmiðið fyrir sunnudaginn er bara að kasta vel, ná taktinum í atrennunni og vonandi að kasta yfir 55 metra,” segir Ásdís sem hefur verið nokkuð óheppin með meiðsli á síðustu misserum. „Skrokkurinn er fínn, ég hef ekkert fundið til í olnbog- anum síðan ég byrjaði að kasta aftur eftir hvíldina eftir Ólympíuleikana,” segir Ásdís sem hefur undirbúið sig vel fyrir tímabilið þrátt fyrir erfiðar aðstæður fyrir spjótkastara heima á Íslandi. „Æfingarnar að undanförnu hafa gengið mjög vel en vegna þess hvernig veðrið er búið að vera heima í vetur þá hafði ég ekkert getað kastað úti fyrr en ég kom hingað,” sagði Ásdís sem hefur þó reynt að bjarga sér. „Ég er búin að vera að kasta í net inni í Laugardalshöllinni sem hefur hjálpað mér mikið en þar er þó ekki hægt að fínstilla svifið á spjótinu. Ég er búin að ná að taka tvær kastæfingar til að fínstilla tæknina og þær gengu bara ótrúlega vel miðað við árstíma svo að ég er bjartsýn á mótið á sunnudaginn og enn bjartsýnni á sumarið,” segir Ásdís. Ásdís sló Íslandsmetið þegar hún kastaði 59,80 metra í Finnland í júlí í fyrra en er nýtt met inni í myndinni? „Eins og æfingarnar hafa gengið í vetur og miðað við formið sem ég er í núna þá yrði ég fyrir miklum vonbrigðum ef ég myndi ekki setja met í sumar. Íslandsmetið er þó í raun ekki markmiðið sjálft en til þess að ná mínum markmiðum í sumar þá þarf ég að setja met,” sagði Ásdís sem ætlar sér mikið á árinu 2009. ÁSDÍS HJÁLMSDÓTTIR ÚR ÁRMANNI: KEPPIR Á NÍUNDA VETRARKASTMÓTI EVRÓPU UM HELGINA Vonbrigði ef ég set ekki Íslandsmet í sumar > Úrslitakeppnin byrjar í dag Úrslitakeppnin í Iceland Express-deild karla byrjar að rúlla í dag með tveimur leikjum sem báðir hefjast klukkan 16.00. Þá tekur Snæfell á móti Stjörnunni í Hólminum og ÍR sækir Grindavík heim í Röstina. Annað kvöld fara svo einnig fram tveir leikir í átta liða úrslitunum en þá tekur KR á móti Breiðablik og í Keflavík er risaslagur þar sem heimamenn taka á móti nágrönnum sínum í Njarðvík. N1-deild karla: Akureyri-Haukar 23-28 Mörk Akureyrar: Árni Þór Sigtryggsson 5, Andri Snær Stefánsson 4, Hreinn Þór Hauksson 4, Goran Gusic 4, Brynjar Þór Hreinsson 3, Jónatan Þór Magnússon 2, Hörður Fannar Sigþórsson 1. Mörk Hauka: Kári Kristján Kristjánsson 6, Freyr Brynjarsson 6, Andri Stefan 6, Sigurbergur Sveins- son 4, Tjörvi Þorgeirsson 3, Elías Már Halldórsson 2, Einar Örn Jónsson 1. Iceland Express-deild kvk: KR-Keflavík 69-54 Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 19 (6 frák.), Margrét Kara Sturludóttir 13, Guðrún Ámundadóttir 9, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 9 (16 frák.), Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 8 (8 frák.), Helga Einarsdótt- ir 8, Heiðrún Kristmundsdóttir 3. Stig Keflavíkur: Bryndís Guðmundsdóttir 21 (12 frák.), TaKesha Watson 15 (11 frák.), Birna Valgarðsdóttir 9, Pálína Gunnlaugsdóttir 6, Svava Stefánsdóttir 2, Erla Reynisdóttir 1. ÚRSLIT LANDSLIÐSHÓPURINN Stefán Logi Magnússon KR Þórður Ingason Fjölnir Bjarni Ólafur Eiríksson Valur Atli Sveinn Þórarinsson Valur Ásgeir Gunnar Ásgeirsson FH Guðmundur Reynir Gunnarsson GAIS Guðjón Árni Antoníusson Keflavík Davíð Þór Viðarsson FH Jónas Guðni Sævarsson KR Eyjólfur Héðinsson GAIS Matthías Guðmundsson FH Jóhann Berg Guðmundsson AZ Alkm. Guðmundur Kristjánsson Breiðablik Gunnar Már Guðmundsson Fjölnir