Morgunblaðið - 29.01.2006, Page 24
24 SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Digrir drættir
Í hlutarins eðli | Byggingar gegna stóru hlutverki í daglegu
lífi, en lítið er um gáska og tilþrif í húsagerðarlist á Íslandi.
Brynhildur Pálsdóttir fjallar um hóp arkitekta í London,
sem fjalla um borgina út frá því hvað geri hana áhugaverða
og virka og veltir fyrir sér sambandi byggingarinnar og
þess umhverfis sem hún er í.
Einhvers staðar er sagt aðvið eyðum um það bilþriðjungi af lífi okkarliggjandi í rúmi. Sláandistaðreynd sem minnir
okkur á mikilvægi þess að velja góð
rúm. Með það í huga er hægt að
spyrja sig hve stóran hluta af lífi
okkar við eyðum inni í byggingum?
Byggingar skipa stóran sess í lífi
okkar, daglegt líf okkar á sér stað
inni í byggingum og þær umkringja
okkur þegar við stígum út úr þeim.
Arkitektar gegna því mjög ábyrgð-
armiklu hlutverki, það eru þeir sem
ákveða útlit og virkni umhverfisins,
þeirra sýn verður að okkar heimil-
um, vinnustöðum, sundlaugum, um-
ferðarmiðstöðvum, skólum, bóka-
söfnum og svo framvegis. Til frekari
umfjöllunar um arkitektúr naut ég
fulltingis Magneu Þóru Guðmunds-
dóttur, nema í arkitektúr við AA í
London.
Miðað við hvað arkitektúr skipar
stórt hlutverki í lífi okkar ætti um-
ræða um strauma og stefnur í arki-
tektúr að vera á allra vörum, alveg
eins og endalausar hugleiðingar um
veðrið sem er örugglega algengasta
umræðuefni í heimi. Úthverfi borg-
arinnar fjölga sér hratt og nýjar
byggingar rísa á methraða allt í
kring, en hvað er verið að byggja,
hver eru markmiðin með úthverfun-
um önnur en að búa til þak yfir höf-
uðið fyrir komandi íbúa?
Nútíma arkitektúr í öngstræti?
Þegar nýjustu úthverfi höfuð-
borgarsvæðisins eru skoðuð er ekki
mikið um framúrstefnulegan arki-
tektúr sem fær mann til þess að
missa málið og standa agndofa yfir
ótrúlegum tækniframförum, hugviti
og hönnun. Inn á milli frekar hefð-
bundinna steypuhúsa sem standa
ekki fyrir áhugaverðan nútíma arki-
tektúr leynast kanadísk einingahús í
sykursætum pastellitum. Svo virðist
sem nútíma arkitektúr sé búinn að
mála sig út í horn og nái ekki til al-
mennings.
Arkitektar í svörtum rúllukraga-
peysum bak við luktar dyr, í hæfi-
legri fjarlægð frá raunveruleikan-
um, áforma hreinar línur, ljós,
skugga og hvíta fleti. Arkitektúr
isverð er að það er ekki fast í viðjum
einhverrar hreinstefnu eða sýnar.
Hugmyndir þess hafa sterkari vís-
anir til dægurmenningar og út-
hverfa stórborga en til klassískr-
ar hámenningar. Í stað þess
að þurrka út einkenni dæg-
urmenningarinnar og búa
til fullkomna sýn
módernismans
notar FAT
hana. Um-
ræðan um
hvað er góð-
ur smekkur
og hvað
er
smekkleysa í arkitektúr mótar verk
þeirra.
FAT-arkitektarnir hafa fengið
þann stimpil að vera miklir óláta-
belgir og prakkarar innan arkitekta-
heimsins og kannski hafa verk
þeirra ekki verið tekin alvarlega.
Sérstaklega þar sem þau falla ekki
inni í hinn staðlaða, dauðhreinsaða
og viðurkennda módernisma sem
einkennir arkitektúr okkar tíma.
Með hönnun „Bláa hússins“ í
London spilar FAT með slagorð
módernistanna um að form fylgi
fúnksjón. Samkvæmt því á hönnun
húss að taka mið af notkun eða til-
gangi þess. FAT snýr á hugmyndina
og í stað þess að nota einföld form
sem mynda rými er skær máluð
framhlið hússins líkt og teiknimynd
skorin út í flatt auglýsingaskilti.
Formið er í röngum hlutföllum og
leikur á þrívídd í tvívíðu formi en
miðlar á ýktan hátt notkun hússins
sem er skrifstofa og íbúðarhús. 18
gluggar á efri hæð hússins gefa til
kynna mörg lítil herbergi en er í
raun bara eitt stórt svefnherbergi
með mörgum litlum gluggum. Útlína
hússins er dæmigerður sjóndeildar-
hringur stórborgar með útskorið
ský ofan á grindverkinu og er á end-
anum útilistaverk frekar en hús sem
tekur sig of alvarlega.
Óvenjuleg íbúðarhús
Anti-Oedipal húsið er hannað fyr-
ir kjarnafjölskyldu úthverfanna og
kannar hið dæmigerða togstreitu-
samband milli meðlima fjölskyld-
unnar. Húsið andmælir venju-
bundnu formi íbúðareiningar og
skilur að foreldra og börn og leyfir
þannig hverjum fyrir sig að lifa í
sinni eigin draumatilveru. Foreldr-
arnir búa í hluta hússins sem er
módernískur glerkassi og geta þar
fylgt ástríðu sinni fyrir kvöldverð-
arboðum og brjálaðri hreinlætisþörf
á meðan unglingarnir slæpast um í
sællífishluta hússins í friði frá kúg-
andi augnráði foreldranna.
