Morgunblaðið - 29.01.2006, Síða 13

Morgunblaðið - 29.01.2006, Síða 13
1855 Arfleifð frumkvöðulsins Charles M. Hall stýrði rannsóknum Alcoa þar til hann lést árið 1914. Hann var þá efnaðasti uppfinningamaður í sögu Bandaríkjanna. Megninu af eignum hans var skipt á milli menntastofnana. Þar af fór þriðjungur til Oberlin háskólans og sjötti hluti í sjóð til að mennta blökkumenn í Suðurríkjunum. Andi frumkvöðulsins lifir enn og dafnar innan Alcoa. Nýverið lagði Stuðningssjóður Alcoa 20 milljónir króna til Stofnunar Leifs Eiríkssonar í því skyni að styðja háskólanema. Alcoa Fjarðaál mun á komandi mánuðum ráða hátt í 400 konur og karla til margvíslegra starfa í nýju hátækniálveri í Fjarðabyggð. Um 40% starfs- manna verða með háskóla- eða iðnmenntun. Allir starfsmenn fá fjölbreytta þjálfun og fræðslu hjá sérfræðingum víðs vegar að úr heiminum. Alcoa Fjarðaál mun jafnframt styðja starfsmenn til að afla sér frekari menntunar og réttinda. Stöðugt nám og nýsköpun verða einkunnarorð okkar. Saman ætlum við að búa til lærdómsfyrirtæki á heimsmælikvarða. Við tökum vel á móti þér. Töframálmur á heimssýningu Eiginleikar áls þóttu ótrúlegir. Á heimssýningunni í París 1855 var fisléttur álklumpur eitt helsta aðdráttaraflið og Napoleon III. Frakklandskeisari bauð tignustu gestum sínum að borða með hnífapörum úr áli. Ál var tvisvar sinnum dýrara en gull og þessi fallegi og fágæti „töframálmur“ var notaður í fínustu skartgripi og skrautmuni. Frá námi til nýsköpunar Viltu læra með okkur? Hall-Herault aðferðin Charles M. Hall var þó ekki einn um hituna. Á sama tíma tókst Frakkanum Paul Heroult að búa til ál með svipuðum hætti. Framleiðsla áls með rafgrein- ingu hefur því verið nefnd Hall-Heroult aðferðin og hún er enn undirstaða allrar álfram- leiðslu í heiminum. Hall og Herault voru báðir aðeins 22 ára þegar þeir gerðu uppgötvanir sínar. Alfred E. Hunt Arthur V. Davis 1888 1895 The Pittsburgh Reduction Company Hall fékk til liðs við sig fjárfesta undir forystu Alfred E. Hunt og 1. október 1888 stofn- uðu þeir lítið nýsköpunarfyrir- tæki, The Pittsburgh Reduction Company, sem reisti fyrsta álver heims í Pittsburgh. Raforkan kom frá 125 hestafla gufuvél. Hall og ungur piltur, Arthur V. Davis, skiptu á milli sín 12 tíma vöktum og fram- leiðslan náði fljótt 20 kílóum á sólarhring. Fram að því hafði aðeins tekist að framleiða rúm 60 tonn af áli í heiminum. 1888 www.alcoa.is 1895 1855 Brautryðjandi í nýtingu vatnsafls Árið 1895 hafði T.P.R.Co. forystu um að nýta vatnsafl til að framleiða raforku fyrir álver sem reist var við Niagarafossa. Þegar Hunt lést árið 1899 tók Davis við stjórnar- taumunum og sleppti þeim ekki fyrr en nærri 60 árum síðar. Vegna vaxandi umsvifa var nafni fyrirtækisins breytt í Aluminum Company of America og síðar í Alcoa. Árið 1909 var ársframleiðslan orðin 17.000 tonn. Rafgreiningarker í fyrsta álverinu Frönsk álstytta frá 1858

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.