Guðjón Baldvinsson GAIS Matthías Vilhjálmsson FH Óskar Örn Hauksson KR Rúrik Gíslason Viborg FÓTBOLTI Það er sannkallaður stór- leikur í hádeginu í dag þegar Man. Utd tekur á móti Liverpool. Heima- menn eru í þægilegri stöðu á toppi deildarinnar og allt annað en sigur er tap fyrir Liverpool. Wayne Rooney hefur heldur betur kynt undir bálið fyrir leik- inn með því að segja að hann hefði alist upp við að hata Liverpool. Þau ummæli fjarlægði Man. Utd síðar af heimasíðu sinni en skaðinn var skeður. „Hatur er auðvelt orð að nota, auðveldara að segja það en að manni sé illa við einhvern. Þetta var samt kannski ekki rétta orðið,“ sagði Sir Alex Ferguson, stjóri United, sem reyndi að lægja öld- urnar í gær. „Hann er alinn upp við að styðja Everton og það er mikill rígur á milli Everton og Liverpool. Svo kom hann hingað og hann vill vinna. Þetta er í raun ekkert til að tala um.“ Ferguson þrífst á svona stórleikj- um og hann getur ekki beðið eftir að flautað verði til leiks í dag. „Liverpool hefur alltaf verið okkar höfuðandstæðingur. Þetta eru tvö sigursælustu félög lands- ins og þegar þau mætast er allt- af hasar. Við erum í fínni stöðu í deildinni og með sigri erum við nokkurn veginn búnir að gera út um þeirra vonir,“ sagði Ferguson en United er sjö stigum á undan Liverpool í deildinni fyrir leikinn. Rafael Benítez, stjóri Liverpool, gerir sér vel grein fyrir mikilvægi leiksins og ekkert nema þrjú stig í dag nægja að hans mati. „Við verðum að fá þrjú stig til þess að minnka muninn og eiga möguleika á titlinum. Það eina sem við getum gert er að næla í þrjú stig og sjá svo hvað gerist,“ sagði Benítez sem hefur aldrei fagnað sigri á Old Trafford í fjórum til- raunum. „Það er samt ekki víst að sigur dugi til að stöðva þá frá því að verða meistarar en við munum reyna. United er gott lið með mikla breidd þannig að stöðugleikinn er til staðar.“ henry@frettabladid.is Sigursælustu liðin mætast Það verður stríð á Old Trafford í dag þegar erkifjendurnir og sigursælustu félög- in í enska boltanum, Man. Utd og Liverpool, mætast. Mikið hefur verið gert úr orðum Waynes Rooney í aðdraganda leiksins en hann sagðist hata Liverpool. HELLTI OLÍU Á ELDINN Wayne Rooney sá um að kynda bálið fyrir stórleik dagsins. Hann er hér í harðri baráttu við Fabio Aurelio. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson hefur valið landsliðshópinn sem mætir Færeyjum í Kórnum um næstu helgi. Liðið er að mestu skipað óreyndum leikmönnum og alls átta nýliðum. Leikurinn fer ekki fram á alþjóðlegum leik- degi og því fáir atvinnumenn sem standa til boða. „Ég hefði vissulega getað valið aðra leikmenn enda margir sem hafa verið að standa sig vel,“ sagði Ólafur Jóhannesson lands- liðsþjálfari. - esá Færeyjahópurinn valinn: Átta nýliðar EINVALDURINN Er með fjölda nýliða í hópnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Vellíðan án lyfj a með verkfærum sálfræðinnar Fjögurra vikna námskeið Kvíðameðferðar- stöðvarinnar ti l að takast á við vanlíðan, álag og spennu. Kenndar leiðir hugrænnar atf erlis- meðferðar ti l að skoða og breyta hugsunum og viðbrögðum sem viðhalda kvíða og depurð. Öfl ugar slökunar- og hugleiðsluaðferðir jafnframt kenndar. Mánudagar og fi mmtudagar frá 20:00 ti l 21:30 auk eft irfylgdartí ma, alls 14 klst. Kennarar: Oddi Erlingsson og Sóley D. Davíðsdótti