Hollendingar hafa tekið verkum
FAT opnum örmum, svo opnum að
hollenski pósturinn gaf út fyrir
nokkru frímerki með mynd af varð-
skýli fyrir hjólageymslu sem FAT
hannaði fyrir strandbæinn Scheven-
ing í Hollandi. Varðskýlið stendur
við göngu- og hjólastíg sem liggur
með fram ströndinni. Markmið FAT
var að hanna skýli sem næði að
skera sig úr þar sem það er um-
kringt margs konar strandskýlum
með risastórum og litríkum kúluís-
um eða glaðværum plasthamborgur-
um á þökunum. Hugmyndin með
varðskýlinu var að búa til skýli sem
myndi ná þeim staðli að vera söguleg
bygging, ein sú minnsta af þeirri
gerð og inniheldur hún sterkar vís-
anir í sögu Hollands. Bakhlið skýl-
isins er í forminu eins og manngerð
hæð. Framhliðin er í laginu líkt og
varðkastali, ofan á þaki skýlisins er
minnkuð útgáfa af hefðbundnu hol-
lensku húsi sem minnir á hlutverk
vita með blikkandi rauðu ljósi. Ann-
að slagið kemur svo reykgufa úr litla
húsinu sem fær mann til að halda að
það sé kviknað í.
Undanfarin ár hefur FAT tekið að
sér stór og mikilvæg verkefni, heilt
úthverfi í Manchester mun líta dags-
ins ljós á þessu ári og tvö stór verk-
efni eru fram undan í Hollandi.
Ljóst er af þessu að þeir eru farnir
að fá viðurkenningu sem alvarlegir
arkitektar, eru ekki álitnir prakkar-
ar lengur, þeir bjóða upp á skemmti-
lega viðbót við hina módernísku
arkitektaflóru
Vefsíða FAT inniheldur margvís-
legan fróðleik, meðal annars ná-
kvæmar leiðbeiningar um hvernig er
hægt að verða frægur arkitekt.
Einnig er hægt að prenta út ýmsar
klippimyndir, svo sem leiði Mies Van
der Rohe, og líma saman. Slóðin er
www.fat.co.uk
Höfundur er vöruhönnuður.
Bláa húsið snýr við slagorði módernistanna um að form fylgi funksjón, húsið
hýsir skrifstofu og íbúðarhúsnæði og kemur það skýrt fram í framhlið húsins.
Hjólageymslu-varðskýlið sem FAT hannaði fyrir strandbæinn Schevening.
Varðskýlið hefur náð að snerta hjörtu hollensku þjóðarinnar og er það í miklu
uppáhaldi. Hollenski pósturinn gaf nýverið út frímerki með mynd af því.
Andödipusarhúsið er fyrir kjarnafjölskyldu úthverfanna, þar sem foreldrar og
börn fá að lifa í friði í eigin draumatilveru.
Woodward place í Manchester í nýju
úthverfi þar sem venjubundnum
hefðum arkitektúrs um hreinleika og
stíl er hafnað. Draumar og áhugamál
komandi íbúa var innblástur FAT
arkitekta við hönnun á hverfinu.
Gömlu húsin við sýki
Amsterdam eru í uppá-
haldi hjá mörgum af
framtíðaríbúum
hverfisins og
koma þau áhrif
sterkt fram í
nýju húsunum.
er settur á háan stall þar sem allt er
stílhreint. Hreinleiki er eitthvað sem
er erfitt að lifa eftir og viðhalda.
Hönnun og arkitektúr á að auðvelda
lífið, gera það áhugavert og þýðing-
arvert. Stíll og hreinleiki flækir að-
eins lífið og geldir umhverfið. Málið
virðist ekki snúast um venjulegt fólk
heldur stillimyndir. Er nútíma arki-
tektúr ekki fyrir fólk sem eldar kjöt-
kássur, hlustar á þungarokk eða
safnar þjóðbúningadúkkum?
Arkitektúr ætti ekki að vera ein-
angraður fagurfræðilegur hlutur
heldur samspil efnislegra, fé-
lagslegra, pólitískra og efnahags-
legra þátta. Hvað er það sem gerir
borgina áhugaverða og virka og
hvert er samband byggingarinnar
og þess umhverfis sem hún er í?
Út fyrir það viðtekna
FAT (Fashion Architecture
Taste) er einn þeirra hópa sem fjalla
um arkitektúr í þessu samhengi í
verkum sínum. FAT eru arkitektar
starfandi í London sem skilgreina
starfsemi sína svo: FAT er fyrirtæki
sem býr til arkitektúr og list (og allt
þar á milli). Markmiðið með verkum
þeirra er að benda á það sem arki-
tektúr hefur að segja, ekki bara um
arkitektúr, heldur einnig um pólitík
og félagsleg málefni. FAT var stofn-
að árið 1991 í Bretlandi af skóla-
félögum úr The Polytechnic of Cent-
ral London. Ætlunin var að gefa út
róttækt tímarit um arkitektúr í anda
Archigram og fleiri byltingar-
kenndra arkitektahópa. Fljótlega
breyttist starfsemin og FAT fór að
taka þátt í samkeppnum og ýmsum
listviðburðum og vakti athygli fyrir
áhugaverð verkefni.
Það sem gerir verk FAT athygl-