Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 25

Morgunblaðið - 29.01.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 25 FRÉTTIR            AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ÁRNI Finnsson, formaður Nátt- úruverndarsamtaka Íslands, segir að það sé einfaldlega ekki frétt að þorri Íslendinga telji að hægt sé að ná sátt um stóriðju- eða virkjanamál og vísar þar til könnunar sem IMG Gallup vann fyrir Sam- tök atvinnulífs- ins. Samkvæmt könnuninni er meirihluti þjóðarinnar sáttur við álver á Íslandi. Segir Árni að alveg eins sé hægt að spyrja hvort fólk telji hægt að ná sátt um fiskveiði- stjórnun og kvótakerfi og fengjust þá sömu niðurstöður. „Allir vilja sátt á Íslandi. Það er reglan og niðurstaðan nánast gefin.“ Segir Árni að Gallup hafi einnig gert könnun fyrir Náttúruvernd- arsamtök Íslands í mars 2005 sem sýndi að 40% aðspurðra telja að rangt hafi verið að ráðast í bygg- ingu Kárahnjúkavirkjunar. Þegar Reykjavík var skoðuð sérstaklega kom í ljós 50% aðspurðra töldu þá ákvörðun ranga. Stóriðja kom neðst á blaðið í könnun Gallup fyr- ir Náttúruvaktina fyrir ári. „Nær 80% Íslendinga telja að stjórnvöld geri lítið til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda samkvæmt könnun Gallup fyrir Náttúruverndarsamtökin sl. nóv- ember. Stóriðjuáform munu vart bæta þær tölur fyrir umhverfis- ráðherra. Þegar við bætist að kaupandi kynnir niðurstöður Gallup sem að sátt ríki um stefnu í stóriðju- og virkjanamálum finnst mér Gallup þurfa að verja sinn heiður. Um það var einfaldlega ekki spurt. Heldur hitt: hvort hægt væri að ná sátt. Ekki er ástæða til að ætla að af- staða almennings til Kárahnjúka- virkjunar eða uppbyggingar stór- iðju hafi breyst mikið frá því fyrir ári,“ segir Árni. „Vissulega er hægt að ná sátt um viðkvæm deilumál. Nú virðast stjórnvöld vilja taka tillit til þess að 2⁄3 aðspurðra í könnun Gallup fyrir Náttúruverndarsamtök Ís- lands haustið 2004 töldu að stækka ætti friðlandið í Þjórsárverum. Stjórn Landsvirkjunar hafnaði þó þeirri sáttagjörð á fundi sínum í morgun og vill einungis leggja málið til hliðar um sinn. Baráttan fyrir verndun Þjórsárvera hefur nú staðið í 35 ár,“ að sögn Árna. „Ég nefni þetta sérstaklega vegna þess að ég lenti í spurn- ingavagni Gallup um þessi mál fyr- ir nokkrum vikum. Mig grunar að það sé sá sami og spurt var fyrir Samtök atvinnulífsins (Landsvirkj- un og álfyrirtækin) og Þóra Ás- geirsdóttir kynnti á ráðstefnunni í dag [á föstudag]. Ég tek eftir að margar þeirra spurninga sem fyrir mig voru lagðar er ekki að finna á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins. Sennilega hentar það ekki SA,“ að sögn Árna Finnssonar. Niðurstöður Gallup-könnunar um viðhorf til virkjanamála Ekki frétt að Íslending- ar telji sátt geta náðst Árni Finnsson Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.