Morgunblaðið - 29.01.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 28. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Cash í
fótspor Cash
Johnny Cash kominn á hvíta tjaldið og
dóttirin fetar í fótspor hans | 40 | 68
Tímarit og Atvinna í dag
Tímaritið | Kamelíufrúr Karls Lagerfeld Grillið fær fimm
stjörnur hjá Steingrími Steinunn Ólína á Rangárvöllum í
Bandaríkjunum Atvinna | Greenspan og hagkerfið
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
ÁST til maka og öryggi er aðalástæða þess að
pör af sama kyni velja að ganga í staðfesta
samvist, fremur en þau réttindi sem fylgja
staðfestingunni. Þetta er meðal niðurstaðna í
nýrri rannsókn sem Anna Einarsdóttir upp-
eldis- og menntunarfræðingur hefur gert á
áhrifum lagasetningar um staðfesta samvist
samkynhneigðra.
Rannsókn Önnu er hluti af doktorsnámi
hennar í félagsvísindum við London South
Bank University en um er að ræða spurninga-
listakönnun sem dreift var í nóvember 2004 til
allra kvenna og karla sem gengið höfðu í stað-
festa samvist frá því að lög um hana voru sam-
þykkt árið 1996. Alls voru sendir út 216 listar
og fengust svör frá 103 einstaklingum.
Spurt var hverjar væru þrjár meginástæður
þess að viðkomandi staðfesti samvist sína. og
Langflestir, eða um 80%, gáfu upp ástæðuna
„Ást“. Um 35% nefndu „öryggi“ og 31%
„erfðamál“. „Þetta kom mér mjög á óvart,“
segir Anna. „Í aðdraganda lagasetningarinnar
var baráttan fyrir staðfestri samvist fyrst og
fremst rekin á því að með henni myndu sam-
kynhneigðir öðlast lagaleg réttindi sem þeir
höfðu ekki áður, s.s. erfðaréttindi. Reyndin er
hins vegar að fólk lítur á þetta sem tilfinn-
ingalega tryggingu fremur en praktíska ráð-
stöfun.“
Rúmlega 20% gáfu „sýnileika“ upp sem
ástæðu fyrir ákvörðun sinni. „Almennt leit fólk
svo á að með því að ganga í staðfesta samvist
væri það að gifta sig. Þar með var kominn
merkimiði á samböndin og þannig varð miklu
auðveldara fyrir fólkið sjálft og aðstandendur
þess að finna samböndunum einhvern stað í
samfélaginu.“
Um 60% fögnuðu tímamótunum með veislu
en aðeins 10% fengu blessun prests eða for-
stöðumanns trúfélags. Þá voru viðbrögð ætt-
ingja og vina við giftingunni mjög góð að sögn
Önnu. „Almennt höfðu svarendur ákaflega já-
kvæða reynslu af því að hafa gengið í staðfesta
samvist og mjög fáir, eða aðeins tæplega 7%,
treystu sér ekki til að segja öllum frá því að
þeir hefðu valið sér þetta sambúðarform.“
Fjallað er um hjónabönd og samkynhneigða
í Tímariti Morgunblaðsins í dag. | Tímarit
Ástin sögð mikilvægari en réttindin
Morgunblaðið/Ásdís
Sýnileiki og viðurkenning ráða miklu um að
samkynhneigðir staðfesta samvist sína.
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
„ÞÓTT það sé ekki algildur mæli-
kvarði á menntun höfðu með-
aleinkunnir á samræmdum prófum
á Suðurlandi verið slakar. Þetta var
meðal annars ástæða þess að við
fórum að velta fyrir okkur þeim
þáttum sem taldir eru skipta máli í
tengslum við skólagöngu barna og
hvað hægt væri að gera varðandi
þá,“ segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri í Reykjanesbæ og formaður
fræðsluráðs í bænum. Meðal annars
var ákveðið að búa til heiðurslista
nemenda, þar sem komast mætti á
blað fyrir fleira en hæstu einkunn-
ir. „Hrós er jákvætt uppeldistæki
og krakkar þurfa að vita þegar þeir
standa sig vel,“ segir Eiríkur Her-
mannsson fræðslustjóri. Ósk
Björnsdóttir, nemandi í 10. bekk,
segir sniðugt að taka tillit til fram-
fara, dugnaðar og iðjusemi. „Sumir
eru nefnilega mjög duglegir að
vinna en eru kannski stressaðir í
prófum og fá lága einkunn.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Hrós er jákvætt uppeldistæki“
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
Fjölskyldan í fyrirrúmi | 10
Gaza, Washington. AP, AFP. | Vaxandi spenna er á milli
stuðningsmanna Fatah- og Hamas-hreyfingarinnar
eftir sigur þeirrar síðarnefndu í kosningunum í Pal-
estínu. Í fyrrakvöld kom til átaka með þeim á Gaza
þar sem vopnum var beitt og í gær var óttast, að
upp úr kynni að sjóða eftir boðaðar mótmælagöng-
ur. George W. Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveð-
ið að hætta stuðningi við palestínsku heimastjórn-
ina nema Hamas hafni ofbeldi og láti af þeirri stefnu
að tortíma Ísrael.