r, sérfræðingar í klínískri sálfræði. Kynningarverð: 42 000. Niðurgreiðsla möguleg hjá sjúkrasjóðum stétt arfélaga. Næsta námskeið hefst mánudaginn 23. mars n.k. Skráning og fyrirspurnir í símum 5340110, 8220043 og 5624444, oddier@simnet.is og kms@kms.is HANDBOLTI Haukar unnu fimm marka sigur, 23-28, á Akureyr- ingum í gær. Munurinn var tvö mörk í leik- hléi, 11-13, fyrir gestina. Haukar leiddu lengstum örugglega í síð- ari hálfleik en Akureyringar minnkuðu muninn í eitt mark, 23-24, þegar skammt var eftir. Þá stigu Haukar aftur á bensínið, skoruðu fjögur síðustu mörk leiksins og tryggðu sér sigur. Haukar endurheimtu þar með þriggja stiga forskot sitt á toppi deildarinnar. Þetta var jafnframt tólfti sigurleikur liðsins í röð. Akureyringar eru í sjötta sæti deildarinnar. - hbg N1-deild karla: Haukasigur á Akureyri KÖRFUBOLTI KR-konur eru komnar í lykilstöðu á móti Keflavík í und- anúrslitaeinvígi liðanna í Iceland Express deild kvenna eftir 69-54 sigur á Keflavík í DHL-höllinni í gær. KR er þar með 2-0 yfir í einvíginu og aðeins einum sigri frá því að slá út Íslandsmeistara Keflavíkur og komast í lokaúrslit- in. KR lagði grunninn að sigrinum með stórskotlegum fyrri hálfleik sem liðið vann 45-25 og lét Íslands- meistarana úr Keflavík líta vand- ræðalega illa út. Keflavík mætti til seinni hálf- leiks eins og flestir höfðu búist við að liðið gerði í upphafi eftir tapið í fyrsta leiknum. Það var þó ekki nóg, liðið kom muninum reyndar niður í fjögur stig með 15-0 spretti. Tvær þriggja stiga körfur Guðrún- ar Óskar Ámundadóttur í röð komu KR-liðinu aftur í gang og í fjórða leikhlutanum var aldrei spurning um hvernig að þetta færi. „Þrátt fyrir bikarinn sé kominn í hús þá erum við mjög hungrað- ar að ná í hinn líka. Við byrjuð- um leikinn stórkostlega og náðum góðu forskoti. Við náðum ekki að halda því en við kláruðum leik- inn,“ sagði Hildur Sigurðardóttir sem er að spila eins og sannur fyr- irliði inn á vellinum. Hlutverkskipanin innan KR- liðsins er orðin mjög skýr og allir leikmenn eru með sitt á hreinu sér- staklega í vörninni sem náði stór- an hluta leiksins að riðla algjörlega sóknarleik Keflavíkurliðsins. Þar spilar Guðrún Gróa Þor- steinsdóttir stórt hlutverk og Kesha Watson ætti að vera í bestri aðstöðu til að meta hversu mikl- um framförum Gróa hefur tekið á einu ári. Kesha er ekki að fara vinna tit- ilinn ein, þjálfarinn hefur tönn- last á því í viðtölum en á meðan aðrir leikmenn liðsins fara ekki að átta sig á því kemur sumarfríið snemma í ár. „Við höfum náð því að koma upp á réttum tíma. Við erum búnar að eiga toppleiki þegar við höfum þurft á því að halda,“ sagði Hild- ur og liðið getur klárað einvígi í næsta leik. Hildur átti góðan leik alveg eins og Guðrún Gróa, Margrét Kara Sturludóttir og Sigrún Ámunda- dóttir sem hitti kannski illa en tók 16 fráköst og stjórnaði leik liðsins ásamt Hildi. Hjá Keflavík var Bryndís Guð- mundsdóttir í sérflokki en lítið framlag frá bæði Birnu Valgarðs- dóttur og Pálínu Gunnlaugsdóttur í fyrstu tveimur leikjunum hlýtur að vera þjálfaranum Jóni Halldóri Eðvaldssyni mikið áhyggjuefni. - óój KR-stúlkur aðeins einum sigri frá því að komast í úrslitaeinvígið: Í meistaraham í fyrri hálfleik ÖFLUG Margrét Kara Sturludóttir fann sig vel gegn sínum gömlu félögum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.