Morgunblaðið - 29.01.2006, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. JANÚAR 2006 25
FRÉTTIR
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
ÁRNI Finnsson, formaður Nátt-
úruverndarsamtaka Íslands, segir
að það sé einfaldlega ekki frétt að
þorri Íslendinga
telji að hægt sé
að ná sátt um
stóriðju- eða
virkjanamál og
vísar þar til
könnunar sem
IMG Gallup
vann fyrir Sam-
tök atvinnulífs-
ins. Samkvæmt
könnuninni er
meirihluti þjóðarinnar sáttur við
álver á Íslandi. Segir Árni að alveg
eins sé hægt að spyrja hvort fólk
telji hægt að ná sátt um fiskveiði-
stjórnun og kvótakerfi og fengjust
þá sömu niðurstöður. „Allir vilja
sátt á Íslandi. Það er reglan og
niðurstaðan nánast gefin.“
Segir Árni að Gallup hafi einnig
gert könnun fyrir Náttúruvernd-
arsamtök Íslands í mars 2005 sem
sýndi að 40% aðspurðra telja að
rangt hafi verið að ráðast í bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar. Þegar
Reykjavík var skoðuð sérstaklega
kom í ljós 50% aðspurðra töldu þá
ákvörðun ranga. Stóriðja kom
neðst á blaðið í könnun Gallup fyr-
ir Náttúruvaktina fyrir ári.
„Nær 80% Íslendinga telja að
stjórnvöld geri lítið til að draga úr
útstreymi gróðurhúsalofttegunda
samkvæmt könnun Gallup fyrir
Náttúruverndarsamtökin sl. nóv-
ember. Stóriðjuáform munu vart
bæta þær tölur fyrir umhverfis-
ráðherra.
Þegar við bætist að kaupandi
kynnir niðurstöður Gallup sem að
sátt ríki um stefnu í stóriðju- og
virkjanamálum finnst mér Gallup
þurfa að verja sinn heiður. Um það
var einfaldlega ekki spurt. Heldur
hitt: hvort hægt væri að ná sátt.
Ekki er ástæða til að ætla að af-
staða almennings til Kárahnjúka-
virkjunar eða uppbyggingar stór-
iðju hafi breyst mikið frá því fyrir
ári,“ segir Árni.
„Vissulega er hægt að ná sátt
um viðkvæm deilumál. Nú virðast
stjórnvöld vilja taka tillit til þess
að 2⁄3 aðspurðra í könnun Gallup
fyrir Náttúruverndarsamtök Ís-
lands haustið 2004 töldu að stækka
ætti friðlandið í Þjórsárverum.
Stjórn Landsvirkjunar hafnaði þó
þeirri sáttagjörð á fundi sínum í
morgun og vill einungis leggja
málið til hliðar um sinn. Baráttan
fyrir verndun Þjórsárvera hefur
nú staðið í 35 ár,“ að sögn Árna.
„Ég nefni þetta sérstaklega
vegna þess að ég lenti í spurn-
ingavagni Gallup um þessi mál fyr-
ir nokkrum vikum. Mig grunar að
það sé sá sami og spurt var fyrir
Samtök atvinnulífsins (Landsvirkj-
un og álfyrirtækin) og Þóra Ás-
geirsdóttir kynnti á ráðstefnunni í
dag [á föstudag]. Ég tek eftir að
margar þeirra spurninga sem fyrir
mig voru lagðar er ekki að finna á
vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.
Sennilega hentar það ekki SA,“ að
sögn Árna Finnssonar.
Niðurstöður Gallup-könnunar um viðhorf til virkjanamála
Ekki frétt að Íslending-
ar telji sátt geta náðst
Árni Finnsson
Fréttasíminn 904 1100