Þúsundir stuðningsmanna Fatah efndu til mót-
mæla á Gaza í fyrrakvöld og í gærmorgun, brenndu
bíla og kröfðust þess, að Mahmoud Abbas forseti og
öll miðstjórn Fatah-hreyfingarinnar segði af sér.
Kenndu þeir spillingu hennar um ósigurinn. Níu
manns, þar af fimm lögreglumenn, særðust er
stuðningsmenn fylkinganna skiptust á skotum á
Gaza í fyrrakvöld. Um 400 Fatah-liðar lögðu í gær
undir sig skrifstofur hreyfingarinnar í Betlehem á
Vesturbakkanum og ítrekuðu kröfur um afsögn
flokksforystunnar.
Bush Bandaríkjaforseti sagði í fyrrakvöld, að
ákveðið hefði verið að hætta öllum stuðningi við Pal-
estínustjórn nema Hamas afvopnaðist, hafnaði of-
beldi og léti af þeirri stefnu að afmá Ísraelsríki.
Fjárhagslegur stuðningur við Palestínumenn og
framhald á honum í ljósi sigurs Hamas-hreyfing-
arinnar verða eitt helsta málið á fundi Condoleezzu
Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í London á
morgun með fulltrúum Evrópusambandsins, Rúss-
lands og Sameinuðu þjóðanna, kvartettsins svokall-
aða, sem reynt hefur að hrinda í framkvæmd Veg-
vísinum, áætlun um frið í Mið-Austurlöndum.
Átök milli Fatah og Hamas
EITT af lykilatriðunum í heil-
brigðisáætlunum bresku stjórn-
arinnar er, að öllum breskum
þegnum verði boðin víðtæk og
ókeypis læknisskoðun fimm
sinnum um ævina. Það myndi
auðvelda læknum að fást við
suma sjúkdóma strax og hvetja
fólk til að breyta lífsháttunum.
Kemur þetta fram í skýrslu,
sem birt verður á morgun,
mánudag, en Patricia Hewitt,
heilbrigðisráðherra Bretlands,
segir, að hugmyndin sé, að þeir,
sem þurfi á því að halda, fái sér-
stakan umsjónarmann eða þjálf-
ara, sem gefi þeim góð ráð um
mataræði og hreyfingu. Ekki
yrði þó um neina einkatíma að
ræða, heldur stöðugt samband
og eftirlit að því er fram kom á
fréttavef BBC, breska ríkisút-
varpsins.
Aukið fé til forvarna
Hewitt sagði, að auk víðtækr-
ar læknisskoðunar yrði hugað
að mataræði, reykingum, hreyf-
ingu og líkamsþunga og sjúk-
dómssaga fjölskyldu og náinna
ættingja skoðuð.
Ákveðið var að vinna að þessu
eftir að 75% þátttakenda í könn-
un kváðust hlynnt eftirliti af
þessu tagi. Er það í samræmi
við þá stefnu stjórnarinnar að
færa til fé innan heilbrigðiskerf-
isins og leggja meira í forvarnir.
Heilsufarið
undir
smásjá
Kúveit. AP, AFP. | Bandarískum
hermönnum í Írak hefur fækkað
um allt að 20% á síðustu tveimur
mánuðum og búist er við, að haldið
verði áfram að fækka þeim smám
saman.
Kom þetta fram hjá John Abiz-
aid hershöfðingja og yfirmanni
Bandaríkjahers í Írak en hann
lagði áherslu á, að versnaði
ástandið frá því, sem nú er, kynni
aftur að verða fjölgað í herliðinu.
Nú eru rúmlega 140.000 banda-
rískir hermenn í Írak en John
Murtha, kunnur þingmaður í
flokki demókrata, sagði fyrir
skömmu, að líklega yrði búið að
kalla allan herinn heim frá Írak
fyrir árslok.
Í væntanlegum fjárlagatillögum
George W. Bush, forseta Banda-
ríkjanna, er gert ráð fyrir marg-
víslegum sparnaði í útgjöldum til
hermála. Meðal annars á að fækka
allnokkuð í varaliði hersins og
þjóðvarðliðinu og lækka kostnað
við tvær áætlanir um smíði her-
þotna um 247 milljarða ísl. kr.
Hefur þessu verið heldur illa tekið
meðal sumra repúblikana, flokks-
bræðra forsetans.
Reuters
Fækkað í
herliðinu
Unnið við að eyða gömlum vopna-
birgðum frá Íraksher.